Bjarmi - 01.05.1985, Síða 3
Kemur út tiu sinnum á ári.
titgefendur:
Kristiiega skólahreyflngin,
Landssamband KFUM og KFUK,
Samband ísl. kristniboðsféiaga.
Ritstjóri: Gunnar J. Gunnarsson.
Ritnefnd: Ágúst Einarsson,
Kenedikt Amkelsson,
Guðni Gunnarsson,
Sigurður Jóhannesson.
Áfgreiðsia: Aðalskrifstofan,
Ámtmannsstíg 2B, pósthólf 651,
121 Reykjavík,
síhiar 17536,13437.
Árgjald: Kr. 500innanlands,
Kr. 600 tii útlanda.
Gjaiddagi: 1. mars.
prentun: Borgarprent.
Efni:
Staldrað við — Ár æskunnar ...
ert dýrmætur i augum Guðs
— Hugieiðing eftir Valdísi
Magnúsdóttur ..............
í brennidepli — Unglingar á ári
aeskunnar:
Hnglingurinn, heimur hans og
fagnaðarerindið .............
«Uáipl Hvers vegna þurfti Guð að
skapa foreldra? .............
-Æskan fyrir Kristi" — Viðtal
við ólaf Sverrisson .........
Guð býður eftir þér
— vitnisburður ..............
-Opnar dyr og verkmiklar"
— Viðtal við Guðmund
Ouðmundsson .................
Jesús og ungiingar í
Breiðholti ...................
^ýtt féiagsheimili KFUM og KFUK
á Akureyri vígt ..............
Staða KFUM og K á fslandi ......
Bristniboðamir skrifa ..........
Vöxtur þrátt fyrir erfiðleika
'— Ársskýrsla frá Konsó ......
Norraen kristileg stúdentamót
á fslandi, eftir sr. Jónas
Oíslason, dósent .............
*frá starfinu ..................
^hllinmunnur ...................
3
4
,. 5
. 8
11
12
13
14
16
18
20
22
24
26
28
torsíðurnynd: Ny horisont
Staldrað við
ÖHum er kunnugt að nú stendur yfir ár æskunnar að tillhlutan
Sameinuðu þjóðanna. Því varð að ráði að helga þetta tölublað
Bjarma að mestu efni sem tengist því. Stundum er tekið svo til
orða að unga fólkið eigi að erfa landið. Víst er um það
að hver kynslóðin tekur við af annarri i landi hveiju. Ungt fólk
tekur við af þvi eldra og erfir í þeim skilningi landið. í þessu
sambandi er okkur kristnum mönnum hollt að staldra aðeins
við og spyrja okkur að þvi hvaða vegarnesti við viljum færa nýrri
kynslóð sem er að vaxa upp hér á landi og mun á sínum tíma erfa
landið.
íslendingar hafa um Iangan aldur kallast kristin þjóð. Hver
kynslóð hefur flutt hinn kristna arf áfram til hinnar næstu.
Foreldrar hafa borið börn sín til skírnar og tekið það alvarlega
með þvi að ala börnin upp í trú á Krist. Þeir eru þó ýmsir sem
þykjast nú sjá teikn á lofti í þá veru að nú sé að vaxa upp kynslóð
í landinu sem fari meira og minna á mis við kristna trú í uppvexti
sínum og kynnist því ekki þeim andlegu verðmætum sem
fagnaðarerindi Jesú Krists felur í sér. Þessa sé jafnvel þegar
farið að gæta í siðgæðisviðhorfum og breytni.
Hér skal ekki um það dæmt hvort þetta mat er rétt. Hins vegar
skal lögð á það áhersla að það hlýtur að vera alvarlegt ef ungt
fólk í landinu fær ekki að kynnast Jesú Kristi og heyra
faganaðarerindið um hann. Þá mun erfa landið kynslóð sem
hefur glatað góða hlutskiptinu, hinu eina nauðsynlega (Lúk.
10,41-42), kynslóð sem þekkir ekki Jesúm Krist og frelsið í
honum. Það mun síðan hafa áhrif á allt þjóðlífið, bæði í
opinberu lífi og einkalífi.
Þetta hlýtur að vera kristnum mönnum köllun og hvatning til
að færa uppvaxandi kynslóð það vegamesti sem mun duga og
hefúr eilífðargildi, þ.e. fagnaðarerindið um Jesúm Krist. Þetta
er köllun til foreldra sem láta skíra böm sín að þeir ali böm sín
upp í trú á þann Jesúm Krist sem þau em skírð til. Þetta er
köllun til kirkju landsins um að fræða ungu kynslóðina um
boðskap kristninnar. Þetta er köllun til kristilegra æskulýðsfé-
laga að gefast ekki upp heldur reynast trú og óþreytandi í að
boða Jesúm Krist, krossfestan og upprisinn frelsara allra
manna, líka unglinga á íslandi í dag. Látum ár æskunnar verða
okkur hvatning til þess að bregðast ekki.
GJG
___________________________________________________________)
3