Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.08.1958, Side 3

Bjarmi - 01.08.1958, Side 3
BJARM1 3 Margs kona lífsstraumar I kristnilífi Bandaríkjanna ^Áruar er Ljálp ? Hjálp! Já, hvar er hjálp að fá fyrir þá, sem þrautir líða, þungan stynja, efast. kvíða, hjálparvana, hjálp sem þrá? Hér svo mörgu hjarta blœðir. Hvar er sá, er meinin grœðir? Jesús grœðir manna mein. Hverjum þreyttum hvíld hann gefur, hryggan sér að brjósti vefur, stillir hjartna harmakvein. Freisi og náð hans fallinn hlýtur. Fáráður hans líknar nýtur. Heilög kœrleikshönd er sterk. Kœrleikur er undraaflið, allt sem vinnur háskataflið. Kristur gjörir kraftaverk. Ef í kœrleik Krists vér vinnum, krömdum hjörtum eins vér sinnum. Kristnir starfsmenn kœrleikans, Kristur í oss á að verka afl hans gjöra' oss veika sterka, svo vér vinnum verkin hans: Bjarga, hjálpa, lcekna, leiða, líknsemd Guðs á jörðu breiða. Blix. — M. G. þýddi. Það hefir frá fornu farið legið hér í landi, að menn liefðu ánægju af því að lieyra frásagnir frá því, sem gerist með öðrum þjóðum. Þess verður einnig vart meðal þeirra, sem unna kirkju og kristni, að fátt finnst þeim ánægjulegra en góð tíðindi, er þeim berast frá öðrum löndum. Á það ekki sízt við, þegar einhver landi hefir l)rugðið sér „út yfir pollinn“ og gelur sagl frá því, sem hann þar hefir kynnzt. Einn af meðlimum Iv.F.U.M., Gunnar Andersen, hef- ir um eins árs skeið dvalizt í Bandarikjum Norður-Ameríku til þess að kynnast nýjungum í starfi sínu, en eins og við er að húast hef- ir hann einnig notað tækifærið til þess að kynnast af eigin raun kristnilífi þar í landi, eftir því sem liann liefir liaft tök á. Kvöld nokk- urt sátum við þrír eða fjórir nokkra stund inni í lestrarstofu K.F.U.M. í Reykjavík, þar sem okkur gafst tækifæri til þess að spyrja hann nokkurra spurninga og hlýða á slutta frásögn lians. Kom þar margt fram, sem ýmsir lesendur „Bjarma“ hefðu ánægju af að lieyra og skal nokkurs af því stulllega getið hér. Nú munu vera í Bandarikjum Norður-Ameríku rúmlega hálft annað hundrað milljónir manna. Sá reginmunur er á kristnihaldi þar í landi og liér, að þjóðkirkja er þar engin. Verða kristnir menn því algerlcga að hafa allan veg og vanda af þvi að halda uppi safn- aðarstarfi og gera það á eigin kostnað. Er talið, að um 100 millj- ónir manna séu meðlimir kristinna safnaða þar í landi, eða % hlutar þjóðarinnar. Ivirkjulíf og kristilegt starf er mjög mikið, og hefir kirkjusóknin vakið mikla atliygli manna, sem koma frá Evrópu til Bandaríkjanna undanfarin ár. Tal- ið er, að um 60 milljónir Banda- ríkjamanna sæki kirkju hvern lielgan dag, og mun okkur finnast það ótrúleg tala um kirkjusókn. Kirkjudeildir eru margar í land- inu, sumar mjög smáar, en aðrar stórar mjög. Stærst kirkjudeild mótmælenda er Meþódistakirkjan, sem hefir um 11 milljónir safnað- armeðlima. Lútherskir menn eru um 7 milljónir að tölu, og liefir þeim farið ört fjölgandi síðastliðin ár. Oftast er lögð álierzla á það, að söfnuðir séu ckki of stórir. Þyk- ir slarf prestsins nýtast mun het- ur, ef söfnuðurinn er ekki of fjöl- mennur. Er það pg auðskilið mál. Árið 1956 var tahð, að prestar mót- mælenda mundu vera um 300 þús- und að tölu og lcaþólskir prestar nálægt 48.000. Auk þess hefir ka- þólska kirkjan mikið starfslið, þar sem eru fjölmennar munka- og nunnureglur. Töldust' nunnurnar vera um 160.000 að tölu fyrrgreint ár. Þá má og geta þess, að banda- riskir söfnuðir munu hafa á sinum vegum um % hluta þeirra kristni- hoða, sem nú starfa í heiðnum löndum. Gefa tölur þessar nolckra hugmynd um, hve mikið starf er liér um að ræða. Öll þessi starf- serni er kostuð með frjálsum fram- lögum safnaðanneðlima og er það ekkert smáræði, sem þeir leggja af mörkum. Árið 1956 var talið, að gjafir þær, sem söfnuðust í mót- mælendasöfnuðum Bandaríkjanna liefðu numið um 1000 milljónum dollara. Billy Graham. jÖhætt mun að segja, að sá nú- lifandi maður handarískrarkristni, sem flestir munu kannast við af afspurn hér á landi, sé bandaríski vakningaprédikarinn