Bjarmi - 01.05.1985, Side 12
Ágúst Magnússon:
Guð bíður
eftir þér
Agúst Magnússon er
19 ára skrifstofumad-
ur hjá Tollstjóranum
í Reykjavík
Er ég var á mínum yngri árum fór
ég á fund í KFUM og þótti mér gaman
á honum, en á eftir var mér strítt. Ég
var þannig barn að það var auðvelt að
stríða mér og þess vegna þótti mörg-
um gaman að stríða mér og ég fór
ekki oftar á fund vegna hræðslu.
Síðan varð ég eldri og ég fór í
unglingaflokk í Vatnaskógi tvö
sumur. Fyrir um það bil þrem árum
frétti ég síðan af KSS og mætti ég á
fund í ágústlok. Um það leyti var
verið að auglýsa skólamót sem ég fór
á. í febrúar á árinu á eftir fór ég síðan
að mæta vikulega á fundi og hef gert
það síðan. í vetur hef ég svo verið
sveitastjóri hjá KFUM í Hæðarseli.
Þetta sem ég skrifa hér birtist í
tölublaði Bjarma sem er tileinkað ári
æskunnar sem er í ár.
Ég er kristinn. Er ég eitthvað
öðruvísi en aðrir menn? Nei, ég er
alveg eins og allir aðrir, ég syndga á
róti Guðs vilja rétt eins og aðrir
-nn gera. Hvað mátti Jesús þola?
'ið má finna í Jesaja 53,3-5:
lann var fyrirlitinn, og menn
'uðust hann, harmkvœlamaður
unnugur þjáningum, líkur
er menn byrgja fyrir andlit
ditinn og vér mátum hann
7i vorar þjáningar voru
ann bar, og vor harm-
nn á sig lagði. Vér
álitum hann refsaðan, sleginn af
Guði og lítillœttan, en hann var
sœrður vegna vorra synda og kram-
inn vegna vorra misgjörða. Hegn-
ingin, sem vér höfðum til unnið,
kom niður á honum, ogfyrir hans
benjar urðum vér heilbirgðir. “
Guð elskar alla menn, hvernig sem
þeir eru. Hann gaf son sinn í dauðann
til þess að við mættum fá fyrirgefningu
synda okkar. Taktu eftir að hann
fórnaði syni sínum fyrir okkur til þess
að við gætum lifað. Og þetta vildi
hann gera til að fólk tryði á hann og
tæki þátt í að kristna alla menn, eins
og stendur í Matteus 28, 16-20:
„En lœrisveinarnir ellefu fóru til
Galíleu, til fjallsins, sem Jesús
hafði stefnt þeim til. Par sáu þeir
hann og veittu honum lotningu. En
sumir voru í vafa. Og Jesús gekk
til þeirra, talaði við þá og sagði:
„Earið því og gjörið allarþjóðir að
lœrisveinum, skírið þá í nafni
föður, sonar og heilags anda, og
kennið þeim að halda allt það, sem
ég hef boðað yður. Sjá ég er með
yður alla daga allt til enda verald-
ar. “
Það er hlutverk okkar að kristna
alla menn, við eigum að vera á
akrinum og boða heiðingjum hans
boðskap.
„Sjá ég stend við dyrnar og kný
á. Ef einhver heyrir raust mína og
lýkur upp dyrunum, þá mun ég
fara inn til hans og neyta kvöld-
verðar með honum og hann með
mér“ (Opinb. 3:20).
Guð bíður eftir þér, stendur og bíður
og það er sama á hvaða aldri þú ert,
hann tekur alltaf við þér. Til þess að
hann taki við þér þarft þú aðeins að
biðja til hans og biðja hann um að
taka við þér. Og það er ekki nóg að
gera það einu sinni, þú átt að gera það
aftur og aftur.
Veist þú hvað Biblían er? Hún er
orð Guðs til þín. En taktu nú eftir:
Biblían er ekki eins og aðrar bækur,
þar sem þú byrjar á að lesa í byrjun
bókar. Þú flettir bara upp einhvers-
staðar og lest vel og vandlega og best
er að biðja til Guðs áður en byrjað er,
þá hjálpar hann þér að lesa hana. Já,
mundu eftir að nota bænina, til þess
er hún, Guð gaf þér hana til þess að
þú gætir notað hana.
Jesús segir oftar en einu sinni í
Biblíunni þessi orð. „Fylg þú mér“:
Ég skora á þig að fara að hans orðum
og fylgja honum, ef þú hefir ekki gert
það þegar. Og taktu eftir þessum
orðum sem standa í Jóhannes 3,16 og
eru oftast nefnd litla Biblían:
„Því svo elskaði Guð heiminn, að
hann gafson sinn eingetinn, til þess
að hver sem á hann trúir glatist
ekki, heldur hafi eilíft iíf“.
Jesús lét lífið á krossi fyrir þig og
mig og mundu að naglarnir héldu Jesú
ekki á krossinum, heldur ást hans til
þín.
Guð blessi þig,
Agúst Magnússon