Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.04.1958, Page 1

Bjarmi - 01.04.1958, Page 1
5.—6. tbl. Reykfavík, apríl—maí 1958 52. árg. iVi/ krossí&rð Rilltg Grahatwtss Yfir milljón manns sóttu samkomurnar Sænska blaðið „Svensk Veeko- tidning“ birtir oft glöggar og skemmtilegar fréttir af starfi am- eríska vakningaprédikarans Billy Graham, sem á undanförnum ár- um befur vakið bvað mesta atbygli allra kristinna prédikara, vegna þess bve gífurlegur fjöldi manna hefur sótt samkomur hans. í vet- ur var hér í blaðinu sagt frá sam- komum þeim hinum miklu, sem Billy Graliam. bann liafði í Ncw York, og þess þá jafnframt gétið, að eftir að hann liefði fcngið nokkra hvíld, væri fyrirhugað, að liann og nán- ustu samstarfsmenn lians færu ti) samkomuhalda lil eyja og ríkja umhverfis Karabíslca bafið, sem eins og kunnugt er, liggur milli Bandaríkjanna og Suður-Ameríku. Frá þeirri för eru nú komnar frétt- ir i erlendum blöðum, og verður hér birtur meginhluti þess, sem fyrrnefnt I)lað segir um þá för: Billy Graham og samstarfsmenn hans söfnuðu ótölulegum grúa manna á samkomur í löndunum umhverfis Karabíska liafið á 17 vikna ferð þeirra. Meðal landa þessara eru Kúba, Haiti, Jamaica, Puerto Bico, Panama, Venezúela, Colombia, Cosla Bica o. fl. Alls störfuðu þeir í 17 löndum og munu lieimsækja fleiri í náinni framtíð, því að í löndum þessum eru menn að vakna, og þar eru meiri tæki- færi til trúboðs en í flestum öðr- um löndum beims. Ibúarnir í þess- um þéttbýlu löndum eru kynblend- ingar margra þjóða, svo sem Spán- verja, Englendinga, Hollendinga, Svertingja, Indíána og Auslur- landabúa. Mikil fátækt er í lönd- um þessum og eini trúarlegi arfur- inn er rómversk-kaþólska, sem spænskir landvinningamenn fluttu með sér. I sumum blutum þessara landa hefur verið unnið að kristni- boði síðan i byrjun 18. aldar, en þrátt fyrir það eru verkefnin enn yfrið nóg, og eins og áður er um getið, hafa liugir manna lokizt ein- kennilega upp undanfarið. Krossferð þessi hófst í Kingston á Jamaíku, á miklum skeiðvelli þar. Einn sjónarvottur segir m. a. á þessa leið frá samkomum þess- um, scm þúsundir manna, er aldrei áður höfðu heyrt kristinn boðskap, sóttu: Ivlukkan sex síðdegis voru allir bekkir setnir, enda þótt samkom- an ætti ekki að hefjast fyrr en ldukkan hálf átta. Göturnar, sem liggja að veðhlaupabrautinni, voru krökar af bifreiðum og fótgang- andi mönnum, snemma siðdegis. Sárast af öllu var það, hve mörg- um varð að vísa frá, án þess að unnt væri að útvega þeim stæði, hvað þá annað. Bæða Billy Graliam var eins og ávallt einföld og beinskeytt. Bæðu- textinn þetta fyrsta kvökl var Jó- Iiannes 3, 1(5. Múgurinn, sem hlýddi á hann, var mesti mann- fjöldi, sem nokkru sinni hefir ver- ið saman kominn á Jamaiku. Þeg- ar mönnum var boðið að taka af- stöðu til Krists, voru engin tök á að biðj'a menn að ganga fram, sem merki ákvörðunarinnar — þar eð ekkert rými var til þess. Næsta kvöld var sama feiknar aðstreymi, en þá hafði því verið komið svo fyrir, að þeir, sem þess óskuðu, gátu gefið sig fram. Sext- án liundruð manns komu fram að pallinum lil þess að gefast Kristi. Þeir, sem eru i starfsmannabópi Billy Grabms, töldu, að þessi sam- koma bafi verið éinna þrungnust andlegum krafti þeirra samkoma, sem hann liefir haldið á krossferð- um sínum. Yfir milljón manns sóltu sam. komurnar, og enginn veit, bve margir hlustuðu á þær í útvarpi. Um það bil 20,000 manns gáfu til