Bjarmi - 01.05.1936, Blaðsíða 2
34
B J A R M I
Sigurbjörns Á. Gíslasonar við
■ Trúmálavika, stúdentafélags-
ins, sem hér va.r í bænum fyrir
14 árum, endaði með fjölsó.ttu,m
umræðufundi í Nýja Bíó, eins
og ýmsir muna, þótt við þessar
umræður séu ekki nema tveir
viðstaddir nú, sem virkan þátt
tóku í þeim fundi. Annar þeirra
var fundarstjóri þá og er það
einnig nú.
Við þessar fyrri umræður
skiptust menn aðallega í tvo
andstæða flokka, annarsvegar
vinir »eldri stefnunnar« eða
biblíustefnunnar, en hins vegar
voru vinir spiritisma, guðspeki
og svonefndrar nýguðfræði.
Enginn hinna mörgu ræðu-
manna þá mælti guðleysi nokkra
bót, — og, ef ég man rétt, var
alls ekki mipnzt á guðleysi.
Hlustendur að trúmálaerind-
um útvarpsins undanfarið hafa.
heyrt, að nú er aðstaðan orðin
öll önnur.
Enda þótt fulltrúar allra fyrr-
nefndra stefna hafi látið til sín
heyra í útvarpinu, hafa þeir
fremur lítið d.eilt hverjir á aðra.
liins veg’ar var »trúleysis« erind-
ið svo hvassyrt, að allar líkur
eru til þess, að hér verði aðal-
ágreiningurinn milli guðstrúar-
manna og guðleysingja.
Vafalaust er mörgum hlust-
endum erfitt að átta sig á öll-
um þeim mörgu röddum, sem
fram eru komnar um þassi mál,
en ýmislegt ætti þó að mega læra
af þeim.
Vinum guðstrúar er hollt ait
endurskoða afstöðu sína gagn-
vart herskárri guðleysisstefnu
og íhuga jafnframt að hverju
leyti þeir geti og vilji vinna
saman gegn áhrifum hennar.
Vér heyrðum einn formælanda
hennar (G. B„) segja, að hún
mundi láta útvarpið hætta að
flytja messur jafnskjótt og hún
fengi ráðið. — Er það næsta trú-
legt, þótt annar vinur hennar
(P. G.) teldi hana allra stefna
frjálslyndasta. í trúmálum.
Sennilega mundi hún og vilja,
láta hengjá eða skjóta presta og
prédikara, brenna kirkjur eða
fylla þær guðlöstunar myndum.
Raunar munu flestir telja litl-
ar h'kur til þess, að guðleysis-
stefnan verði svo öflug hérlendis
fyrst um sinn, að hún geti beitt
oss hinum rússnesku ofsóknum,
en séu, guðstrúarmenn sundur-
leitir og áhugasnauðir, tekst
henni að slökkva trúarneistann
og stilla viljastefnu hjá sívax-
andi hóp unglinga og þroskalít-
ils fólks, sjálfu því og ajlri þjóð-
inni til tjóns.
Mörgu trúlitlu fólki í svo-
nefndum yfirstéttum er hollt
apríl />. á.
að íhuga þetta nánar. Því kæru-
leysi þess um trúmál er hin
bezta. aðstoð guðleysi komm-
únista. Veit ég vel, að flest þaö
fólk kveðst standa fjarri stjórn-
málastefnu Jreirra, og ketur
stundum svo sem það hneyksl-
ist mjög á guðleysi kommúnista.
En Jiegar þess háttar aðfinning-
ar koma frá fólki, sem aldrei
hreyfir hönd né fót til stuðn-
ings guðstrúnni að öðru, leyti,
þá furðar mig ekkert á, þótt
kommúnistar svari: »Vei yður,
þér hræsnarar.«
Kirkja og kristindómur á
langflesta einlasga vini meðal
alþýðufólks um land allt. Það
er það fólk, sem sækir kirkju
og trúmálafundi, meðan mikill
hluti »fína fólksins« situr heima
og sést ekki í kirkjum nema við
fermingar og jarðarfarir.
