Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 14.03.1928, Side 1

Bjarmi - 14.03.1928, Side 1
BJARMI = KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ = XXII. árg. Reykjavílí, 14. mars 1928 10. tbl. „Sæll er sá lýður, er þekkir fagnaðarópið, sem gengur í ljósi augiitis þíns, Drottin“. Sálm. 89, 16. t Haraldur prófessor Níelsson aDdaðist að kveldi þann 11. þ. m. Var skorinn upp tveim dögum áður. Hann fæddist á Grímstöðum á Mýr- um 30. nóv. 1868. Foreldrar hans voru Níels bóndi Eyjólfsson og Sig- ríður Sveinsdóttir prófasts á Staða- stað Níelssonar. Hann varð stúdent 1890 og kandídat frá Hafnarháskóla í ársbyrjun 1897 og tók öll sín próf með háum einkunnum. Síðan vann hann að biblfuþýðingunni í mörg ár, einkum Gamlateslamentisins og leysti það starf prýðilega af hendi. Enda þótt einhver ágreiningur kunni að vera um þýðing fáeinna ritninga- staða þar, og Halldór heitinn Frið- riksson hefði ýmislegt að athuga við fyrstu þýðingar sýnishornin, þá mun alment svo á litið, að allur frá- gangur á Gamlatestamentis-þýðing- unni sje aðal-þýðandanum til stór- sóma. — Nýjatestamentis-þýðingin, sem ritstjóri þessa blaðs er enn sem fyr mjög óánægður með, kemur ekki þessu máli við. Árið 1908 varð hann kennari við prestaskólann og vígðist sama ár að Holdsveikrasjúkrahúsinu. Árið eftir 28. mai 1909 \ar hann skipaður 2. prestur við dómkirkjuna samkvæmt kosningu safnaðarins, en slepti því embætli um haustið vegna veikinda í hálsi og tók aftur við kensluslörf- um við prestaskólann. Guðfræðispró- fessor varð hann er háskólinn var stofnaður 1911 og var háskólareklor er hann andaðist. Síðari árin flutli hann guðsþjón- ustur i Fríkirkjunni í Rvík anDan hvern sunnudag þegar heilsa og á- stæður leyfðu, studdur til þess af frjálsum samtökum ýmsra bæjarbúa, sem hölluðust að trúmálastefnu hans. Hann skrifaði fjölda ritgerða og blaðagreina og ýms rit, einkum til sóknar og varnar spiritísma, og enn fremur ræðusafnið »Árin og eilífðin«. Mælskumaður var hann þjóðkunnur og mesti áhugamaður að hveiju sem hann starfaði. Hann var tvíkvæntur; fyrri kona hans var Bergljót Sigurðardóttir pró- fasts Gunnarssonar. — Lifa 5 börn þeirra. Síðari kona hans var Aðalbjörg Sigurðardóttir er lifir mann sinn með 2 börnum þeirra. Eins og þjóðkunnugt er var ágrein- ingur mikill milli trúmálastefnu Har- alds prófessors og þessa blaðs. En ljúfast er mjer að minnast nú eldri líma, fyrstu áranna, sem við þekt- umst. þegar jeg kom, óþroskaöur stúdent, á prestaskólann haustið 1897, var H. N. nýkominn frá háskólan- um, ötull og áhugasamur; þótti mjer mikils vert að kynnast honum, og áttum við samleið um margt næstu árin. Tveir einir andmæltum við í

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.