Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 14.05.1928, Síða 6

Bjarmi - 14.05.1928, Síða 6
126 B J A R M I Ör blöðum frú Ingunnar. María Louise Dahl, segir frá. Framh. _____ »Elsku litlu stúlkurnar mínar, Ví- bekka og Birgitta. Pað er svo erfitt að skrifa til ykk- ar meðan þið eruð svo ungar og skiljið ekki það, sem jeg vildi skrifa um. Jeg hefi þess vegna hugsað mjer að þið læsuð ekki þetta brjef fyr en þið eruð orðnar svo stórar stúlkur að þið skiljið það, sem jeg skrifa ykkur. Mig langar til þess að gela skrif- að brjef, sem þið gætuð litið í við og við siðar á æfinni. Það er von mín að jeg geti orðið ykkur til stuðn- ings í lífinu á þenna Jhátt, þótt jeg sje ekki lengur hjá ykkur niðri á jörðinni. Fyrst og fremst vildi jeg segja ykk- ur hve vænt mjer þykir um ykkur báðar, en það munuð þið ekki skilja fyllilega fyr en þið eruð sjálfar orðn- ar mæður. En hvað svo sem fyrir ykkur á að liggja í lifinu, þá veröið þið að muna að kærleikur mannanna er lítilsvirði móts við kærleika Guðs. Bestu, óeigingjörnustu og göfugustu tilfinningar mannanna eru að eins dauft endurskin af kærleika Guðs. Hafið þetta hugfast og gleymið því aldrei. Á þraulastundum er það óumræði- lega mikil líknsemi að geta hallað sjer að vissunni um að Guð er kœr- leikur. Það er vissulega sannleikur. Eti þær stundir koma í lffi hvers manns, ykkar eins og í mínu lífi, að við þorum tæplega að treysta þessu og getum ekki fundið neina hvíld I því. Pannig var mjer innanbrjósts um skeið í sjúkralegunni — alt var að hrynja í kring um mig — en nú hefi jeg fundið frið og hvíld aftur, annars gæti jeg ekki tekið dauðan- um ineð jafnaðargeði. Jeg veit: að lögmál kærleikans er fyrst og fremst i Guði og frá Guði, eins og mamma mín sagði einhverju sinni, og þess vegna veit jeg að hann mun annast ykkur báðar, litlu dæt- urnar mínar, og hann föður ykkar. Jeg veit að hann mun aldrei sleppa ykkur og enginn mun geta hrifið ykkur frá honum. — En það er í ykkar vald selt, hvort þið leitið frá honum sjálfar — en jeg vona að það komi aldrei til — ó, þó þið kynnuð að hverfa frá honum um stund — það gera víst flestir — þá snúið aft- ur við, hverfið til hans aftur hvernig svo sem þá stendur á högum ykkar. Kærleikur hans er svo mikill að hann getur fyrirgefið og gleymt, og náð hans er takmarkalaus — munið það, elsku dæturnar minarl Vibekka mín, meðan jeg varheima sagðir þú þrent, sem gfoddi mig mjög mikið, og jeg hefi beðið algóðan Guð að gefa að sama hugarfar og barns- lega lundernið, sem faldist í þessum orðum, megi varðveitasl með þjer og það komi einnig í ljós hjá henni Birgiltu litlu, er hún verður stærri. Þú manst eftir því að við ókum stundum út litla ljettivagninum með litla íslenska hestinum, honum Brún, fyrir. Þá var það einu sinni er veðr- ið var sjerstaklega golt, aðþúsagðir: »Mamma, eigum við ekki að þakka Guði fyrir góða veðrið?« Jeg vildi óska að þú þakkaðir á sama hátt fyrir all sem kemur fram við þig á lífsleiðinni og taka öllu sem að höndum ber sem gjöf frá Guði. Það mundi verða þjer til sluðn- ings og forða þjer frá mörgu illu. Ef maður hugsar þannig, þá mink- ar sjálfbyrgingsskapurinn og manni verður það Ijóst að allar góðargjafir

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.