Bjarmi - 01.11.1928, Qupperneq 32
256
B J A R M I
Nokkrum dögum síðar var frú
Ingunn borin til moldar í kirkju-
garðinum hjá litlu, hvitu kirkjunni,
sem henni hafði þótt svo innilega
vænt um.
Maður hennar stóð yfir moidum
ihennar — ekki niðurbeygður og fullur
örvæntingar, eins og kvöldið er hann
hafði lesið brjefin frá henni — heldur
styrktur, og stöðugri í trú sinni en
úður. Svipur hans var hreinn og
friður í sálu hans.
Það var þakkargerð, og ekkert
nema þakkargerð, sem kom fram í
ræðu hans og bæn.
Bækur.
Æfisaga Krists, eftir Giovanni Pa-
pini. — Porsteinn Gíslason þýddi og
gafút. Kostar 10 kr í vönduðu bandi.
Papini er ítalskt skáld (f. 1881),
frægur víða um lönd. Hann var til
fárra ára svæsinn efasemdamaður,
og bækur hans lítt vinsaralegar í
garð kristindóms. Fyrir því vakti
þessi bók hans hina mestu eftirtekt
víða um kristin lönd. T. d. rak jeg
mig á i frjettum frá Indlandi, árið
eftir að hún kom út, að ókristinn
borgarstjóri gaf hana sem verðlauna-
bók, í enskri þýðingu, nokkrum pilt-
um, sem best tóku próf við trúboðs-
skóla í borg hans.
Papini hefir bersýnilega tekið
-sinnaskifti, og bók hans um Jesúm
Krist, er bæði prýðilega og skemti-
lega rituð. Pótt sumstaðar komi í
ljós skoðanir páfakirkjunnar, er bók-
in yfirleitt ágæt trúvarnarbók. —
Allur frágangur útgefandans á þess-
ari ísl. þýðingu er auðvitað í góðu
lagi. — Og það verð jeg að segja,
að mikill er sá munur að lesa þessa
,i)ók eða ýmiskonar trúmálahrærigraut
nýmælastefnanna, sem verið er stund-
um að gylla fyrir íslenskum lesend-
um. — Gefið þessa bók í jólagjöf!
y>Jólabœkurnara erlendu eru að
koma um þessar mundir. Sumarþeirra
eiga ekki annað skylt við jólin, en að
útgefendur þeirra reyna að græða á
þeim um jólin. Aðrir úlgefendur gefa
þó út ágætar kristilegar bækur fyrir
hver jól, eins og t. d. Lohse og Fri-
modt i Khöfn, Luthersstiltelsen í Oslo,
Lunde í Björgvin, Fosterlandsstiftelsen
og Diakonistyrelsen í Stokkholm. —
Frá Fosterlandsstiftelsen eru komnar:
»Julgavan« kr. 1.75., »Barnenes Jul«
60 au., »Varde Lius« kr. 2,50, »Fride-
borg« kr. 2,50, »Pá Pilgrimsstiát« 2 kr.,
»Barnetro« 1 kr. (barnasögui), »Vad
Jesus gjorde och láide« (textaskýr-
ingar sunnudagaskóla), — Frá Lohse:
»Julestjernen«, »K. F. U. M. Julebog«,
»K. F. U. K.«, »Hjemmenes, Börne-
nes og Studenternes Julebog«, auk
margra annara.
Síra Páll Ólafsson, prófastur í
Vatnsfiröi, andaðist 11. nóv. sl., rúml. 78
ára, eftir langa vanheilsu. Hann var son-
ur síra Ólafs Palssonar, fyrrum dómkirkju-
prests. Var 16 ár prófastur Strandamanna.
Pjónaöi pá Prestsbakka í Hrútafii ði, en fór
að Vatnsfirði 1901 og var par prófastur
21 ár. — Kunnugir báru honum besta orð.
Ritstjóri pessa blaðs dvaldi hjá honum 2
daga fyrir mörgum árum, og sá hann aldrei
siðar, en brjefin hans og nnafnlausu vina-
gjafirnar« til Bjarma, sýndu trúfesti hans
og ást á ákveðnu kristindómsstarfi, enda
pótt hann skrifaði einu sinni, að gefnu til-
efni, að pað tæki pví ekki að birta mynd
af sjer, nje skrifa um sig látinn, pví að
árangurinn af æfistarfinu hefði orðið minni
en hann hefði helst kosið. — Kona hans,
Arndís Pjetursdóttir Eggers, lifir mann
sinn og 11 börn peirra upp komin.
Gjnflr'til Elliheimiiisins i Rvík: 200 kr.
vjelstjóri, 5 kr. gömul kona (afh. af B. M).
Útgefandi: Sigurbjiirn Á.. Gislnson.
Prentsmiöjan Gutenberg.