Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.11.1928, Page 28

Bjarmi - 01.11.1928, Page 28
252 B J A R M I hann gerði til að prýða kirkj- una. — Ýmsu er slept i þessari upptaln- ingu uppi og niðri, sem eftirtekt vekur og rifjar upp sögu siöbótar- innar, og því næst þvf, sem mjer er erflðast að lýsa með orðum, lotning- unni og þakklætinu, sem gagntekur lútherskan ferðamann i þessari kirkju. — Óljóst man jeg eftir þvl, að lotning mikil var mjer i hug, er jeg kom, 7 ára gamall, i fyrsta skifti í Hóla-kirkju i Hjaltadal, áður en hún var rúin fornri prýði sinni. Síðan hefi jeg komið i mörg hundruð kirkjur, »austan hafs og vestana, en aldrei fundið til slíkrar lotningar sem i Hallarkirkjunni i Wittenberg, nje þótt eins sárt að geta ekki varið miklu lengri tima en jeg mátti i þetta sinn, til að grannskoða kirkjuna helst hvað eftir annað. Því endurtek jeg það: Farið til Wittenberg, þjer sem ferðist utan 1 Þangað er ekki nema um 12 stunda ferð frá Kaupm.höfn, og fargjaldið smámunir samanborið við endur- minningarnar á eflir. — Enginn ætli að það sjeu ekki aðrir en »bestu vinir« evangelisk-lútherskrar trúar, sem þangað fara. í nýkomnu blaði erlendu sje jeg þess getið, að Pacelli, erkibiskup kaþólskra í Berlfn, hafi farið tit Wittenberg liðið sumar, til að skoða Lúthers-safnið og Hallar- kirkjuna. Er sagt að hann hafi furðað sig á starfsþoli Lúthers, er hann sá þar verk hans i 50 bindum i arkar- broti. Jafnframt er á það minst, að annar kaþólskur erkibiskup, P. P. Vergeris, fór til Wittenberg árið 1535, til að heyra og sjá hinn »illræmda óvin kaþólskrar kirkju«. Afleiðing þeirrar ferðar varð sú, að hann tók sjálfur evangeliska trú og varð síðar lútherskur prestur. — — — Frá Wittenberg til Kolding. Mánudagsmorguninn 18. júní fór- um við snemma af stað frá Witten- berg norður til Berlinar, ókum um þvera borg í bifreið milli stöðva, biðum stundarkorn eftir »lest« og fórum svo til Hamborgar. — í járn- brautarvögnum skrafa jeg helst við þá, sem mjer þykja sjerkennilegir. Og frá þessari för man jeg best eftir Spánverja, er var búsettur i Kolum- bíu í Suður-Ameríku, en kom nú frá ítaliu. Við töluðum þýsku nokkurn veginn »jafn vel« báðir, nóg til að spyijast almæltra tiðinda. Hann ljet lítið yfir Ítalíu: »Par stendur alstaðar fyrirboðið, fyrirboðið; en heima í Kolumbíu er alt frjálst«, sagði hann. Við höfðum búist við að hitta is- lenska stúlku i Hamborg, en hún var þá flutt úr borginni; en nú vorum við orðin svo vön stórborgum að vlð höfðum garnan af að horfa alókunnug á umferðina miklu á járnbrautar- stöðinni þar í borg. Við höfðum áritun 4 eða 5 kristilegra gistihúsa i Hamborg, en vissum auðvitað ekkert um hvar þær götur voru, sem þau voru við. Ókunnugum er ráðlegast í stórborgnm að spyrja enga til vegar aðra en lögregluþjóna eða bifreiðar- stjóra einkennisbúna. En þótt mjer væri það vel kunnugt, spurði jeg »svona rjett til fróðleiks« fyrsta manninn, sem fyrir okkur vaið á götunni við stöðvarnar, hvert þessara gistihúsa væri næst stöðinni. Hann svaraði því greiðlega og kvaðst skyldi fylgja okkur þangað fyrir 3 mörk. Jeg sagði það næði engri átt. þá tæki jeg heldur bifreið, og gekk frá honum, í átt til gislihússins. Hann kom að vörmu spori á eftir, og sagð- ist vel geta farið með okkur fyrir 1 mark, — og það fjekk hann, —

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.