Bjarmi - 01.04.1985, Síða 2
Var hann spámaður eða trúvillingur? Var hann ruddafenginn tækifærissinni eða krðftug rödd
Guðs í kirkju sem var vikin af vegi sannleikans?
Hver sem skoðun manna kann að vera á Lúther, leikur ekki vafi á því að hann er eitt af stórmennum
í sögum vestrænna þjóða. Fyrir starf hans og skoðanir breyttist gangur mála í Evrópu og gætir
áhrifa þess enn í dag mörgum öldum síðar. Bandaríski guðfræðingurinn Roland H. Bainton
ritaði þessabók um Lúther sem nú kemur út í íslenskri þýðingu. Hefur hún hlotiðfrábæradómaog er
talin bókmenntaafrek. Telja sagnfræðingar og guðfræðingar margir hana best rituðu ævisögu
Lúthers, fróðlega og aðgengilega í senn.
AÐ UÚKA UPP
BIBLÍmNI
er vel til þess fallin að auðvelda lesanda að nálgast fjársjóð Heilagrar ritningar með því hugarfari sem
Biblían sjálf og Jesús Kristur ætlast til. Hún gefur engar ofureinfaldar skýringar eða ódýrar lausnir
á gátum Biblíunnar en er í senn auðlesin og fræðandi. Bókin skiptist í 10 kafla og hverjum þeirra
fylgja íhugunaratriði fyrir einstaklinga og hópa.
Bókin er tilvalin fyrir Biblíulestrarhópa og einstaklinga allt niður í fermingaraldur.
TILVALDAR FERMINGARGJAFIR
Bókautgáfan Salt hf.,
Freyjugötu 27, box 1203,121 Reykjavík, ísland, sími: 91-18188