Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.11.1963, Blaðsíða 6

Bjarmi - 01.11.1963, Blaðsíða 6
6 BJARMI Krisiniboðsvika Kristniboðssambandið hefur nú um margra ára skeið haft kristniboðsviku í Reykjavík síðustu heilu vikuna í október. Þá eru samkomur á hverju kvöldi frá sunnudegi til sunnu- dags. Samkomur þessar hafa ávallt verið háldnar í samkomu- sal K.F.U.M. og K. við Amt- ■ mannsstíg. Að þessu sinni hófst vikayi sunnudaginn 20. október og lauk snunudaginn 21. Rœðu- menn á samkomunum voru þess- ir, taldir í þeirri röð, sem þeir töluðu: Margrét Hróbjartsdótt- ir, kristniboði, Ólafur Ólafsson, kristniboði, séra Magnús Guð- mundsson, yrófastur, séra Jó- hann Hannesson, prófessor, Benedikt Arnkelsson, guðfrœð- ingur, Baldvin Steindórsson, raf- virki, Ástráður Sigursteindórs- son, skólastjóri, Gunnar Sigur- jónsson, guðfrœðingur, Jóhann- es Sigurðsson, prentari, og séra Sigurjón Þ. Árnason. Ólafur Ól- afsson talaði tvisvar og Margrét Hróbjartsdóttir fjórum sinnum. Tvö kvöld voru sýndar litmynd- ir frá Eþíópíu. Eins og oft áður setti aukasöngur og hljóðfœra- sláttur svip á samkomurnar, en sá þáttur var mjög fjölbreyttur, bœði einsöngur, tvísöngur og blandaðir kórar. Samkomurnar voru yfirleitt vel sóttar, nema á miðvikudagskvöldið, þegar fár- viðri olli því, að ekki var nema hálfur sálur. / lok vikunnar var gjöfum til kristniboðsins veitt viðtaka, og bárust kristniboð- inu í samskotum alls nálœgt kr. 70 þúsund. Ferðastarf Vikuna 6.—13. október héldu þrír af starfsmönnum Kristni- boðssambandsins samkomuviku í Vestmannaeyjum. Voru sam- komurnar í húsi K.F.U.M. og K. og voru vel sóttar. Góður andi rikti á samkomunum og fannst starfsmönnunum gott að starfa þar. Þau, sem að þessu sinni önnuðust samkomuhöldin, voru: Benedikt Arnkelsson, Gunnar Sigurjónsson og Margrét Hró- bjartsdóttir. Fannst þeim in- dœlt að heimsœkja vinina þar og voru þákklát fyrir þann góða anda, sem á samkomunum rikti. Enn hefur enginn starfsmanna farið til Akureyrar, en venja ■ hefur verið undanfarin ár, að starfsmenn Kristniboðssam- bandsins fœru þangað fyrri hluta vetrar. Ástœðan er m. a. sú, að tálsverð viðgerð fer nú fram á kristniboðshúsinu Zion, og hefur þess vegna ekki verið unnt að hefja samkomu- og fundarstörf þar ennþá. Eru vonir til, að það verði um miðj- an nóvember. Er því ráðgert, að Margrét Hróbjartsdóttir og Gunnar Sigurjónsson verði á Akureyri og hafi samkomuviku þar siðustu vikuna í nóvember. Þann 10. desember n. k. eru 30 ár liðin síðan kristniboðshúsið Zíon var vígt. Verður þess vafa- laust minnzt á samkomu þeirri, sem venja er að hálda þann dag. Verður viðgerð á húsinu þá von- andi að fullu lokið. Þessi viðgerð kostar hið litla félag, Kristni- boðsfélag kvenna á Akureyri, mikið fé, og œttu vinir og vel- unnarar þess að minnast þess í sambandi við afmœli hússins. Konurnar hafa unnið afreksverk með því að byggja húsið og starfrœkja það öll þessi ár. K.F.U.M. og K. Samkomur í K.F.U.M. og K. í Reykjavík hafa verið vel sóttar, það sem af er starfsvetri. Sama máli gegnir með aðáldeildir og flestar aðrar deildir félaganna. Frá starfinu Einkum hefur verið mikil upp- örvun að því, hve sumar ung- lingadeildirnar hafa verið vel sóttar. Eins og kunnugt er, eru yngri deildir félaganna starf- andi á fjórum stöðum í Reykja- vík og auk þess í Kópavogi, en unglingadeildir eru starfandi í K.F.U.M. á þremur stöðum í Reykjavik og þar að auki í Kópavogi. K.FXJ.K. hefur ekki U-D í Kópavogi. Sunnudagaskólinn við Amt- ■mannsstíg er hvern sunnudag kl. hálfellefu og var vaxandi sókn í honum állan október- mánuð. Kristileg skólasamtök Aðálfundur Kristilegra skóla- samtaka var haldinn laugardag- inn 12. október. 