Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.05.1985, Síða 5

Bjarmi - 01.05.1985, Síða 5
Gunnar N. Sandholt er félagsráð- gjafl og starfar á Félagsmála stofnun Reykjavikurborgar. UNGLINGAR Á ÁRIÆSKUNNAR Unglingar og kristilegt starf meðal unglinga er í brennidepli að þessu sinni. Tilefnið er alþjóðaár æskunn- ar. Það verður víða komið við og reynt að kynnast starfi KFUM og KFUK og KSS á meðal unglinga. Þá verður vikið að „foreldravandamálinu“ í þýddri grein, en fyrst skulum við kynnast þeim sem allt snýst um, þ.e. unglingunum sjálfum. Qunnar M. Sandholt: Unqlinqurinn. heimur hans oq faqnaðarerindið f þessari grein verður leitast við að skoða nokkra þætti í fari og aðstæðum svokallaðra „eðlilegra" unglinga. Grein- >nni er sem sé ekki ætlað að fjalla um nnglingavandamál eða vandamálaungl- >nga. Á hinn bóginn verðum við að hafa 1 huga að unglingsárin eru tími breyt- >nga og umbrota, þar sem manneskjan, sem í hlut á, stendur andspænis vanda- sömum verkefnum, sem hún skynjar sem vandamál. Einnig að aðstæður °kkar og samfélagshættir eru þannig Vaxin, að margir skynja samskipti ungl- lnga og fullorðinna sem meiri háttar Vandamál. Það er ekki nýtt að fullorðnir hafi áhyggjur af þeim, sem ungir eru. Það er staðreynd að unglingar eru ekki það sem þeir voru einu sinni. Það hafa þeir raunar aldrei verið! „Æskan á okkar dögum hneigist til munaðar. Hún er illa siðuð, fyrirlítur yfirboðara sína, sýnir fullorðnum óvirðingu og talar þegar hún á að vinna. Unglingar brúka munn við foreldra sína, masa á mannamótum, bryðja sætindi, krossleggja fætur og ógna kennurum sínum“. Við þekkjum öll þann er svo mælti. Það var hvorki mentamálaráðherra né biskup heldur Sókrates. Nokkuð er um liðið síðan hann lifði. Þannig hefur æskan jafnan vakið umtal, ýmist þannig að hneykslast hefur verið eða þá að lítiö er gert úr vanda hennar og sérstöðu á hverjum tíma. Hvort tveggja er jafn vitlaust og gagnslítið. Hvað er unglingur? Það var þá spurning. Unglingsár eru tímabil milli bernsku og fullorðinsára. Það hefst þegar unglingurinn byrjar að taka út kynþroska, og því lýkur þegar hann öðlast full félagsleg réttindi og hefur tekið út líkamlegan, andlegan og félagslegan þroska (— með þeim stóra varnagla að fullþroska einstaklingur hættir vonandi aldrei að þroskast!). 5

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.