Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.05.1985, Qupperneq 3

Bjarmi - 01.05.1985, Qupperneq 3
Kemur út tiu sinnum á ári. titgefendur: Kristiiega skólahreyflngin, Landssamband KFUM og KFUK, Samband ísl. kristniboðsféiaga. Ritstjóri: Gunnar J. Gunnarsson. Ritnefnd: Ágúst Einarsson, Kenedikt Amkelsson, Guðni Gunnarsson, Sigurður Jóhannesson. Áfgreiðsia: Aðalskrifstofan, Ámtmannsstíg 2B, pósthólf 651, 121 Reykjavík, síhiar 17536,13437. Árgjald: Kr. 500innanlands, Kr. 600 tii útlanda. Gjaiddagi: 1. mars. prentun: Borgarprent. Efni: Staldrað við — Ár æskunnar ... ert dýrmætur i augum Guðs — Hugieiðing eftir Valdísi Magnúsdóttur .............. í brennidepli — Unglingar á ári aeskunnar: Hnglingurinn, heimur hans og fagnaðarerindið ............. «Uáipl Hvers vegna þurfti Guð að skapa foreldra? ............. -Æskan fyrir Kristi" — Viðtal við ólaf Sverrisson ......... Guð býður eftir þér — vitnisburður .............. -Opnar dyr og verkmiklar" — Viðtal við Guðmund Ouðmundsson ................. Jesús og ungiingar í Breiðholti ................... ^ýtt féiagsheimili KFUM og KFUK á Akureyri vígt .............. Staða KFUM og K á fslandi ...... Bristniboðamir skrifa .......... Vöxtur þrátt fyrir erfiðleika '— Ársskýrsla frá Konsó ...... Norraen kristileg stúdentamót á fslandi, eftir sr. Jónas Oíslason, dósent ............. *frá starfinu .................. ^hllinmunnur ................... 3 4 ,. 5 . 8 11 12 13 14 16 18 20 22 24 26 28 torsíðurnynd: Ny horisont Staldrað við ÖHum er kunnugt að nú stendur yfir ár æskunnar að tillhlutan Sameinuðu þjóðanna. Því varð að ráði að helga þetta tölublað Bjarma að mestu efni sem tengist því. Stundum er tekið svo til orða að unga fólkið eigi að erfa landið. Víst er um það að hver kynslóðin tekur við af annarri i landi hveiju. Ungt fólk tekur við af þvi eldra og erfir í þeim skilningi landið. í þessu sambandi er okkur kristnum mönnum hollt að staldra aðeins við og spyrja okkur að þvi hvaða vegarnesti við viljum færa nýrri kynslóð sem er að vaxa upp hér á landi og mun á sínum tíma erfa landið. íslendingar hafa um Iangan aldur kallast kristin þjóð. Hver kynslóð hefur flutt hinn kristna arf áfram til hinnar næstu. Foreldrar hafa borið börn sín til skírnar og tekið það alvarlega með þvi að ala börnin upp í trú á Krist. Þeir eru þó ýmsir sem þykjast nú sjá teikn á lofti í þá veru að nú sé að vaxa upp kynslóð í landinu sem fari meira og minna á mis við kristna trú í uppvexti sínum og kynnist því ekki þeim andlegu verðmætum sem fagnaðarerindi Jesú Krists felur í sér. Þessa sé jafnvel þegar farið að gæta í siðgæðisviðhorfum og breytni. Hér skal ekki um það dæmt hvort þetta mat er rétt. Hins vegar skal lögð á það áhersla að það hlýtur að vera alvarlegt ef ungt fólk í landinu fær ekki að kynnast Jesú Kristi og heyra faganaðarerindið um hann. Þá mun erfa landið kynslóð sem hefur glatað góða hlutskiptinu, hinu eina nauðsynlega (Lúk. 10,41-42), kynslóð sem þekkir ekki Jesúm Krist og frelsið í honum. Það mun síðan hafa áhrif á allt þjóðlífið, bæði í opinberu lífi og einkalífi. Þetta hlýtur að vera kristnum mönnum köllun og hvatning til að færa uppvaxandi kynslóð það vegamesti sem mun duga og hefúr eilífðargildi, þ.e. fagnaðarerindið um Jesúm Krist. Þetta er köllun til foreldra sem láta skíra böm sín að þeir ali böm sín upp í trú á þann Jesúm Krist sem þau em skírð til. Þetta er köllun til kirkju landsins um að fræða ungu kynslóðina um boðskap kristninnar. Þetta er köllun til kristilegra æskulýðsfé- laga að gefast ekki upp heldur reynast trú og óþreytandi í að boða Jesúm Krist, krossfestan og upprisinn frelsara allra manna, líka unglinga á íslandi í dag. Látum ár æskunnar verða okkur hvatning til þess að bregðast ekki. GJG ___________________________________________________________) 3

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.