1 stjórn voru kosnir Jón Dálbú Hróbjartsson, nemandi i Verzlunarskólanum, Válgeir Ástráðsson, nemandi i Menntaskóla, og Þórður Ó. Búa- son, nemandi i Menntaskóla. 1 varastjórn voru kosnar þær Sig- ríður Pétursdóttir og Válgerður Hrólfsdóttir. Stjórnin skipti með sér verkum þannig, að Jón Dál- bú er formaður, Válgeir ritari og Þórður gjaldkeri. Fundir Skólasamtakanna í október voru vel sóttir. Þeir eru á hverjum laugardegi. Fundirnir eru i húsi K.FXJ.M. og K., en áætlað er að hálda fundi og samkomur i gagnfræðaskólum borgarinnar, eftir því sem kostur verður á. Þá munu samtökin og gefa út „Kristilegt skólablað“ síðari hluta vetrar, svo sem verið hef- ur frá upphafi. Tvö hundruö Jiúsund króna gjöf Skömmu eftir kristniboðsvikuna voru Kristniboðssambandinu fœrð að gjöf tvö skuldábréf, hvort að upphæð hundraS þús- und krónur. Með gjöfinni fylgdu þessi orð: ,ýKæru kristniboðsvinir. Það hefur alllengi lagzt á hjarta okkar að leggja nokkurn skerf til kristniboðsins. Þetta hefur þó dregizt þar til nú. Við von- um innilega, að framlag þetta verði til þess að auka mögu- leikana á því að útbreiða fagn- aðarerindið meðal þeirra, sem í myrkri sitja. Þetta er ofurlítill þakklœtisvottur fyrir þá marg- víslegu náð, sem Drottinn hef- ur sýnt okkur frá degi til dags. Með friðarkveðju. Tvö sem njóta náðar DrottinsV Þessi kœrkomna og rausnarlega gjöf kemur sér mjög vel fyrir kristniboðið í Konsó. Hún er einnig i mjög hentugri mynd, þar sem skuldábréfin verða greidd á 10 árum og tryggja því tálsverðar tekjur sjóðnum ár- tega nœstu 10 árin, þar sem auk árlegra afborgana verða vextir. Er þvi gjöf þessi jafnframt eins konar „vatnsmiðlun“, sem get- ur sannarlega komið sér vel, þegar frá liður. Gefendurnir vilja, eins og lang flestir þeir, sem gefa til kristni- boðs, vera algerlega ókunnir. Þeim eru hér með færðar þákk- ir og þá fyrst og fremst fyrir þann hvetjandi kærleika til kristniboðsins, sem gjöf þeirra ber vott. .lörd aö jijöí Á Sambandsþingi kristniboðs- félaganna, sem háldið var í Vatnaskógi 2.—ý. júlí s. 1., var skýrt frá þvi, að frú Guðrún Sigurðardóttir, Gunnarsbraut 26 í Reykjavik, hefði gefið minningarsjóði dóttur sinnar, Elínar Ebbu Runólfsdóttur, jörðina Hurðarbák i FÍóa. Sjóð- ur þessi, sem er eins og áður segir stofnaður til minningar um dóttur hennar, sem lézt i Bandarikjunum fyrir 10 árum, á að vera eign Kristniboðssam- bandsins, samt undir stjórn sér- stakrar stjórnarnefndar, sem skipuð er samkvœmt ákvörðun skipulagsskrár sjóðsins. Til- gangur hans er m. a. að kaupa jörð eða góðan stað, sem hent- ugur sé til ýmislegs kristilegs starfs og sé þá einnig haft í huga, áð kristniboðar, sem koma heim til hvíldar, geti dválizt þar. Jörðin Hurðarbak i Flóa er stór og mikil jörð. Enn hefur ekki verið athugað, hvernig hentugast sé að nota hana, en rétt er að geta þess, að jörðin er gefin kvaðálaust að því leyti, að finnist annar og hentugri staður, sem betur upp- fylli tilgang minningarsjóðs El- inar Ebbu, má