Bjarmi - 01.11.1928, Qupperneq 29
BJARMI
253
enda var ekki nema yfir eina götu
og meðfram þrem búsum að fara.
En ekki hefði jeg kosið fylgd hans í
myrkri. — Gistihúsið var lílið, en
aðbúð svo ástúðleg eins og við vær-
um komin á vinaheimili, og alt mjög
ódýrt; jeg held langódýrasta gisti-
húsið sem við komum til í allri för-
inni.
þetta var stuttu eftir hádegi sem
við komum til Hamborgar og not-
uðurn við allan daginn til að skoða
borgina.
Clir. P. Ærö.
Morguninn eftir fórum við með
braðlest norður til Danmerkur og
komum fyrir miðjan dag til Kolding
ú Jótlandi. Var þar byrjað degi fyr
fjögra daga ársþing heimalrúboðs-
manna danskra.
Um 500 aðkomumenn voru á þvf
þingi og höfðu allir fengið ókeypis
gistingu hjá bæjarbúum, þólt þeir
sjeu ekki fleiri en Reykvíkingar, —
Hann heitir Chr. P. Ærö, heimatrú-
boðinn í Kolding, sem sá um að
koma öllum gestunum fyrir. — Mjer
þótti það eftirtektarvert, er jeg heyrði
hann segja á fundinum, að það starf
hefði verið reglulega ánægjulegt, al-
staðar gisting velkomin, hvar sem
leitað var. — Jeg hugsaði með sjálf-
um mjer: Annaðhvoit hafa Kolding-
búar meiri húsakynni en Reykvík-
ingar eða þeir eru þeim miklu gest-
risnari, þvf að varla hefði nokkur
talið það ánægjulegt verk að útvega
500 aðkomumönnum fjögra nátta
ókeypis gistingu í Reykjavík. — En
Danir eru svo gestrisnir að þetta
þykir ekki tiltökumál, enda fastur
siður við öll kristilegu þingin, þótt
mörg sjeu, að veita aðkomufólki
ókeypis beina. — Man jeg það lengst
farið, þar sem jeg hefi verið, er
Horsens-búar, og nágrenni. býstu
ókeypis 1600 aðkomna meðlimi
K. F. U. M. og K. á 3ja daga þingi
þeirra árið 1901. — Við hjónin höfð-
um tjáð Æiö komu okkar löngu
eftir fastsettan tfma, og ekkert svar
fengið vegna suðurfararinnar, svo við
bjuggumst við að þurfa að leita til
gislihúss. En það var öðru nær en
svo færi.
Á járnbrautarstöðinni í Kolding
| tók við okkur bifreið frá missiónar-
gistihúsi, og bifreiðarstjórinn sagði
að bæði brjef og símskeyti biði okkar,
en Ærö mundi vita hvar við ættum
að gista, eins og reyndist rjett. —
Við bjeldum beina leið til »þing-
staðar« í stærsta fundahúsi borgar-
innar, því að sfðdegis-fundurinn var
að byrja. — Voru óneitanlega tals-
verð viðbrigði að koma að sunnan,
þar sem við höfðum engan þekt, og
hingað, þar sem margar vinahendur
mættu okkur og eiginlega allir leið-
togarnir gamlir góðkunningjar minir.
Hefir Rjarmi áður flutt myndir
ýmsra þeirra.
Ojalir afh. Bjarma í okt. og nóv. þ. á.:
Til »Prestlaunasjóðs Strandarkii kju«
100 kr. frá Mag. Boga Th. Melsteð, N. N.
Tvískerjum 5 kr.
Til kristniboðs: N. N. Biskupstungum
50 kr., N. N Grimsnesi 30 kr., N. N. »við
Akrafjali« 50 kr., H. B. Hólmum 25 kr..
Seyðfirðingur 20 kr., N. N. 5 kr.
Til Haltgríms-sálma á kínversku: 10 kr.
frá Ólafsdal, 10 kr. frá Miðengi.
Til Hallgr.k. í Saurbæ: G. S. Ólafsdal 8 kr.