Bjarmi - 01.11.1928, Qupperneq 5
B J A R M I
229
með 2 stúlkum hefir komið hjeðan
frá íslandi.
150 nemendur hafa verið árlega
í stærsta stúlkna-skólanum í Laoho-
kow. Þar er nú einnig kenslukvenna-
skóli og miðskóli kvenna.
I þriðju starfsgrein kristniboðsins,
liknarstarfinu, tekur kven-trúboðinn,
eins og gefur að skilja, mikinn þátt.
Neyðin, fátæktin og sjúkdómarnir er
svo mikil í Kína, að nærri ótak-
markað verkefni bíður hjúkrunar-
kvenna kristniboðsins þar. Pegar
veikindi eða önnur vandræði ber að
höndum er oftast leitað tii kristni-
boðsstöðvanna. Og jafnframt því sem
við þá reynum að ráða bót á tíman-
legri neyð manna, notum við öli
tækifæri til að hjálpa þeim einnig í
andlegum efnum, segja þeim frá Jesú,
sem getur læknað bæði sál og líkama.
Um borð í skipinu, sem við kom-
um með til íslands, var jeg spurð:
»Er nokkurt gagn í að boða heið-
ingjunum fagnaðarerindið? Eða verð-
ur nokkur mismunur á heiðnum
mönnum og kristnum?« — Ef til vill
spyrja fleiri þannig.
Breytingin er venjulega aug'.ýni-
legri hjá konum heldur en körlum,
sem snúast til kristinnar trúar.
Kristindómurinn opnar þeim alveg
nýjan heim og kemur þeim i skiln-
ing um að þær, ekki síður en karl-
mennirnir, hafi ódauðlega sál, og að
í Guðs angum hafi líf þeirra engu
minna gildi. Áður snerust allar þeirra
hugsanir um daglegu störfin á heim-
ilunum; en nú verður sú breyting á,
að sjóndeildarhringurinn vikkar; alt
er orðið nýlt. Það kemur svo
áþreifanlega i ljós, i andlitsdráttun-
um, i klæðaburði þeirra og allri
framkomu.
Jang-gú-njang hjet kona vinnu-
mannsins á kristniboðsstöðinni i
Tengchow. Hún var kvenvargur með
afbrigðum, sem öllum stóð stuggur
af. Menn hugðu hana vera djöfulóða.
— En svo fjekk hún að heyra gleði-
boðskap Jesú. Og hann náði fljótt
tökura á henni. Hún fór að leita
Droltins f hjartans einlægni og öðl-
aðist að lokum frið og frelsi Guðs
barna. Siðan hefir ekki Jang-gú-njang
verið sjálfri sjer lik, hún er óþekkjan-
leg, Nú er hún söfnuðinum skínandi
ljós og sönn blessun.
Siðuslu mánuðina, sem við vorum
í Kina, skall styrjöldin á. Kringum
miðbæinn allan eru há virki og sat
mikill her um hann i margar vikur.
Kristniboðsstöðin er fyrirutan borgar-
virkin.
Tveir bræður Jang-gú-njang voru
inni lokaðir i miðbænum, heiðnir
menn báðir. Á samkomunnm bað
hún okkur æfinlega að biðja fyrir
þeim, ekki þó um það fyrst og fremst
afi þeir kæmust lífs af, heldur að
þeir sneru sjer til Guðs, svo að sálir
þeirra frelsuðust. — Henni hafði
skilist hvað lífið er lítils virði, fyrir-
geri maður sál sinni.
Já, það er gagnlegt að boða heið-
ingjunum fagnaðarerindið. f*ví »fagn-
aðarerindið er kraftur Guðs til hjálp-
ræðis« fyrir alla, sem veita því mót-
töku. Herborg Ólafsson.
Akraneskirkja hefir nýlega hlotió
höfðinglega gjöf. Vinur hennar, ónafn-
greindur, hefir látið raflýsa kirkjuna
prýðilega, á sinn kostnað, og varið til
þess um 3000 kr.
Hjallakirkju i Ölfusi vigði biskup
dr. Jón Helgason nýlega. Vígsludaginn
færðu henni ýms fyrv. og núver. sóknar-
börn hennar margar góðar gjafir, þar á
meðal vandað orgel.
Ritstj. nTlmansí hefir farið mjög
kuldalegum orðum um óskir manna um
meira sjalfsforræði handa þjóðkrkjunni,
og jafntramt um prestasljett landsins. —
Veröur nánar vikið að þvi efni siöar.