Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.11.1928, Qupperneq 19

Bjarmi - 01.11.1928, Qupperneq 19
I B J 4 R M I að ræða um það, er jeg áður taldi mesta meinið. Þjer munið söguna af þeim systr- unum Mörtu og Maríu. Þegar Jesús \ar gestur þeirra, var Marta önnum kafin við mikla þjónustu og með allan hugann við hússtörfin. Við þá tilhugsun, að hún sá ekki út yfir það, sem hún þurlti að gera, gramdist henni ósköp eðlilega að sjá syslur sina sitja auðum höndum við fætur Drottins, og fást ekki um annað en hlusta á hann. Henni þótti annað brýnna kalla að þá stundina, og hafði orð á því við Jesú, hvort hou- um sýndist ekki að systur hennar bæri heldur að gegna heimilisstörf- unum en híma svona verklaus. Vjer hefðum víst tekið undir með henni. En Drottinn svaraði og sagði við hana : »Marta, Marta, þú ert ábyggjufull og mæðist í mörgu, en eitt er nauðsyn- legtö. Mjer er nær að halda, að fáar guðspjallasögurnar varpi gleggra ljósi yfir hugsun alls alrnennings en þessi. Frændur Mörtu eru langfjölmennastir í söfnuðunum. Bæði ungir og gamlir eru á hverjum degi frá morgni til kvölds með allan liugann við bús- störfin, — heimilisverkin, — við það, sem þeim þykir þurfa til þess, að þeim líði eins vel og frekast er kostur í líkamlegum efnum. Svo mjög virð- ist þeim þær annir kalla að, og vera svo óhjákvæmilegar, að þeir telja ekki einungis nauösynlegt að gegna þeim, heldur finst sem þeir svíkist um og eyði tlmanum til ónýtis, snúi þeir huganum frá þeim og sökkvi sjer, eins og María, niður t hugleiðingar um þau efni, sern eru algerlega andleg. Það er kanske rangt að segia, að vjer fyrir búsáhyggjum gleymum hinu eina nauðsynlega. Hilt mun rjettara, að taka svo til orða, að oss er farið eins og Mörtu: Vjer skiljum ekki 243 hvað er nauðsynlegast. Svo kynlega sem það kann að láta i eyrum, er sannleikurinn sá, að sakir áhuga vors og áke/ð i að vinna það nauðsgnlega, látum vjer það nauðsynlegasta ógert. Allir vita, að allra hluta vegna ríður oss mest á að vita hvað er nauðsyn- legast. En skyldi ekki fiestum í söfn- uðunum vera svo farið, að prestarn- ir verði að leggja aðal-áhersluna á, að koma þeim í skilning um, að það sje ekki eins sjálfgefið og þeir kunna að halda, hvað það er. Jeg á viö, að presturinn fái öll sóknarbörn sin til að viðurkenna að minsta kosti þann sannleika, að það er — og verður — hægt, að gera eina kröfu til hins rammasta efnishyggjumanns, og hún er sú, að hann taki til greina þann möguleika, að hann sjálfur, eða raun- hyggjumaðurinn, hafi ekki rjett fyrir sjer í því, að það eitt sje til, sem á verður þreifað, — heldur trúmaður- inn, sem telur heiminn sýnilega mynd hinnar æðri veraldar. Ekki einungis af því, að það sem hvorki er hægt að sanna nje afsanna, getur alveg eins verið og ekki verið til, heldur vegna þess að mörg trúaratriði eru studd af svo miklum líkum, að þær stappa nærri áþreifanlegum sönnun- um. Eða með öðrum orðum: Margt hið andlega, sem ekki verður áþreifanlega sannað, blátt áfram af því að það er óáþreifanlegt, er svo margsannaö af andlegum reynslu- sönrunum, að verði ekki höfnun þess kölluð blindni og staðreyndaneitun, þá er það áreiðanlega fávísi og fjar- stæða, að neita því sem veruleika að órannsökuðu máli. Strax og ein- hver fæst til að viðurkenna mögu- leika þessa hvorttveggja, verður hon- um Ijóst, að jafnmikill munur er á sannii guðstrú og hreinni efnishyggju sem á degi og nóttu, og að ómögu- legt er annað en »trúlaus« og trú-

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.