Bjarmi - 15.08.1928, Blaðsíða 8
176
BJARMI
Dýrri kirkjusögu, eftir Ivar Velb,
prýðilega skrifuð. með fjölda góðra
mynda, alt eftir bestu Dýjustu heim-
ildum. Hún verður 25 hefti í stóru
broti, og kostar hvert 1 kr. norska.
Ágæt í lestrarfjelög. Ennfremur: Skáld-
söguna »Sin Mors Daltern eftir Anny
le Feuvre, (2,50 kr.) og Stúdentaer-
indið: Hver dags Kristendom eftir H.
Höeg (30 aura).
f — =3\
Hvaðanæfa.
L J
Helma.
Presta- og sóknarnefndarfundur-
inn almenni i Reykjavik, veröur i sið-
ustu viku sumars, eins og að undanförnu.
Allir starfsmenn safnaðanna, leikir og
lærðir, sömuleiðis 2 fulltrúar frá hverju
kristilegu fjelagi lútesku eru velkomnir,
jafnt þótt ekkert sjerstakt fundarboö komi
til þeirra. — í september-blöðum Bjarma
verður væntanl. unt að segja nánar frá
dagskránni.
Á fundinum i fyrra var 3. manna nefnd
kosin til að útvega gestum dvalarstað i
Reykjavik, meðan fundurinn stendur.
Nefndarmennirnir eru: Jóhannes Sigurðs-
son, forstöðumaður sjómannastofunnar,
Sigurður Halldórsson, trjesmíðameistari,
Pingholtsstræti 7, og Sigmundur Sveins-
son, barnaskólanum. Ættu þeir, sem óska
milligöngu þeirra, að snúa sjer til þeirra
ekki síðar en fyrir lok septembermánaða.
Eins er áríðandi að þeir, sem mál vilja
flytja á fundinum, skrifi ritstjóra Bjarma
um það sem allra fyrst, svo að unt verði
að ætla þeim hæíilegan tíma, þegar dag-
skrá verður samin.
Sra Fr. Friðriksson fór að beiðni
Ungmennafjelaga og tilhlutun prestafje-
lagsins til Austfjarða í júni, og flutti mörg
erindi og ræður þar eystra.
Sra Porsteinn Briem fór i júní
landveg til Raufarhafnar og til baka aft-
ur til prestastcfnunnar og prjedikaði víða
i þeirri för.
Ólafur Ólafsson kristniboði kom
til Reykjavíkur að norðan, seint í f. m.
Hann flutti erindi um kristniboð á presta-
stefnunni á Hólum og annað vfgsiudaginn,
fyrir almenning, að tilhlulun sra Arnórs
i Hvammi, á Sauðárkrók, Miklabæ i
Blönduhlíð, Akureyri og Siglufirði, auk
þess flutti hann ræður i báðum þeim
kaupstöðum. í ágúst verður hann í Borg-
arfirði og fer væntanl. þaðan til Dalasýslu
og lengra vestur á bóginn.
í Húsavik keptu þrír guðfræðikandi-
datar um prestakallið. Hlaut Iínútur Arn-
grímsson 257, Jakob Jónsson 204 og Por-
móður Sigurðsson 16 atkv. Sá fyrsti því
iöglega kosinn.
Pingvallaprestakail er nú lagt nið-
ur um hríð, þótt alþingi afgreiddi ekki
frumvarpið þar að lútandi. Er sra Hálf-
dán Helgason settur til að þjóna Ping-
völlum, en sra Guðmundur Einarsson
Úlfljótsvatni. Báðir búa þeir »á Mosfelli«,
þótt langt sje á milli, annað í Mosfells-
sveit og hitt í Grímsnesi.
Erlendis,
Kirkjufjelag lúteskra landa vorra
vestan hafs hjelt ársþing sitt í Upham í
Norður-Dakota 20.—24. júní s. 1.
Vegnar þvi vel, að því fráteknu, að
prestar þess eru altof fáir, ekki nema 12
þjónandi prestar, en söfnuðir 55, flestir
eru þeir að vísu ærið smáir. — Tala
fermdra meðlima þess eru um 5800; en
margt isl. nutansafnaða fólk« sækir mess-
ur og biður um »prestsverk«, og presta-
köllin sum eru afar víðlend. — Kirkju-
þingið rjeð sra Jóhann Bjarnason í Ár-
borg árlangt sem ferðaprest eða til heima-
trúboðs.
Ekkert smáræði eru fjárframlög þess-
ara 5800 safnaðarfólks til kirkjumála. Ár-
ið 1936—27 (talið milli kirkjuþinga) voru
þau til safnaðaþarfa heima, fyrir samtals
$ 30816, en þess utan til Jóns Bjarnason-
ar-skóla $ 8237, til Elliheimisins Betel $
4704, til kristniboðs $ 1255, til heimatrú-
boðs $ 704, og í alm. kirkjufjelagssjóð $
473, Verður það um $8 á hvern fermdan
mann til kirkjulegra mála.
Útgefandi: Sigurbjörn Á. Gíslason.
Prentsraiðjan Gutenberg,