Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 14.06.1928, Side 3

Bjarmi - 14.06.1928, Side 3
BJARM I 139 hvað fræðst um hann, getur verið í efa um það að dauðaslund hans er áhrifa hæðsta stund jarðllfs hans. Og það má virðast augljóst að einskis manns dauðastund hefir orðið svo áhrifarík fyrir mannkynið. Altaf fjölga miljónirnar, sem öðlast hugsvölun, styrk og krafta við íhugun um dauða hans, og þvf lengur sem tíminn líður frá hans áhrifariku dauðastund, þeim mun meira er afl áhrifa Krists á sálir mannanna, er á jörðunni búa. Og ef vjer berum nú dauða Jesú og áhrif hans á jarðlifið eftir að hann hafði verið krossfestur saman við dauða ýmissra annara mikil- menna og áhrif þeirra á jarðlífið eflir dauðann, þá sjáum vjer að hann er í þessu efni einstæður, vegna þess hve hann einnig hjer er meiri öllum miklum. Vjer sjáum med öðrum orð- um, að Jcsús fæðist fyrst fullkom- lega sem frelsari til jarðarinnar þegar liann deyr. Dauðastund Krists frá jarðlífinu er fæðingarstund til jarðlífsins. Nemið staðar við þessa hugsun: Dauðastund jrá jarðlífinu, — jœðingarstund til jarðlifsins. Eigi mælum vjer í ráðgátum, heldur tölum vjer um staðreyndir. Sjá, hve faguit er þegar kvöldroðinn og morgunroðinn mælast. Jesús deyr og fæðist á samri stundu til jarðarinnar til þess að vaka yfir mannkyninu. Dánarstundin er fæð- ingarstund. — Þetta er skilningur vor á orðunum. Það er fullkomnaö. Með krossdauðanum er Jesús fullkomlega fæddur til þess að vera frelsari mann- anna. Hann friðþægir fyrir syndir vorar, þjáist vor vegna. Líður saklaus fyrir seka. iiÞað er fullkomnaða, þýðir: nú er fórnin fullkomnuð. Nú hefi jeg gefið mannkyninu þá gjöf, sem írelsar það. Jeg hefi fæðst á jörðina og tekið á mig þær hörm- ungar og þjáningar og dauða, sem frelsar mennina frá hörmungum og þjáningum og dauða. Horfið á þessum heilaga degi elsk- unnar á Jesú Iírisls alblóðuga lík- ama, sjáið hans elskandi, útbreidda miskunnar blóðfaðm, og heyrið orð- in: Það er fullkomnað. — Fullkomin fórn er færð fyrir þig, svo þú getur öðlast lífið. — Vegna þinna synda og til þess að frelsa þig frá afleið- ingum þeirra, hefir frelsari þinn nú tæmt bikar myrkurs og dauða. það er fullkomnað. Krislur er dáinn í vorn stað. Friðþægingarkraftur fórn- ardauða Jesú Iírists frelsar þig. — Er jeg þá að halda fram hinni gömlu og elstu kenningu kristninnar um fiiðþægingu, endurlausn og sáttagerð, sökum dauða Jesú Krists. Halda því fram vegna þeirrar fórnar, sem Kiist- ur færði á Golgata öðlist maðurinn fyrirgefningu syndanna, er hann hefði eigi með öðru móti eignast getað? Já, því er jeg einmitt að halda fram eins og stendur í spádómi Jesaja: »Hann var særður vegna vorra synda og kraminn vegna vorra misgerða, hegningin, sem vjer höfum til unnið kom niður á honum og fyrir hans benjar urðum vjer lieilbrigðira. III. Nú langar mig að sýna fram á hvernig hjer er alrikjandi lögmál fórnarinnar, lögmál, sem vjer öll þekkjum ósköp vel, ófrávíkjanlegt lögmál orsaka og afleiðinga. Að einn maður getur dáið jyrir annan og þannig frelsað liann frá dauða, myrkri og synd. — Og í raun og veru er oss fórnardauði Jesú eigi óskiljanlegri, en fórnarlögmál lifsins og lífið sjálft. Að Jesús frelsar oss með dauða sín- um, frelsar alt mannkynið, er eigi rof á neinum lögmálum, heldur full- komnun þess fórnaranda er ríkir i

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.