Bjarmi - 01.01.1936, Blaðsíða 3
B J A R M I
3
Of ungur?
KKISTILEGT HEIMILISBLAÐ
i'<tgefandi: ÚnKlr inenn í Ke.yhjavík.
Kemiii' út 1. <>j> 15. livers inánaðar.
Áskriítargjald kr. 5.00 á árl.
Gjalddagi 1. ji'mí.
Mitstjérn: Ástráður Sigursteindóis;o:i
Bjarni Eyjólfsson
Gnnnar Slgurjónsson.
Aígreiðsla Þórsgötu 4. - Sími 8504.
Áve crux, spes unica!
Kross var reistur upp á Gol-
sata. Það var merki dauðaus.
Það var merki háðungarinnar.
Það var merki, sem rúmaði í
sér ímynd allra mannlegra
kvala og svívirðinga.
Jesús var negldur á lcrossinn.
Þí breyttist merking krossins
þá varð hann merki lífsins.
Hann varð merki hinnar mestu
sæmdar. Páll postuli sagði: »Það
sé fjarri mér að .hrósa mér
nema af krossi Drottins vors
Jesú Krists. Hann varð merki
kraftar og máttar fyrir þá, sem
ofsóttir voru vegna kross Krists,
og svo varð hann sigurtákn.
»Með þessu merki skalt þú
sigra!« var opinberað Konstan-
tín keisara. Hann hóf krossinn
upp í gunnfána sinn; þá varð
krossinn hermerki fyrir þjóð-
irnar. Ki*ossinn, iifsmerki hinna
kristnu, var settur upp á Kapí-
tólium, og kunngerði þaðan sig-
ur Krists yfir heiðninni.
Hann varð svo friðarmerki og
merki hins sanna kærleika.
Hann varð merki kristilegrar
menningar og hinna sönnu sið-
gæða. Hann varð grafinn djúpt
inn í líf þjóðanna og varð þeim
merki hinnar æðstu verndar.
Hann varð æðsta merkið í tákn-
máli listarinnar og hins kristi-
lega skáldamáls. Höfðingjar ver-
aldarinnar tóku hann upp í
tignarmerki, sem þeir veittu fyr-
ir heiðurs sakir og verðleika.
Iíann varð hið tignaða merki
í mörgum þjóðfánum. Hann
varð svo voldugur í meðvitund,
manna, að um langt skeið var
hann notaður við nær því hverja
athöfn og með því merki er a.llt
helgað. Barnið fær hann á
. enni sér og brjóst í skírninni,
og yfir þeim, sem út er bor-
inn andaður, er krossmarkið
sem hinzta kveðja og tákn hinn-
ar eilífu vonar. Krossinn gnæf-
ir á guðshúsum kristinna manna
og á gröfum framliðinna. Og
orð krossins talar kröftugast
allra orða inn í sál og samvizk-
ur óendurfæddra, eins og tví-
eggjað sverð; og styrkir læri-
sveina Jesú með helgandi og
endurreisandi mætti. Kross-
táknið hefir að innihaldi allt
Lát engan Hta smáuni
augum á æsku þína, en ver
þú fyrirmynd trúaðra í
orði, S hegðun, í kierleika,
í trú, í hreinleika.
(I. Ttm. 4, 12).
Það kemur fyrir í starfi, sem
rekið hefir verið mörg ár, að
hinir eldri þreytast og lýjast í
starfinu og verða að leggja nið-
ur þau trúnaðarstörf, sem þeir
hafa rækt með samvizkusemi og
árvekni um mörg liðin ár, og
þá taka aðrir yngri við af þeim.
Stundum eru þeir ef til vill of
ungir til þess að geta fyll.t upp
hið auða skarð að fullu. En þeir
fengu köllunina, — tóku það
sem kÖllun og ganga að hinu
nýja starfi með hrifningu þeirri
og áhuga, sem æskunni er eig-
inleg. Sé æskumaðurinn höndl-
aður af Kristi, verður heilög
glóð og hrifning yfir starfinu,
sem þá verður innt af hendi,
Æskumenn eru flestir ákafir að
eðlisfari og1 öll íhaldssemi er
þeim, á vissu skeiði æskuár-
anna, sérstaklega. ógeðfelld.