kynna, að þeir vildu fylgja Kristi. Það er markverður og gleðilegur árangur krossfei'ðar á einu af starfssvæðum kristniboðsins. Hug- myndina að því að biðja Billy Gra- liam að fara þessa ferð, átli einn af forstöðumönnum kristniboðs- starfsins á þessum slóðum. Hafði verið beðið fyrir þessu um langt skeið. Auk þess heimsóttu sam- starfsmenn bans lönd þessi, áður en Billy Graham komsjálfur.Héldu þeir samkomur með prestum, pré- dikurum og trúuðu fólki. Var heimsóknin því vel undii'búin bæði andlega og að því er skipulagningu snerti. Það fer ekki hjá því, að kross- ferð eins og þessi mæti einhverj- um erfiðleikum. Þess gætti eink- um i þeim löndum, þar sem ka- þólska kirkjan liafði náð veruleg- um ítökum. Sums staðar var erfitt að fá nægilega stóra samkomusali fyrr en á siðustu stundu. Víða varð það, sem óframkvæmanlegt virt- ist, gerlegt , vegna gleði og áhuga þess, sem trúaðir menn báru i brjósti, að því er krossferð þessa varðaði. Samkomur Billy Graliam i löndum þessum liafa orðið til þess að sameina trúaða menn betur, og auk þess hafa yfirvöld landanna eignazt skilning á gildi kistilegs trúboðsstarfs meðal manna. Þá bafa og margir, sem áður hugsuðu ekkert um sálarheill sína og fagn- aðarerindið, vaknað af andlegum svefni sínum. YiotaL Biílí Lbina Það var reglulegt leiðindaveöur og grámóða hversdagsleikans yfir öllu. Eg mætti vini mínum, málarameistaranum, á gangstéttinni. Við fórum að spjalla saman. Fólkið streymdi framhjá. Attir áttu annríkt. AUt í einu dregur vinur minn slitna Bibliu sína wpp úr vasanum og fer að blaða í henni. „Eg skal segja þér, að í dag las ég gott orð,“ sagði hann og Ijóm- aði af gleði. Svo las hann orðið fyrir mig, bæði hátt og snjallt (en þeir, sem fóru framhjá okkur, störðu á okkur). Drottinn hafði opin- berað sig fyrir honum í Orðinu og leyst hann út úr erfiðleikum. Einnig ég hlaut blessun Orðsins í dag. — Það var þessi minning, sem olli því, að ég orðaði fyrirsögnina á þessa leið: Notaðu Biblíuna-' Eg varð að segja það við sjálfan mig. Stöðugt koma út nýjar uppbyggilegar bækur, og það eru góðar bækur. Flest af oss lesum líklega of fáar þeirra. Og þó — lestur hug- leiðinga, prédikana og guðræknisbóka má ekki Jcoma í veg fyrir, að vér notum SJÁLFT ORÐ RITNINGARINNAR! — Eitt af því, sem stefnt er að með lcristilegum bókum, er einmitt að skapa dýpri löngun hjá les- andanum til þess að rannsaka RITNINGUNA SJÁLFA af enn meiri kostgæfni. Það er % Ritningunni, að Jesús Kristur er opinberaður oss. Biblían BOÐAR oss sáluhjálpina og GEFUR oss sáluhjálpina. Fyrir orð Ritn- ingarinnar starfar einnig Heilagur Andi í hjörtum vorum: til upplýs- ingar, til trúar og sannfæi'ingar, til leiðbeiningar og hjálpar. En eigi Drottinn að fá að veita oss þetta, verðum vér að NOTA Orðið, rann- saka það með kostgæfni, læra að þekkja það, svo að Orðið fái náð valdi á hjörtum vorum. Páll ritar til Tímóteusar: „— þar er þú frá blautu barnsbeini peKKir HEILAGAR RITNINGAR, SEM GETA VEITT ÞER SPEKI TIL SÁLUHJÁLPAR FYRIR TRUNA Á KRISTI JESU“. Þessar gömlu ráðleggingar þola endurtekningu: Lestu daglega og reglwlega í Biblíunni! Lestu eftir álcveðinni áætlun og í samhengi! Lestu með bæn um leiðbeining Heilags Anda og Ijós yfir Orðið! 1 Biblíunni bíða mikil auðævi Guðs eftir þér — bíða þess að finn- ast og verða tileinkuð. NOTAÐU því Biblíuna-’ Notaðu hana oft! Steinar Hunnestad. (B. A. þýddi).

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.