Billy Gra- liam. Ilefir hann, eins og kunnugt er, ferðazt víða um heim og lialdið miklar samkomur. Mun hann liafa talað til fleiri áheyrenda en nokk- ur annar kristinn prédikari fyrr og siðar, þótt vitaskuld sé erfitt að fullyrða slíkt með vissu nú á timum. Starfsemi lians hefir hvar- vetna vakið mikla athygli og hefir nokkuð verið sagt frá henni áður liér í „Bjarma“. Það lá þvi næst, er spyrja skyldi Gunnar Andersen tíðinda að vestan, að drepa fyrst á það, sem kunnast var lesendum „Bjarma“. Birt var all-löng grein hér í blaðinu um „herferð“ þá, sem Billv Graham og samstarfsmenn lians liöfðu i New York í fyrra sumar, en Gunnar Andersen fór þangað einmitt í fyrra haust. „Hvernig var það, sóttir þú sam- komur lijá Billy Graham?“ „Nei, ég gerði það nú ekki. Bauðst því miður ekki tækifæri til þess. Samkomuliöldum lians var nýlokið, þegar ég kom til New York í fyrraliaust. Hins vcgar varð ég greinilega var áhrifa þeirra, sem hann liafði liaft og tók einnig þátt í stórsamkomu á Madison Square, sem lialdin var af mönnum, sem voru í samhandi við hann og starf hans. Starf Billy Graham liefir orð- ið lil þess að auka mjög samstarf og samlieldni mótmælenda víða í Bandarikjunum. Hafa samtök,sem nefnast „Mótmælendaráðið“ (Pro- testant Counsel) eflzt mikið og lát- ið meira til sin taka. Yar sam- koma sú, sem fyrr greinir, lialdin á þess vegum á þessum stað, sem kunnur varð af samkomuhöldum Billy Grahams þar. Samkomu þessa sóttu 15—20.000 manns.“ „Ileyrðir þú þá ekkert til Billy Grahams sjálfs ?“ „Jú, ég hlustaði margoft á hann í sjónvarpi. Hann talar i sjónvar)) á hverjum laugardegi kl. 10—11, og er þeirri samkomu lians endur- varpað um öll Bandaríkin og Kan- ada svo, að minnsta kosti 130 út- varps og sj ónvarpsstöðvar munu liafa þann dagskrárlið. Yeit auð- vitað enginn nákvæma tölu þeirra, sem þannig heyra fagnaðarerindið prédikað.“ „En hefir þú nokkuð nýtt frá starfi hans að segja? Starfar hann af jafnmiklum krafti og áður?“ „Já, það gerir liann. Hann hefir t. d. undanfarið verið með sam- komuhöld í San Fransisco. Þær samkomur hafa verið hetur sóltar en nokkrar aðrar samkomur lians. Fjöldi þeirra, sem gefa til kynna, að þeir vilji gefast Kristi, hefir og verið miklu meiri á þeim samkom- um cn nokkrum öðrum, sem liann liefir lialdið. Fannst mér það vera almennt álit, að Billy Graliam væri vaxandi sem prédikari og starfs- maður.“ (Því má skjóta liér inn i, að norskur prestur, Olav Egeland, sem verið hefir á ferð í Bandaríkj- unum, hefir sömu sögu að segja. Segir liann Billy Graham vaxa í áliti og njóta aukins trausts, og sé hann almennt talinn vaxandi sem prédikari. Þá getur og norski prest- urinn þess, að í sambandi við sam- komur hans í Kaliforníu hafi liann talað við ýmsa háskóla þar, og hafi mörg liundruð stúdenta unn- izt við prédikun lians og gerzt virkir lærisveinar Krists). Fleiri kunnir vottar. „Kyrintist þú nokkrum öðrum kristnum leiðtogum, sem álirifa- miklir eru í Bandarikjunum nú?“ „Já, einn þeirra, sem mikla at- liygli hefir vakið, er Jaek Wyrtzen. Hann starfar aðallega meðal æsk- unnar og kallast hreyfing sú, sem liann hefir vakið „Orð lífsins“. Það var íslenzk kona, sem ég liitti vestra, sem livatti mig til þess að fara til hans og ræða við hann. Wyrtzen er maður 45—50 ára að aldri og hefir liaft þetta starf um 18 ára skeið.“ „Er nokkuð sérstakt af starfi lians að segja?“ „Starf lians er ákaflega merki- . legt. Hann safnar að sér miklum fjölda æskumanna og hefir marg- þætt starf fyrir þá. Hvert laugar- dagskvöld hefir hann fjölmenna æskulýðssamkomu, sem er útvarp- að uni 200 útvarpsstöðvar. Auk þess hefir hann suiriarbúðir fjöl- sóttar mjög. Þar eru Bibliunám- skcið og meðal þeirra, sem þar fræða æskuna í Guðs orði, er mað- ur, sem talinn er einn fróðasti guð- fræðingur Bandarikjanna. Alls liefir Jack Wyrtzen 62 starfsstöðv- ar, þar á meðal kristniboðsstöðvar nokkrar i Brasilíu og Mexicó. Sagt er, að starfsemi sú, sem liann FRAMHALD Á B. SÍÐU

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.