Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.04.1985, Qupperneq 11

Bjarmi - 01.04.1985, Qupperneq 11
hann ætti að verða sannfærður um þetta. Svo var það dag einn, að hann var að lesa í Postulasögunni. Hann las predikun Péturs á hvítasunnu. Þá komst hann á nýja slóð, sem lá frá hópi postulanna og til þeirra, sem stóðu fyrir utan. Frammi fyrir honum stóðu þúsundir manna, sem vissu, hvað hafði gerst. Og við þá sagði hann hiklaust: „Þér ísraelsmenn, heyrið þessi orð: Jesúm frá Nazaret, mann þann, er Guð sannaði fyrir yður með krafta- verkum og undrum og táknum, sem Guð lét hann gjöra yðar á meðal, svo sem þér sjálfir vitið, hann hafið þér, er hann var framseldur eftir fyrir- huguðu ráði Guðs og fyrirvitund, neglt á kross með höndum vondra uianna og tekið af lífi, hann uppvakti fjuð, er hann létti af kvölum dauð- ans, því að ekki var það mögulegt að hann skyldi af honum haldinn verða... þennan Jesúm uppvakti Guð, og erum vér allir vottar þess. Með óbrigðanlegri vissu viti þá allt ísraels hús, að Guð hefur gjört hann bæði að f^rottni og að Kristi, þennan Jesúm, sem þér krossfestuð.“ Ásgeiri þótti sem hann sæi allar þessar þúsundir manna fyrir sér, allt Þetta fólk, sem var samtíða Jesú og hafði séð hann. Já, það hafði meira að Segja séð hann deyja á krosstrénu rnmum mánuði áður. Og nú sagði ^étur umbúðalaust við það, að Jesús Væri risinn upp frá dauðum. Hann skýrði ljóslega frá því, að þeir hefðu Seð dásemdarverkin, sem Guð hefði framkvæmt í augsýn þeirra fyrir Jes- nui Krist. Hann sagði þeim, að það hefðu verið þeir, sem hefðu neglt nann á krossinn. Allt þetta hafði átt sér stað, „svo sem þér sjálfið vitið.“ „þennan Jesúm uppvakti Guð,“ bætti hann við. Og hver var svo árangur þessa alls? Svo virtist sem ekki einn einasti Þeirra gæti borið brigður á þetta. Og bvorki meira né minna en þrjú þús- Ur>d manns létu skírast til fyrirgefn- |ngar synda sinna. Þeir vissu ekkert ar>nað ráð til þess að bæta fyrir það, Sem þeir höfðu aðhafst gegn Jesú. Ekki hefði slíkur fjöldi manna í erúsalem tekið trúna á Jesúm, ef kki væru þungvægar sannanir fyrir Því, að þetta væri satt. . brjú þúsund manns staðfestu vitn- lsburð Péturs með því að taka þessa a stöðu á fyrsta hvítasunnudag. Það hlaut að vera einhver fótui ‘Vrir þessu. Ásgeir hélt áfram að lesa. Og skyndilega var svo sem hugur hans yrði fullkomlega sannfærður um raunveruleika upprisunnar. Það varð, þegar hann las fjórða kapítula Postulasögunnar um þá post- ulana Pétur og Jóhannes, þegar þeir voru frammi fyrir ráðinu vegna lækn- ingar betlarans bæklaða. Hann sá Pétur fyrir sér andspænis ráðinu — og alla þessa menn, sem höfðu dæmt Jesúm og krossfest hann. Og þarna stóð Pétur gegnt æðsta- prestinum, undursamlega djarfur og hugprúður. Hvað var það, sem hann sagði? „Þá sé yður öllum vitanlegt og öllum ísraelslýð, að í nafni Jesú Krists frá Nazaret, sem þér krossfestuð og Guð uppvakti frá dauðum, einmitt fyrir hann stendur þessi maður heil- brigður fyrir augum yðar. Hann er steinninn, sem einskis var virtur af yður, húsasmiðunum, hann er orðinn að hyrningarsteini.“ „í nafni Jesú Krists frá Nazaret, sem þér krossfestuð og Guð uppvakti frá dauðum.“ Þetta voru skýr orð. Hvaða rök hafði æðsti presturinn fram að færa gegn þessu? Hvað gat hann sagt við fátæka fiskimanninn? Gat hann ekki sagt eitthvað og þaggað með því niður í þessum manni? Nei, ekki orð. Gat hann ekki bent á gröf Jesú? Gat hann ekki staðið upp og sagt: „Hægan, hægan, maður minn! Þú segir, að Jesús sé risinn upp frá dauðum. En dokaðu við andartak. Við létum krossfesta hann, og hann var grafinn. Nú skulum við fara til grafarinnar og sýna þér, að Jesús er raunverulega dáinn. Annars fer kannski best á því, að við látum líkið standa uppi öllum til sýnis svo að niður verði kveðinn þessi villa, sem breiðist æ meira út, og menn komist að raun um, að ekki er flugufótur fyrir þessu þvaðri, að hann sé upprisinn.“ Þetta var merkilegt. Ásgeir sá ekki minnsta vott þess, að æðstipresturinn eða nokkur annar ráðsmaður gæti sagt neitt, sem raskaði sannfæringu Péturs. Öðru nær. Það gerðist, þegar Ásgeir sat með Biblíuna og sá þennan athyglisverða fund fyrir innri sjónum sínum, að allar efasemdir um sannleika uppris- unnar urðu að engu á augabragði. Það var alveg áreiðanlegt, að Jesús hafði risið upp frá dauðum. Hann hafði gert hið ótrúlega — brotið hlekki dauðans. Það var ekki á færi nokkurs manns. Það megnaði Guð einn. Þetta var enn ein staðfesting þess, sem hafði hvarflað að honum skömmu áður: Hann mætti Guði, hinum lifandi, óskiljanlega, heilaga, eilífa Guði í Jesú frá Nazaret. Almenna mótið í Vatnaskógi Almenna mótið verður haldið í Vatnaskógi dagana 28.-30. júní í sumar. Yfírskrift mótsins og efni samverustundanna er valið út frá ýmsum köflum úr bréfum Páls til Tímóteusar og með hliðsjón af því að nú er ár æskunnar. Minna má á að á móti í Vatnaskógi geta fjölskyldur og einstaklingar, ungir jafnt sem gamlir átt góðar samveru- stundir. Ástæða er til að hvetja menn til að sækja mótið og taka þátt í undirbúningi þess með fyrirbæn. Þá verður kristniboðsþing í Vatnaskógi dagana 1.-3. júlí. 11

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.