Þannig vill, það oft verða, þeg-
ar ungir taka við af hinum
eldri, að vatnið gárast — ný
stefna er tekin upp, ný starfs-
aðferð eða fyrirkomulag reynt.
En takmarkið er hið sama
Æskumaður, höndlaður af
Kristi, hefur aðeins eitt tak-
mark. Og aldrei Ijómar það
skærar fyrir hugskotssjónum
hans, en einmitt í geislaglóð hins
fyrsta kærleika.
En þá getur það einkennilega
og undarlega, en þó reyndar
eðlilega, ef alls er gætt, komið
fyrir, að ýmsir hinna eldri í
starfinu verði allt í einu skelk-
aðir yfir æskumönnunum, sem
hætta sér inn á nýjar brautir,
ungir og óreyndir eins og þeir
eru. Þá kemst allt á loft: Mörg
vitleysan hefir nú verið perð
í starfinu, en þetta tekur þó út
yfir allt annað. Allt hefir geng-
ið vel og sæmilega hingað til
þó svona hafi ekki verið látið
frelsisráð Guðs. Allur leyndar-
dómur náðarinnar er í því fólg-
inn. — Krossinn gnæfir á bjargi
frelsisins, og hver sá, er nær
föstu taki um krossinn á bjargi
aldanna, honum er að fullu
borgið. Guð hefir gefið oss
hinn heilaga kross sem ský-
stólpa. um daga og eldstólpa um
nætur, til þess að vísa oss leið
á dimmum vegum veraldarinn-
ar. Það er merkið, sem veit-
ir sigur þeim, sem fylgja því af
öllu hjarta. Það er vor einasta
von. ®g vil ekki hrósa mér af
öðru en krossi Krists.
Svo fylgjum því merki og
skelfumst eigi.
Fr. Fr.
c. s. frv. — og svo hrista þeir
höfuðin og ræða um og hvíslast
á sín á milli um byltingu og
ófarir, sem í vændum sé, ef
þessu fari fram. Þarna sjáist
það hvernig fari, þegar hinir
ungu taki við stjórninni!
Ungu mennirnir, sem hófust
handa, gagnteknir af áhuga og
hrifningu, skilja hvorki upp né
niður í þessu vantrausti og tor-
tryggni, kulda og andstöðu. Sé
þannig ástatt um þig, þá skalt
þú minnast orðanna, sem Páll
skrifaði Tímóteusi, þegar hann
átti að starfa fyrir frelsara sinn
án aðstoðar PáJs: »Lát engan
Uta smáum augum á œshu Jnna,
en ver þíi fyrirmynd trúaðra í
orði, hegðun og kærleika, í trú
og hreinleika!« Tortryggnin, sem
þér finnst svo auðmýkjandi fyr-
ir þig, og allar aðfinnslurnar,
sem þér finnast ástæðulausar
og óskiljanlegar, eiga einmitt
að tengja þig fastar og innileg-
ar frelsara þínum, í bæn til
hans um að þú bregðist aldrei
því trausti, sem til þín er bor-
ið. I samlífinu við Jesú munt
þú verða: »fyrirmynd trúaðra í
orði og hegðun, í kœrleika, tra
og hreinleika!« Reyndu svo að
láta þér skiljast það, að þetta
snertir ekki beinlínis þig sjálf -
an, Minnstu þess, að hinir
»eldri« voru líka einu sinni ung-
ir, og hafa ef til vill um langt
skeið lífs síns fórnað starfinu,
sem þú nú hefir tekið við, því
bezta, sem þeir áttu. Það þarf
rnikla. mannfega göfgi til þess
að geta látið hinum yngri þetta
allt eftir án nokkurrar beiskju.
Þetta, að hið gamla verður að
víkja fyrir hinu nýja og unga,
er hið ósveigjanlega lögmál lífs-
ins, það sjáum vér í náttúrunni
umhverfis oss á hverju hausti
og vori, og þannig fer einnig í
rnannlífinu; en það getur oft
verið erfitt og sárt að beygja
sig fyrir því lögmáli. En eins
: ber að gæta í þessu, og það verð-
: um vér að reyna að skilja, að
það er ekki beiskjan ein yfir því
ao leggja niður kært starf, sem
veldur tortryggninni og kuldan-
! um, sem hinir yngri verða
I stundum fyrir, heldur og ótti við
það, að starfið, sem þeim er annt
um og kært, fari í handaskol-
um og njóti ekki þeirrar um- !
hyggju og nærgætni, sem nauð-
i syn er á, eigi allt að fara vel
! eins og áður.
