Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.09.1932, Page 2

Bjarmi - 01.09.1932, Page 2
124 BJARMI ávextirnir af trú eða trúleysi þeirra, af kenningu þeirra og þreytni. Af ávöxtum þeirra fyrir líf og dauða, fyrir tíma og eilífð, skulu þeir sjálfir þekkjast. Eru þá eða verða ávextir Krists afneitenda og andlegra og veraldlegra æsinga- og umróls- manna nútímans, með allan jarðneska þekkingargorgeirinn, fegurri og hollari en ávextir sannarlega kristilegrar trúar og breytni? Fjarri fer því. Hvað á þá. að kenna börnunum, og hverju mannsbarni? 18 alda gamla Kristindóminn, sem staðist hefur allan þenna tímai, eins og klettur úr hafinu, allt öldurót þessa heims og lífs; eða þekkingu nútímans í jarðneskum efn- um, sem er eitt í dag, annað á morgun og hið þriðja hinn daginn? Jeg íyrir mitt leyti svara þessu, og veit að söfnuðurinn hjer mun h'ka gera, með því, að taka und- ir með skáldkonunni, sem í nýútkomnu riti svarar fyrir sig ýmsum nútímans ný- stefnum: »Þó austan ocj vestan œfiskeiö, þeir i'ýti með Buddlia í stafni, og sunnan og norðan svörin greið mjer segi, að allt sig jafni; jeg held mina g'ómlu, grýttu leið, og geng hana í Jesú nafni.« 1 Jesú nafni, og í krafti trúar hans, kenn- ingar og dæmis í lífi og Uauða, hafa kristn- ar manneskjur í miljónatali og lönd og lýðir, fengið »líkn í lífsstríði alda«; og þegar, er þetta líf hefuj' brugðist, getað huggað sig við eilífa lífið og fyrirheit þess; og í Jesú nafni og' krafti hans, munu enn, nú- og síðarlifandi menn og konui' standast og sigra í öllu sínu ltfs- og a'ida- stríði, svo að aftur taki bráðum að i'ofa til og hervirki hins vonda að hrynja; og í Jesú nafni v>g krafti hans mun líka land- ið vort kalda bráðum aftur vermast og frjóvgast, eigi aðeins af vorri jarðnesku sumarsól, held.ur og sól anldlega og eilífa lífsins, svo að þar af spretti fegurstu rós- ir kristilegs lífs og dýrra dygða, til yndis og nota, jafnt fyrir þetta. líf og hið til- komanda. Aldrei þurfum nje m£gum vjer því vera í vafa um, hvað á að kenna börn- unum. Að það á og má ekki kenna þeim Krists- og Guðsafneitun, ekki hatur, ríg og' róg, öfund, illvilja og rándýrshátt milli manna og- stjetta, ekki ljettúð og leikara- skap, ekki samviskuleysi og ábyrgðarleysi, ekki kæruleysi og lotningarleysi fyrir hinu andlega og eilífa, helga og háa, eða fyrir ljósum og leyndum kenningum og' sann- indum Guðs og náttúrunnar, og enga and.- lega og líkamlega ómennsku, heldur allt hið gagnstæða, eins og- hingað til hefur veriö reynt að gjöra af öllum kristnum almenningi, .eins og allra bestu menn og konur allstaðar á, öllum öldum hafa gert; eins og feður okkar og' mæður hafa gert, eins og' allir góðir feður og mæður og barna-uppalendur gera enn hjer á meðal vor, og eins og' sýnilegt er nú„ að söfnuð- urinn hjer vill gera, meðal annars með því, að viðhalda, prýða og bæta Guðshús- ið sitt og helgireitinn í kring um það, því hjer er það, sem öll börnin Guðs og' manna, eldri og yngri, mega best leita Krists og neyta trúar hans og' kenningar, til »líknar í lífsstríði alda«r og' fela, svo Guði síðast sálir sínar og sinna, að loknu lífsstríði. •— Og í Jesú nafni fullyrði jeg, að þannig muni líka albest að vera og farav og þjer og börnum þínum, kæri, litli söfnuður, best borgið til líkams og sálar. En jafnframt því, að láta börnin korna til Krists í þess- um helgidómi, geta þau líka komist til hans með því, að fara með þau, benda þeim, laða þau og leiða út í sumarnátt- úi'una, og allra tíma náttúru, inn í nátt- úru mannlegs líkama og sálar, og inn i þeirra eigin náttúru, og' kenna þeim, eins og unt er, að lesa og læra, kunna og skilja af henni öll þau heilögu sannindi, jarð- nesk og' himnesk, tímanleg og eilíf, sem Drottinn Kristur hefur skilið og túlkað best og sannast allra — og líka staðfest að eilífu — á allan hátt. — öll sönn þekk- ing er g'óð, og sjálfsögð til kenslu, eftir

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.