En Jjótt J>essu sé svo farið,
get ég alls ekki fyllt flokk þeirra
manna, sem kvíða því, ef hing-
að til lands skyldi berast sú trú-
arhreyfing, sem beztum tökum
hefir náð á mörgu yfirstétta-
fclki hjá nágrannaþjóðum vor-
um síðustu árin.
Ég get ekki annað skilið, en
að Jjað hljóti að vera gleðiefni
öllum sönnum vinum kristin-
dóms og eigánlega öllum mann-
vinum, þegar fólk, í hvaða stétt
sem það er, sleppir trúmála-
kæruleysi og gerist áhugasamt
um kristindóm. Annars ætla ég
ekki í tjetta sinn að tala nán-
ar um Oxfordflokkinn og starfs-
aðferðir hans, en get (jess eins,
að komi hann hingað, er ekkert
ólíklegt, miðað við erlenda
reynslu, að sumir Ireirra, sem
nú amast við honum í orði, verði
miklu fljóta.ri að ganga honum
alveg á hönd en ég og fleiri
mínir líkar.
Trúmálaerindin og trúmála-
umræðurnar ættu að vera mörg-
um hjálp til jþess að glöggva sig
á öllu þessu, sem hér hefir verið
drepið á. En ekki er því aö
leyna að mjög er ég ósammála
ýmsum fleiri ræðumönnum en
Pétri Guðmundssyni, og hefir
fundizt sumt fremur óljést af
því, sem hér hefir verið flut'c
undanfarið.
Ég deili ekki sérstaklega. á er-
indi Péturs Guðmundssonar, Jjví
að séra Árni Sigurðsson hefir
svo rækilega hrakið það, og
sleppi sömuleiðis að mestu að elt-
ast við ýmsar fullyrðingar ann-
ara, sem ég var ósammála, af
því að I>eir hafa svo lítinn tíma
til andsvara. Ég á J>ar þó eink-
i:,m og sér í lagi við þá af ræðu-
mönnum, sem hér eru ekki við-
staddir. Hins vegar leyfi ég mér
að I>akka Árna lækni Árnasym
og Guðmundi Þorsteinssyni
bónda á Lundi fyrir erindi
J>eirra á fimtudagskvöldið var.
Það er oft talað um trú og
að trúa, bæði í þessum útvarps-
erindum og end.ra nær á þa,nn
veg, að hlustendum er all-erfitt
að átta sig á, hvað átt er eigin-
lega við með þeim orðum.
Að vísu skilgreindi Magnús
prófessor Jónsson þau orð vel í
erindi sínu hér fyrir skömmu,
en lítið bar á hjá sumum öðr-
um ræðumönnum, að þeir hefðu.
af því lært sem skyídi.
Þeg’ar talað er um trú sem
eintóma samsinningu, einhverra
kenninga eða staðhafna, þá er
I>að hrein og bein hugsanavilla
að nokkur skuli kenna sig við
trúleysi.
Allir menn með öllum mjalla
hljóta að trúa afar mörgu, sem
Jjeir hafa engin tök á að sann-
reyna sjálfir. Börn og ungling-
ar læra t. d. mannkynssögu og
landafræði, og trúa J>ví venju-
lega að Jjar sé rétt skýrt frá
a. m. k. í öllum aðalatriðum, Jxitt
Jjeir hafi hvorki séð fjarlæg
lönd, né löngu liðna þjóðaleið-
toga. Menn læra málfræði fram-
andi tungumála, í þeirri trú að
I>eim sé rétt sagt frá merkingu
orða og beygingum, þótt þeir
hafi ald,rei hitt mann frá því
landi. Og I>a,nnig mætti nefna
ótal margt, er sýnir, að það er
blátt áfram rangnefni að telja
sig við trúleysi.
Miklu réttara fyrir þá sem
guðstrú hafna. að kalla sig guð-
leysingja en trúleysingja. En
það er í raun réttri jafnvillandi
að kalla trúmenn alla þá, sem
samsinna, því, að guð sé til.
Eftir íslenzkri málvenju eru
þeir einir trúmenn, sem sýna í
verki að þeir hafa verulegan á-
huga, á trúmálum, en sá áhugi
f.yl.gi ekki samsinningu einni eða
varajátningu um tilvern Guðs.