selja jörðina. Kristniboðsvinum mun nánar skýrt frá málum, þegar frekari upplýsingar er unnt að gefa. 1 stjórn minningarsjóðs Elínar Ebbu Runólfsdóttur eiga nú sæti frú Guðrún Sigurðardóttir, séra Jónas Gíslason og Ólafur Ólafsson, kristniboði. | Hvað gerðist...? ::] Framhald af 3. síðu III heimsfundur og þessi er ekki jii heppilegur til þess að ræða vanda- Íij söm guðfræðiefni — ef ætlunin er Íij sú að geta orðið sammála um orða- jjj lag, sem allir geta viðurkennt. jjj Margir guðfræðinganna voru tals- jjj vert frjálslyndari í ummælum sín- jjj um en kunnir norskir nýguðfræð- jjj ingar á fyrri hluta aldarinnar, jjj eftir því sem norskur blaðamaður ijj segir. — Meðferð sú, sem aðalefni þings- jjj ins hlaut, var á ýmsan hátt óþægi- jj; leg og lamandi. Krossinn og end- jjj urlausnin — og afstaða einstakl- jjj ingsins fyrir afturhvarf og trú — jjj fékk lítið rúm. Það er ekki unnt jjj að sjá annað en að Lútherska jjj heimssambandið sé tilneytt að Íjj birta opinberlega eitthvað um rétt- jjj lætinguna, sem sýni opinbera skoð- jjj un heimssambandsins og afstöðu jjj þess til þessa mikilvæga kenning- jjj aratriðis. „Ég hef haft sérstakan áhuga á Íjj umræðuhópunum. Leikmennirnir, jii einkanlega þeir yngri, gagnrýna jjj guðfræðiprófessorana harðlega. jjj Þeir vilja fá ljóst og einfalt svar Íij við spurningunni um það, hvernig jjj maðurinn verði hólpinn, en um- jjj ræðurnar hafa verið svo guðfræði- jjj legar, að þær hafa ekkert svar jjj gefið. Það er einkennilegt, að þeir, jjj sem staðhæfa, að kenninguna um jjj réttlætinguna verði að framsetja iji á máli, sem nútímamaðurinn skilji, Íjj tala þannig, að enginn ,,nútíma“- jjj maður skilur þá!“ (Ummæli Wis- jjj kari ritstjóra „New York Times“ jjj á blaðamannafundi á meðan á jjj þinginu stóð.) Vér álítum, að það, sem fyrir jjj oss virðist vera hreinustu mistök, jjj geti orðið dyrnar að nýjum tíma jjj skýrrar Kristsboðunar, ef lúth- jjj ersku kirkjurnar ganga veg auð- jjj mýktarinnar og í reyndinni hegða jjj sér samkvæmt háleitri játningu jjj sinni. — iii _ Þegar aðstaðan er óljós í and- jjj legum máium — þar sem almenn Íjj trúhneigð ræður allt of miklu, og Íjj þar sem á óviðeigandi hátt er jjj daðrað við kaþóiskuna — þurfum jjj vér að hamra inn í meðvitund iji fólksins: Ritningin ein! Náðin ein! jjj Trúin ein! Það er ekki nóg, að forseti, sem jjj er að láta af störfum á fundinum, jji hljóti kröftugt lófatak mannfjöld- iii ans, þegar hann slær fram þeirri jjj fullyrðingu, að það hafi aldrei ver- jjj ið um það að ræða á aðalfundin- jjj um að ráðast á sameiginlega lúth- jjj erska játningu. „Frelsa oss frá æði Normana!" iij Þannig var beðið í frönskum, ka- jjj þólskum kirkjum, þar sem grimm- jjj ir víkingar frá Norðurlöndum Íjj rændu og rupluðu. I dag er ástæða Íjj til þess að breyta orðunum svo- jjj lítið og biðja — einnig í lúthersku jjj kirkjunum: „Frelsa oss frá glund- jjj roða guðfræðinganna!“ Vilja lúthersku kirkjurnar í iii fullri alvöru átta sig á háleitri jjj játningu sinni og hefja baráttu jjj gegn nýtízku musterisræningjum Íjj — sem að vísu hlífa líkneskjum, jjj myndum og heilögum kerum, en jjj sem ræna þvi, sem er enn dýrmæt- jjj ara — kjarnaatriði trúar vorrar? j|| „Frá þessari grein,“ segir Lúther :;;J: uitl kenninguna um réttlætinguna,

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.