Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.05.1985, Side 13

Bjarmi - 01.05.1985, Side 13
Stutt spjall við Guðmund Guðmundr on, æskulýðsfulltrúa KFUM og KFUK í Réykjavík í tilefni af ári æskunnar.- „Opnar dyr og verkmiklar" Guðmundur Guðmundsson, æskulýðsfulltrúi KFUM og KFUK — Hcfur það einhver áhrif á rótgró- 'ð æskulýðsstarf KFUM og KFUK að þetta ár er sérstaklega helgað æsk- unni? — Það að athygli fólks er beint að ntálefnum æskunnar og æskulýðsstarfi almennt er félögunum mikið fagnað- arefni. Það veldur ef til vill engum stórbreytingum í starfinu, því við erum með áherslu á æskulýðsstarf á hverju ári, en það að margir aðilar vilja nú taka höndum saman við að efla æskulýðsstarf er okkur hvatning fll að vinna enn betur að því að bjóða ^skunni tækifæri til þátttöku í kristi- *egu félagsstarfi. —- Getur þú sagt okkur frá því helsta sem verið hefur á dagskrá í unglingastarfi félaganna það sem af er af ári æskunnar? -— Kjarninn er sem fyrr vikulegir iundir í unglingadeildunum víðs vegar a höfuðborgarsvæðinu. Eitt áherslu- atriði á ári æskunnar er að unglingar ^ynnist kjörum og viðhorfum jafn- a'dra sinna annars staðar í heiminum, °g deildirnar völdu að kynna sérstak- lega í vetur lifnaðarhætti unglinga í Kenýa og Eþíópíu. Kristniboðar frá þessum löndum hafa heimsótt flestar deildir og félögin hafa safnað fé til að styrkja unglingastarf í þessum löndum. Af öðrum atriðum sem verið hafa á dagskrá má nefna unglinga- kvöld sem haldin voru fyrir allar deildir í Reykjavík og nágrenni, innanhúss fótboltamót pilta og stúlkna í unglingadeildum, blaðaút- gáfu sumra deilda, ferðalög og ekki má gleyma þátttöku unglinga í starfi í yngri deildum félaganna, þar sem þeir vinna ómetanlegt starf. — Nú er vetrarstarfinu að Ijúka. Verða einhverjar nýjungar í unglinga- starfi félaganna í sumar? — Jú, reyndar. Eitt af markmiðum æskulýðsársins er að skapa unglingum atvinnutækifæri og í sumar verður starfandi vinnuhópur unglinga á veg- um félaganna. Hópurinn mun taka að sér ýmis konar verkefni fyrir fólk almennt og einnig mun hann sinna viðhaldi á eignum félaganna. Stærð hópsins ræðst af því hvaða verkefni fást og vil ég vekja athygli fólks á frétt um þetta annars staðar hér í blaðinu. Annað atvinnutækifæri fyrir unglinga verður væntanlega í tengslum við sumarstarf meðal barna inní á Holta- vegi. Það tengist einnig ári æskunnar að um þrjátíu stúlkur úr KFUK fara á unglingamót í Danmörku og hingað koma um hundrað piltar frá Norður- löndunum á norrænt KFUM drengja- mót í Vatnaskógi. Eins og undanfarin ár verða KFUM og KFUK með leikjakvöld fyrir ungl- inga á Holtavegi í samvinnu við Kristileg skólasamtök og um verslun- armannahelgina er stefnt að lands- móti unglinga í Vatnaskógi. — Hvers væntir KFUM og KFUK af ári æskunnar? — Við væntum þess að ljósið sem beint er að æskulýðsstarfi á árinu verði til þess að bæði einstaklingar og hið opinbera sjái betur nauðsyn þess að styðja slíkt starf. En við væntum þess einnig að æskulýðsárið hvetji okkur sjálf til að hugsa um æskulýðsstarf á nýjan hátt. Það er krefjandi að starfa meðal unglinga. Þeir sem gefa sig í það, þurfa á stuðningi að halda í fyrirbæn og peningalega. Það sem liggur fyrir á næstunni er að skipuleggja boðunar- starfið í deildunum næsta vetur og útbúa hentugt hjálparefni fyrir sveita- stjóra. Við erum æskulýðsfélög og á tímum þegar margir missa tengsl við lifandi kristindóm á unglingsárunum megum við ekki halda að okkur höndum. Vandamál unglingastarfsins er ekki að við náum ekki til ungling- anna, heldur að fúsar hendur til að vinna með unglingum. Okkur standa opnar dyr og verkmiklar. Guð gefi að ár æskunnar verði okkur köllun frá Guði til að elska og þjóna æsku landsins, eins og okkur var þjónað á sínum tíma. Starfsgrcinar KFUN og KFUK eru ótal margar. Á myndlnni eru slgurvegarar í knattspymumóti YD KFUM Reykjavík 1985, yngrl deildin í Hólabrekkuskóla. 13

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.