»Þú trúir að Guð sé einn, þú
gerir vel, en illu andarnir gera
það líka og skelfast,« stendur í
JakobsbréfL (2, 19).
Ég hefi ald,rei séð kaldlyndar
samsinningar einar valda nein-
um straumhvörfum í líferni
manna, og skil mjög vel, að þeir,
sem ekki hafa öðru, kynnzt í
Irúmálum en allskonar skoðun-
um, alla vega alvörulitlum sam-
sinningum Jjessara eða hinna
j kenninga, verði tortryggnir eða
i efasjúkir.
»Hver verður sæll við sína
trú,« segja sumir, en Jægar ekki
er átt við annað með orðinu trú
en samsinninguna eina, þá tel
ég miklu réttara að snúa þessu.
við og segja: »Hver verður van-
sæll við sína trú«. Kaldar vara-
játningar veita enga gleði né
styrk og þá sízt þegar á reynir.
Mér er engin launung á, að
T rúmálaerindi
útvarpsumrceður U.
hefði ég ald.rei annari trú
kynnzt en kaldri samsinningu
einhverra trúarkenninga, ]>á sé
ég engar líkur til að ég hefði
staðið hér á mælendaskrá með
trúmönnum,
Guðsti’ú er meira en samsinn-
ing þess, að Guð sé. til cg aö
cinhverjar sérstakar skoðanir
um eiginleika hans og afskipti
af heiminum séu réttar.
Hún er traust á góðum, al-
máttugum Guði, traust þess, aó
hann láti ekki einstaklingana
afskiptalausa, en heyri bæna-
kvak þeirra, og sú komi stund
»er sérhver rún er ráðin og
raunaspurning er oss duldist
hér«.
Það tra.ust fylgii- eingyðistrú
yfirleitt, þar sem hún er heit
og einlæg, og því eru [>að bæði
kristnir menn, únítarar, Gyð-
ingar og Múhameðstrúarmenn,
sem geta eignað sér J>á trú.
Og því er ekki að neita, að
bún hefir margoft góð áhrif á
alla framkomu og breytni þeirra,.
sem hana eiga,
Guðleysingjar og áhugasnauö-
ir varajátningamenn, hvað sem
þeir kalla sig, ættu ekki að gera
lítið úr J>eim styrk og Jjolgæði,
sem slíkt trúartraust veitir þeim,
sem eiga.
En kristin trú er f>ó í innsta
eðli sínu annað og meira en
þetta traust eins og- p-rófessor
Magnús Jónsson benti réttilega
á. —
»Hún er sá dularfulli kraft-
ur, sem kemur mönnum í sam-
félag- við Krist og Guð«, sagði
hann og ég bæti við: Hún er sú
liönd, sem vér þiggjum með fyr-
irgefningu synda fyrir Jesúm
Krist og fullvissa um, að vér
séum komnir í lífssamfélag við
Drottin him-ins og jarðar.
Veit ég-vel, að þeir, sem ekki
hafa sjálfir reynt þenna kraft,
eða eiga enga slíka vissu, telja
þetta oftrú eða ímynd.un. Eg á-
felli þá ekki fyrir I>a,ð, því aö
ég hefi sjálfur verið í þeim hóp
árum saman, og I>ekki mætavel
al' eigin reynslu flest undan-
brögð óendurfædds manns til að
ko-ma sér hjá að játa fyrir sjálf-
um sér og Guði, að J>essi trú,
eða trúin í þessari merkingu,
sé perlan dýra, sem aldrei verði
of dýrt metin.
Áf því að verið var í einu er-
indinu í fyrrakvöld, að hnjóta
dálítið í barnalærdómskverið
eftir Helga Hálfdanarson, tel
ég mér skylt að geta þess í
þessu sa,mbandi, að það kver
hefir mér bezt reynzt af öllum
frumsÖmdum ísl. bókum og var
mér ómetanlegur leiðarvísir á
örlagaríkustu stundum æfi
minnar.
Ég dvaldj meðal fólks í fram-
andi landi, sem talaði um að
það ætti trúarvissu eða örugg-