Bjarmi

Volume

Bjarmi - 14.04.1928, Page 7

Bjarmi - 14.04.1928, Page 7
B J A R M I 103 göfga lesendurna. Seni betur fer er þar úr mörgu að velja, og er þá blaðinu einkum skylt að minnast þeirra bóka, sem því hafa verið sendar i vetur til umsagnar, og fyr hefði verið talað um, ef rúm blaðs- ins og næðisstundir ritstjórans hefðu leyft. ________ Kristnisaga íslands, II. bindi. Kristnihald þjóðar vorrar eftir siða- skiftin, eftir dr. Jón Helgason biskup, er langmerkasta bókin íslenska, sem út kom á liðnu ári, og flytur svo margbreyttan fróðleik um alla menn- ingarsögu þjóðar vorrar í nærfelt 400 ár (1524—1918), að hún á er- indi í öll lestrarfjelög landsins og til allra íslendinga, sem unna sögulegum fróðleik. Eins og kunnugt er hefir dr. J. H. áður ritað almenna kristnisögu í 3 bindum (prentuð 1912, ’14 og ’17) og Kirkjusögu Islands á dönsku í 2 bindum (1923 og ’26), og nú hefir hann með þessu bindi lokið miklu stærri og efnismeiri kristuisögu Is- lands, alveg fram að síðustu árum, — er það í raun og veru þrekvirki, þegar litið er á öll þau störf, er fylgja biskupsembættinu. í Kirkjusögunni dönsku er fjöldi mynda, en engar í þeirri íslensku, því miður, bókin þá ef til vill orðið of dýr, ef þær hefðu verið teknar með. Annars er íslenska Kirkjusagan alveg sjálfstæð og flytur fjölmargan fróðleik, sem þorra manna er lítt kunnugt um áður. Þessu síðara bindi skiftir höf. í 6 aðal-kafla, er hann nefnir svo: I. Euangeliskt kristnihald hefst, (1524 —1550). — Er þar siðabótarsagan sögð á 80 bls., og rjettilega á það bent að lokum, að siða- breytingin hafði bjerlendis miklu fremur rifið niður en bygt upp, svo að áhrifin urðu ekki æskileg fyrst í stað. II. Evangeliskt kristnihald algerist (1550 — 1630). — Er þar meðal annars rækilega sögð saga Guð- brandar Hólabiskups, merkasta biskups Norðurlands eftir siða- bót. III. Kristnihald rjelttrúnaðarlimabilsins I. (1630—1685). — Þar mætast undarlegar andstæður: hjátrú og galdrabrennur annars vegar, og hins vegar endurvakning íslensks bókmentalífs, stundum jafnvel hjá sama manni (t. d. Páli pró- fasti Björnssyni í Selárdal), og þar er meðal annars sagt frá Brynjólfi Sveinssyni biskup og Hallgrími Pjeturssyni. IV. Kristnihald rjetltrúnaðartímabilsins II. (1685 —1741). — Par bera þeir nafnar Jón biskup Vídalín og Jón biskup Árnason höfuð og herðar yfir aðra starfsmeon kirkjunnar. — Hólastól fer hnign- andi, þrátt fyrir bókagerð Sleins Hólabiskups. V. Tilraunir til umbóta á kristni- haldinu (1741—1802). — Þar er meðal annars betur sagt frá störfum Ludvig’s Harboe hjer- lendis en nokkru sinni hefir verið áður gert á íslensku. VI. Kristnihald niljándu aldar fram til vorra tima (1802 —1918). — Þar er sá kaflinn, sem nærri því er mestur vandi að segja frá í kirkju- sögu, einkum síðustu 30 árin, þar sem bæði höf. sjálfur og margir aðrir núlifandi menn eiga svo mikinn hlut að máli, og sagan eðlilega ekki búin að skera úr ágreiningsmálum. En yfirleitt er óhætt að segja að sú frá- sögn hafi tekist vel, enda þótt um sumt verði ágreiningur.

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.