Bið þú Jesúm að ala þig þann-
ig upp í starfinu, að þú sért
hlýðinn þjónn hans, sem starf- !
ir í trú og trausti til hans, svo
að þú þegar sá dagur kem-
I ur, að þú leggir starf þitt í hend-
ur yngri starfsmanna getir
j verið öruggur í þeirri viss.i, a.ð |
j Guð sé með einnig þá, og það I
er Jumn en ekki þú, sem hjálp-
ar starfinu lengra áleiðis. Enff-
inn starfsmaður í Guðisríki verð-
ur »óþarfur« svo lengi sem hann
lifir í heiminum, þrátt fyrir
það, þó að hann láti yngri starfs
krafta taka við af sér. Guð
þarfnast líka einhverra, sem
standa á bak við fylkingarnar.
þó að ba,ráttan sé þar ef til vill
ekki eins hörð og í fylkingar-
brjósti. Og þjónar Guðs verðum
vér til seinustu stundar, jafnt
fyrir því, þó að ajlir hafi gleymt
því, hvort það var ég eða þú,
sem var formaður, sveitarstjóri
eða meðlimur í stjórn.
Gagnrýni og aðfinnslur verð-
um vér allir að þola, bæði rétt-
mætar og óréttmætar. Taktu
réttmætu aðfinnslurnar til þínog
minnstu þess, að hinir eldri eru
búnir að lifa lengur en þú og
eiga alla lífsreynsluna, sem þig
skortir. Taktu á móti öllum góð-
um ráðum, sem þér eru gefin,
með þakklæti — og þú munt
komast að raun um, að einn góð-
an veðurdag er öll misklíð miUi
eldri og yngri horfin úr félagi
þinu. Öréttmætu aðfinnslurnar
skipta þig engu, ef þú aðeins
stendur ávallt frammi fyrir aug-
liti Guðs; þá má hver segja það,
sem honum sýnist. Þeir skulu.
einhverntíma sanna það, að þeir
höfðu á röngu að standa, Það
eru dæmi til þess, að ungir
menn urðu fyrir svo mikilli
gagnrýni og aðfinnslum, að
þeim fannst þeir ekki geta hald-
ið lengur áfram starfi sínu.
Minnstu þess, að það er freist-
ing! Þú mátt aldrei láta mann-
legar útásetningar drepa úr
þér kjarkinn! Það eina, sem þú
mátt óttast — hið eina, sem þú
átt, að leggja eyrun við — eini
domurinn yfir starfi þínu, sem
þú átt að óttast og þó gleðjast
yfir, er dómur Guðs. Og hann
notar allt aðra mælisnúru en
mennirnir. Hann lítur ekki á út-
reikninga og glæsilegar tölur.
Hann leitar ekki ávaxtanna á
sama hátt og vér mennirnir, því
að hann sér inn í hjartað.
Og svo að endingu; Ef þú
hefir tekizt á hendur starf í hin-
um víðáttumika víngarði Guðs,
hversu smátt sem það kann að
vera, þá minnstu þess, að þý
ert þjónn Guðs. Og þá skalt þú
hljóta hin dýrðlegu orð Jesaja
spámanns á erfiðustu stundum
starfs þíns, þá er þér finnst, að
þú sért að gefast upp:
»Engin vopn, sem smíðuð
verða á móti þér, skulu verða
.sigurvænleg, og allar tungur,
sem upp rísa gegn þér til mála-
ferla, skalt þú kveða niður.
Þetta er hlutskipti þjóna Drott-
ins og það réttlæti, er þeir fá
hjá mér, segir Drottinn.«
Gakk þú svo djarfmannlega
að hinu nýja starfi þínu í ör-
uggri trú á hjálp Guðs.
(Lausl, þýtt Sj.).