Bjarmi - 15.10.1936, Side 4
80
B J A R M I
Hver er ástæðan?
Islenzkur maður hefir lagt
íyrir mig þessa spurningu: Hver
er ástæðan fyrir hinni miklu
breyting-u, sem orðið hefir á sið-
íerðLslegu lífi norskra fiski-
manna, sem koma til Islands.
Aðeins það, að þessi spurning
kom íram, gleður mig. Ég sé á
því að það hefir orðið breyting
á siðferðilegu lífi landa minna,
sem er svo auðsæ, að sumir hér
á Siglufirði eru undrandi yfir
henni.
Eg ætla að benda á aðal á-
stæðurnar.
Undanfarin ár hafa miklar
andlegar vakningar gengið yfir
Noreg. Kristindómurinn hefir
því þrengt sér svo inn að sam-
vizkum manna, að hver einstakl-
ingur hefir orðið að taka afstöðu
tíl hans. Margir hafa krýnt
Krist sem konung lífs síns og
fengið að reyna það, að fyrir
Krist hafa þeir öðlast ki’aft til
þess að sigra syndina, Þetta hef-
ir veitt afli inn í þjóðlífið, sem
hetfir knúð hina trúuöu, til starfs,
bæði andlegs starfs og' líknar-
starfe.
1 Noregi er nú í sjálfboða-
vinnu un-nið mjög mikið að innra
trúboði, með boðun Guðs orðs og
líknarstarfi, sem er kostað af
trúaða iólkinu.
Það hafa verið stofnaðir
kristilegir æskujýðsskólar, sem
eru sóttir atf þúsundum æsku-
manna hvaðanæfa af landinu.
Það hatfa verið stofnuð her-
mannaheimiþ, sem eru rekin í
anda kristindómsins, til verndar
og hjálpar ungum mönnum með-
an þeir gegna hei'skyldu.
Það hatfa verið stofnuð 20 sjó-
mannaheimili eftir endilangri
strönd Noregs, og auk þess eru
2 samkomu- og spítala-skip, sem
eru rekin atf innra sjómannatrú-
boðinu. I Noregi eru 103 000
fiskimenn. Þeim þykir mjög
vænt um þetta starf, sem hefir
verið þeim til mikillar blessunar.
Það hefir einnig verið unnið
ágætt starf af hinum ýmsu
bindindisfélögum, sem einnig
hefir sett sinn blæ á hiö almenna
siðferði,
Kristilega starfið er byrjað á
heimilunum meðal baimanna atf
kristnum forefdrum, og því er
haldiö áfram í barnaskólunum.
Noregur hefir átt og, á marga
ákveðna menn, sem játa sig
kristna meðal kennarastéttar-
innar, sem bæði kenna Guðs orð
og lifa. eftir því. Þar við bætist
svo hið mikla, sunnudaagskóla-
starf í landi voru.
Hin ýmsu bindjndisfélög byrja
meðal barnanna og segja þeim
frá hinum hræðilegu atfléiðing-
um áfengisins. Þetta hefir valdið
því, að í almenningsálitinu er
það mikil hneisa fyrir menn, ef
þeir sjást ölvaðir. Ef ungur mað-
ur er ölvaður, vill ung stúlka
venjulega ekki kannast við hann,
og ef hún gerði það, mundi hún
lækka í áliti að mun — og þau
bæði.
Starf meðal stúdenta. (Framhaid.)
frá Guði hefir óhjákvæmilega
útbreiðslu) og aukningu í för með
sér. 1 stúdéntafélaginu hefir
komið af stað hreyfing, sem við
réttilega getum kallað trúboðs-
vakningu. Margir stúdentar
haía fengið köllun til Iiess að
verða trúboðar. Og ennþá fleiri
liafa öðlazt nýjan og betri skiln-
ing á heiðingjatrúboðinu. Á-
byrg'ðin gagnvart þeim, sem
hafa ekki ennþá fengið að heyra
fagnaðarboðskapinn frá Guði,
hefir orðið meiri en nokkru
sinni fyrr.
Unglingarnir tóku sig því
saman og' stofnuðu fræðslu-
hringi um heiðingjatrúboðið. 1
þessum hringum kynna þeir sér
starfið á hinurn ýmsu trúboðs-
ökrum, til þess að fylgjast með
útbreiðslu Guðs ríkis, og biðja
fyrir trúboðinu. 1 Osló-félaginu
einu eru um 5—6 slíkir fræðslu-
hringir, með 12—15 meðlimum
Þetta allt held ég að. séu þær
ástæður, sem eru1 fyrir því, að
líf og framkoma norskra, fiski-
manna hefir breytzt.
Hvað Sigluf jörð snertir er það
sannað, að starfið. við Norska
sjómannaheimilið, hefir stuðlaö
að því að bjarga norskum sjó-
mönnum frá drykkjuskapnum
og þeim Ipstum, sem af honum
leiða og verið varnargarður fyr-
ir þá til þess að varðveita hið
nýja líf, sem Guð hefir skapað
í þeim.
Siglufirði 2. sept. 1936.
Mikkel Nilsen,
73
að það hefi.r orðið gleðileg breyting einnig þar,
hann virðist ætla að verða duglegur náungi og
koma sér áfram«, sagði Eiríkur.
