Bjarmi - 01.11.1928, Blaðsíða 4
228
BJARMI
Kristinn söfnuöur i Kína fyrir utan kirkju sína.
að lesa. Við byrjum því á að kenna |
þeim að lesa. — Hugsið ykkur nú
að aldraðar konur, sem aldrei hafa
um neitt annað hugsað en matar-
tilbúning og saumaskap, eiga alt í
einu að fara að læra að stafa. Okkur
finst við eiga fult í fangi með að
læra 30 bókstafi; en kristnar konur
í Kína verða að þekkja 5000 torveldar
leturmyndir, áður en þær geti lesið
Nýja testamentið sitt. Það er ekki
hlaupið að því. — Alveg er þó furða
hvað fljótar þær eru að læra að lesa,
sjeu þær orðnar höndlaðar af Kristi
og vilji um fram alt þekkja hann.
Því það er eins og gömul kona sagði
einu sinni: »Nú fer jeg að skilja
þaö, að Jesús getur hjálpað manni
að muna erfiðustu leturmyndirnar«.
Námsskeið eru við og við haldin
á kristniboðsstöðvunum, til að kenna
konum að lesa og segja þeim til í
kristnum fræðum. Námsskeiðin vara
stundum heilan mánuð. Konunum
skiftum við í deildir, eins og i skóla
væri, eftir því hve langt hver einstök
er á veg komin. Námsgreinarnar eru:
Lestur, bibliusögur, kver, biblíunám
og söngur. — Einnig er árlega stofnað
til sjerstakra námsskeiða fyrir kven-
trúboðana kínversku. Er það í þeim
tilgangi gert, að þær uppbyggist í
sameiningu, afli sjer meiri þekkingar
á ritningunni og reyni að skilja verk-
efnin sem þær hafa með höndum,
og verði sem allra færastar til að
starfa að þeim.
Að boða kínverskum konum fagn-
aðarerindið, með þessu móti, er auð-
vitað aðal-starfið, sem kven-trúboð-
unum hefir verið falið. — En þvf
næst verður maður að geta skólanna.
Eigi kínverskar stúlkur að fá að fara
•f skóla, þá verður að koma á fót
sjerstökum skólum fyrir þær. Það
hefir verið gert a. m. k. á aðal-
kristniboðsstöðvunum öllum. Kven-
trúboðarnir hafa eftirlit með þeim;
annars eru kenslukonurnar allar kín-
verskar.
Þessir skólar eru jafnframt barna-
heimili að nokkru leyti; meðgjöf