Bjarmi - 01.05.1985, Page 21
Kristniboðarnir skrifa:
Tveir
ársfundir
Opið og lokað
Norska lútherska kristniboðssam-
^andið ásamt samstarfsfélögum héldu
kristniboðsráðstefnu í Awasa dagana
'0.-16. janúar. Yfir 100 kristniboðar
Irá Noregi, Danmörku, Finnlandi,
Faereyjum og íslandi voru þar saman
komnir til skrafs og ráðagerða um
stafið og til að eiga uppbyggilegar
samverustundir um Guðs orð.
Hins og vant er voru fluttar skýrslur
Há starfinu á starfssvæðum suður-sýn-
ódunnar í fylkjunum Sidamó og Gamú
9°fa. Það kom fram að þrátt fyrir
ýmsa erfiðleika ber starfið ávöxt Guði
01 dýrðar.
í Sídamó gengur starfið víðast hvar
^Jög vel. Nokkrar kirkjur eru þó
'okaðar á svæðinu fyrir sunnan Dilla.
Hirðingaþjóðflokkurinn í Bórana
Oéraði virðist nú eiga vitjunartíma.
'Hargir þar gefa nú gaum að Guðs
°tði og kristniboðar hafa tekið til
starfa á tveimur nýjum stöðum á hinni
v*ðáttumiklu Bóranasléttu, þ.e. í Ar-
®ro í Austur-Bórana og Teltelli sem
Oggur fyrir sunnan Konsó.
* Gamú Gofa á starfið í meiri
erfiðleikum og margar hindranir hafa
Þrátt fyrir ýmsa erflðleika í Eþíópíu ber
starflð ávöxt Guði til dvrðar.
verið lagðar í veginn fyrir starfsemi
kirkjunnar. í Gídole og Arba Minch
hafa margar kirkjur verið lokaðar allt
árið.
Það kom einnig fram að þrátt fyrir
ýmsa erfiðleika í starfinu eru það
forréttindi að fá að boða Guðs orð í
Eþíópíu í dag. Ennþá eru dyrnar
víðast hvar opnar og starfsmögu-
leikarnir margir. Það er skylda okkar
að ganga inn í þessi verkefni meðan
enn heitir dagur.
Kristniboðarnir í Eþíópíu senda
kristniboðsvinum bestu kveðjur og
þakkir fyrir samstarf og fyrirbænir á
síðastliðnu ári.
Nýr forseti
Aðalfundur Mekane Jesús
kirkjunnar (Iúthersku kirkjunnar í
Eþíópíu) var haldinn í lok janúar í
Addis Abeba. Að þessu sinni gekk
nokkuð vel að fá leyfi yfirvalda fyrir
fundinum. Fundurinn varvel undirbú-
inn og áhersla lögð á uppbyggilegar
samverustundir á milli almennra aðal-
fundarmála.
Það hörmulega gerðist svo á öðrum
degi fundarins að starfandi fram-
kvæmdastjóri kirkjunnar, Bulte, var
myrtur af fyrrverandi gjaldkera, en sá
hafði dregið sér fé úr sjóðum
kirkjunnar. Kona Bulte var norskur
læknir.
Á aðalfundinum var kosinn nýr
forseti kirkjunnar. Dr. Immanúel
Abraham hefur gengt því embætti í
fjöldamörg ár, en hann gaf ekki kost
á sér til endurkjörs. Sá sem varð fyrir
valinu heitir Fransis Stefanos, ungur
maður frá suður-sýnódunni.
Þetta er í fyrsta skipti sem maður
héðan úr suður-sýnódunni er valinn í
þetta embætti. Fransis Stefanos er
ungur maður, sem hefur fengið
ábyrgðarmikið og erfitt hlutverk.
Kristniboðsvinir eru beðnir að minn-
ast hans í bænum sínum.
Jónas Pórísson
Skúli fer ekki
til Konsó
Eins og fram kom í fyrsta töiu-
blaði Bjarma á þessu ári var gert
ráð fyrir að Skúli Svavarsson
kristniboði færi fljótlega til Eþíóp-
íu á vegum Hjálparstofnunar
kirkjunnar til að leggja lið í hjálpar-
starfi í Konsó vegna hungursneyð-
arinnar. í apríl var Skúli ekki enn
farinn og hafði blaðið þá samband
við hann og spurði hvað ylli þessari
töf.
íslendingarnir sem fóru til Eþí-
ópíu í vetur fengu starfsleyfi í
landinu sem fulltrúar útlendrar
hjálparstofnunar, þ.e. Hjálpar-
stofnunar ísl. kirkjunnar, til að
starfa í mið- og norðurhluta
landsins.
Haraldur Ólafsson í Addis Abe-
ba lagði hins vegar áherslu á að
Skúli Svavarsson kæmi til Eþíópíu
sem starfsmaður lúthersku kirkj-
unnar í Eþíópíu, Mekane Jesús,
enda væri unnið að hjálparstarfinu
í Suður-Eþíópíu á hennar vegum
og mundi hún þá sækja um starfs-
leyfi fyrir Skúla. Þetta leyfi hefur
ekki enn verið veitt.
Helst virðast málin stranda á
því að ráðuneyti herstjórnarinnar
sem sinnir hjálparstarfinu krefst
þess í sambandi við umsókn Skúla
að kirkjan undirriti yfirlýsingu sem
felur raunverulega í sér að staða
kirkjunnar sé eins og um útlenda
stofnun væri að ræða. Þetta vilja
forráðamenn kirkjunnar að sjálf-
sögðu ekki sætta sig við enda er
Mekane Jesús lögskráð kirkja í
landinu. Vegna þessa ágreinings
milli yfirvalda og kirkjunnar verð-
ur ekki úr því að Skúli fari til
Konsó.
Skúli lagði áherslu á það við
Bjartna að kristniboðarnir í Konsó
veittu mikla hjálp í hungursneyð-
inni ásamt norskum kristniboðum
sem voru fluttir frá öðrum stöðv-
um til þess að létta neyðinni þar
syðra.
21