Bjarmi - 01.04.1985, Qupperneq 3
Keinur út tlu sinnum á ári.
Ct9efendur:
J^rtstilega skólahreyfingin,
^ndssamband KFUM og KFUK,
atnband ísl. kristniboðsfélaga.
jtttstjóri: Gunnar J. Gunnarsson.
jjjthefnd: Ágúst Einarsson,
“^hedikt Amkelsson,
t'nðni Gunnarsson,
®*9urður Jóhannesson.
^9»eiðsla: Aðalskrifstofan,
^tmannsstíg 2B, pósthólf 651.
Reykjavík,
S'öiar 17536,13437.
/r9jald: Kr. 500innanlands,
r' 600 til útlanda.
Mlaiddagi: 1. mars.
*rentun: Borgarprent.
Efni:
*taldrað við — Sigur ........... 3
°riisteinninn - Hugleiðing
®ftir sr. Magnús Guðjónsson ... 4
brennidepii — Upprisan:
t^ásagnir Nýja testamentisins
áf upprisu Jesú ............... 5
tJpprisan er undirstaða
t*oðunarinnar
riett við Jens Olav Mæland .... 7
tJpprisa Jesú — Kafli úr bókinni
••Ör djúpi reis dagur" ...... 10
"Ohgurinn þangað þýtur” —
t*áskaminningar eftir Sverri
Áxelsson ..................... 12
(ib,'Uorðabókin ............... 15
nt,ael píiagrims ævigöng.
eftir Stelnunni A. Bjömsdóttur . 16
t* - Mannfjöltíi - Hermenn -
t>yðingar og Guð
Til fsraels með
9uðfræðinemum .............. 18
*u víða veröld .............. 21
á starllnu ................. 22
Forsíðumynd:
A. Færevág
Páskamir eru sigurhátíð. Við fögnum og gleðjumst yfir því að
Jesús er upprisinn og dauðinn og vald hins illa er sigrað. Það
hafa orðið þáttaskil — Guð hefur endurleyst fallna sköpun sina
og unnið sigur á öflum tortímingar og eyðileggingar. Hann
hefur frelsað fallið mannkyn úr fjötrum syndar og dauða, tekið
það í sátt fyrir Jesúm Krist og gefið því von um upprisu til eilífs
lífs með sér. Þetta er vissulega stórkostlegt fagnaðarefni.
Samt er heimurinn eins og hann er. Hvarvetna blasa við augum
hörmungar, þjáning, illska, neyð og tortíming. Eyðileggingaröfl
virðast öllu ráða. Hvað er þá sigurinn?
Hinn fallni heimur stendur enn. Af miskunn sinni gefur Guð
fráhverfum manni enn tækifæri til að snúa við á glötunarbraut
sinni og hverfa aftur til sín. En dagur dómsins og upprisunnar
mun koma þegar sigurinn sem unninn er í Kristi verður
endanlega staðfestur og fullnaður. Þá verður öllu veldi hins illa
útiýmt, þá verður öll þjáning og neyð horfin.
Kristinn maður á hlutdeild á sigri Jesú Krists og horfir því fram
til lokasigursins á efsta degi. En hann lifir jafnframt í föllnum
heirni og mætir því öllu sem það felur i sér, s.s. hörmungum,
sorg, þjáningu, neyð, illsku og dauða. En við þær aðstæður lifir
hann í sigri Krists og hann er jafnframt kallaður til að vera
boðberi þess sigurs með því að vinna verk Drottins hér í heimi
meðal þjáðra meðbræðra.
Upprisukaflinn í 1. Korintubréfi 15 endar á orðum sei.i eru
rökrétt niðurlag á umQölluninni um upprisu Jesú og upprisu til
eilífs lífs. Það eru kröftug orð sem lofa Guð fyrir von og sigur
upprisunnar, en um leið eru þau hvatning til þess að vinna verk
Drottins I föllnum heimi í fullvissu þess að ekki sé unnið til
einskis. Páll segir: „Guði séu þakkir sem gefur oss sigurinn fyrir
Drottin vom Jesúm Kristl Þess vegna, minir elskuðu bærður,
verið staðfastir, óbifanlegir, síauðugir í verki Drottins. Þér vitið
að erfiði yðar er ekki árangurslaust í Drottni."
Kristur er upprisinn. Sigur er fenginn. Framgöngum því í
sigrinum. Gleðilega páska!
3