»Þú horfir líka á aJJt út frá viðskiptasjónar-
miði«, sagði Elsa. »Hefir þú alls engin áhuga-
mál önnur eða þarfi,r?«
»Jú, ég hefi mikla þörf fyrir að fara að hátta«,
svaraði hann og geyspaði.
Hún horfði á hann með greinilegri óbeit. Aldr-
ei hatfði það verið hennd jafnljóst og nú, hve
hann var orðinn gegnsýrður atf efnishyggju.
»Þú hefir sett sál þína, fyrir gull!« sagði hún.
»Ég þekki manneskju, sem átti sinn þátt í
því, að sú verzlun fór fram«, svaraði hann.
Þessi orð hittu hana, en hún lét sem ekkert
væri.
»Hjálmar er hugsjónamaður, Hjálmar, sem þú
lítur niður á er þúsund sinnum betri en þú!«
sagði hún.
»Það var heimskulegt af þér að halda ekki
fast við hann í staðinn fyrir mig, en mú er það
of seint«, svaraði Eiríkur með ertnislegu kæru-
leysi.
Elsa starði á hann, án þess að skilja, hvaó
hann átti við.
»G<3ða nótt!« sagði hann og stóð á fætur, »nú
ætla ég að fara að sotfa og láta þig í ró og næði
dreyma urn hina horfnu pardís þína«.
Með þessum orðum yfirgaf hann hana. Þegar
74
hún var orðin ein í herberginu, gekk hún að
glugganum, en hún varð að beygja sig alveg
upp að rúðunni, ti] þess að geta séð dálítinn
hluta af stjörnuhimninum!. Þetta liktíst öll,u lífi
hennar, fannst henni. Það var jafn þröngt um
hana og í fangelsi með gylltum rimlum. En hún
hafði engan rétt til þess að kvarta, því að. húr.
hafði valið þetta sjálf. Hún hafði nýlega ásakað
mann sinn fyrir það, að hann hefði selt sig fyrir
gull, en hafði hún ekki í raun og veru gert hið
sama, þegar hún fyrst keypti sér þá stöðu, sem
hún gat verið óháð í, og með sjálfri sér sem
borgun, og- gerði þá stöðu ennþá meira ljómandi
með því að æsa upp peningagræðgi manns síns
í stað þess að reyna að draga úr henni? Hann
bar ekki einn ábyrgð á þv:í, hvernig hann var
orðinn. Það sá Elsa ljóslega í kvöld í fyrsta
skipti, cg angistartilíinning gagntók hana. Hún
vissi ekki að á sömu stund lá Hjálmar á hnján-
um í brennandi bæn fyrir henni og Eiríki og
bað Guð um, að augu þeitra mættu opnast í
tæka, tíð..
Britta Reiner sat með uppbrettar ermar, með
stóra, hvíta svuntu framan á sér og var að af-
hýða perur, sem átti að fara að sjóða niður
í sultu. Systkini hennar voru í skólanum, og faö-
ir hennar reikaði um skóginn með. byssu og
hver. Þeir halda fundi einu sinni
á hverjum 3 vikum.
»Akademiske Frivillige Mis-
jonsforening« er einnig í sam-
bandi við. stúdentahreyfinguna.
1 því eru þeir af meðlimum
okkar, sem eru sannfærðir um
heiðingjatrúboðsköllun sína og
eiga að fara út á akurinn, þegar
Ioeir hatfa lokið námi.
Ný starfsgrein.
Ný starfsgrein hefir bætzt
við nýlega: Starfið meðal gagn-
fræðadeilda nemenda. Það, hefir
á tveimur árum aukizt stórkost-
lega. Þegar eru mynduð um 25
félög meðal Iieirra. Landsráðio
varð því að útvega staitfsmann.
Það hefir því ráðið annan fram-
kvæmdastjóra í viðbót, sem á
einkum að vinna meðal þessara
nemenda
Þeir hafa. tvö undaníarin
sumur haft sumarmót fyrir sig.
Á mótinu í sumar voru 360 þátt-
takendur. Meðlimir þessara. fé-
laga bætast sjálfkrafa í félögin
fyrir. stúdenta og lærdóms-
deildanemendur. Það hefir því
síðustu ái'in verið mjög mikil
aukning hjá menntaskóla og
stúdentafélögunum.
Útbreiðsla.
En starfið eykst einnig út á
við. Það eru ekki lengui’ Norð-
urlönd ein, sem taka þátt í
þessu. Það kom í ljós að 1 Eng-
landi er samskonar hreyfing,
»Inter-varsity Fellowship«. —
Kynningin við þá hreyfingu var
báðum aðilum til mikillar gieði,
og það komst brátt samband á
milli þeirra. I þessum mánuði
verðuir háð ráðstefna í Finn-
landi, með þátttöku 4 Norður-
ianda og Englandg. (Prófessor
Hallesby fer héöan frá fslandi
til, Finnlands).
Það er orðið kunnugt, að
hreyfingin heíir einnig unnið á
í Miö-Evrópu. Þessvegna verð-
ur haldið mót í Sviss næsta ár,
og er vænzt hins bezta árangurs
al’ því móti.
Lesendur eru beðnir að
íyrirgefa drátt þann, sem
orðið • hefir á útkomu
blaðsins. Breytingar, sem
verið er að gera á prent-
smiðjuuni, hafa valdið því
að ekki hefir verið liægt
að preuta blaðið fyrr en
þetta.
Ritstj-