Bjarmi

Volume

Bjarmi - 15.08.1928, Page 8

Bjarmi - 15.08.1928, Page 8
176 BJARMI Dýrri kirkjusögu, eftir Ivar Velb, prýðilega skrifuð. með fjölda góðra mynda, alt eftir bestu Dýjustu heim- ildum. Hún verður 25 hefti í stóru broti, og kostar hvert 1 kr. norska. Ágæt í lestrarfjelög. Ennfremur: Skáld- söguna »Sin Mors Daltern eftir Anny le Feuvre, (2,50 kr.) og Stúdentaer- indið: Hver dags Kristendom eftir H. Höeg (30 aura). f — =3\ Hvaðanæfa. L J Helma. Presta- og sóknarnefndarfundur- inn almenni i Reykjavik, veröur i sið- ustu viku sumars, eins og að undanförnu. Allir starfsmenn safnaðanna, leikir og lærðir, sömuleiðis 2 fulltrúar frá hverju kristilegu fjelagi lútesku eru velkomnir, jafnt þótt ekkert sjerstakt fundarboö komi til þeirra. — í september-blöðum Bjarma verður væntanl. unt að segja nánar frá dagskránni. Á fundinum i fyrra var 3. manna nefnd kosin til að útvega gestum dvalarstað i Reykjavik, meðan fundurinn stendur. Nefndarmennirnir eru: Jóhannes Sigurðs- son, forstöðumaður sjómannastofunnar, Sigurður Halldórsson, trjesmíðameistari, Pingholtsstræti 7, og Sigmundur Sveins- son, barnaskólanum. Ættu þeir, sem óska milligöngu þeirra, að snúa sjer til þeirra ekki síðar en fyrir lok septembermánaða. Eins er áríðandi að þeir, sem mál vilja flytja á fundinum, skrifi ritstjóra Bjarma um það sem allra fyrst, svo að unt verði að ætla þeim hæíilegan tíma, þegar dag- skrá verður samin. Sra Fr. Friðriksson fór að beiðni Ungmennafjelaga og tilhlutun prestafje- lagsins til Austfjarða í júni, og flutti mörg erindi og ræður þar eystra. Sra Porsteinn Briem fór i júní landveg til Raufarhafnar og til baka aft- ur til prestastcfnunnar og prjedikaði víða i þeirri för. Ólafur Ólafsson kristniboði kom til Reykjavíkur að norðan, seint í f. m. Hann flutti erindi um kristniboð á presta- stefnunni á Hólum og annað vfgsiudaginn, fyrir almenning, að tilhlulun sra Arnórs i Hvammi, á Sauðárkrók, Miklabæ i Blönduhlíð, Akureyri og Siglufirði, auk þess flutti hann ræður i báðum þeim kaupstöðum. í ágúst verður hann í Borg- arfirði og fer væntanl. þaðan til Dalasýslu og lengra vestur á bóginn. í Húsavik keptu þrír guðfræðikandi- datar um prestakallið. Hlaut Iínútur Arn- grímsson 257, Jakob Jónsson 204 og Por- móður Sigurðsson 16 atkv. Sá fyrsti því iöglega kosinn. Pingvallaprestakail er nú lagt nið- ur um hríð, þótt alþingi afgreiddi ekki frumvarpið þar að lútandi. Er sra Hálf- dán Helgason settur til að þjóna Ping- völlum, en sra Guðmundur Einarsson Úlfljótsvatni. Báðir búa þeir »á Mosfelli«, þótt langt sje á milli, annað í Mosfells- sveit og hitt í Grímsnesi. Erlendis, Kirkjufjelag lúteskra landa vorra vestan hafs hjelt ársþing sitt í Upham í Norður-Dakota 20.—24. júní s. 1. Vegnar þvi vel, að því fráteknu, að prestar þess eru altof fáir, ekki nema 12 þjónandi prestar, en söfnuðir 55, flestir eru þeir að vísu ærið smáir. — Tala fermdra meðlima þess eru um 5800; en margt isl. nutansafnaða fólk« sækir mess- ur og biður um »prestsverk«, og presta- köllin sum eru afar víðlend. — Kirkju- þingið rjeð sra Jóhann Bjarnason í Ár- borg árlangt sem ferðaprest eða til heima- trúboðs. Ekkert smáræði eru fjárframlög þess- ara 5800 safnaðarfólks til kirkjumála. Ár- ið 1936—27 (talið milli kirkjuþinga) voru þau til safnaðaþarfa heima, fyrir samtals $ 30816, en þess utan til Jóns Bjarnason- ar-skóla $ 8237, til Elliheimisins Betel $ 4704, til kristniboðs $ 1255, til heimatrú- boðs $ 704, og í alm. kirkjufjelagssjóð $ 473, Verður það um $8 á hvern fermdan mann til kirkjulegra mála. Útgefandi: Sigurbjörn Á. Gíslason. Prentsraiðjan Gutenberg,

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.