Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.05.1985, Page 23

Bjarmi - 01.05.1985, Page 23
Dagana 7.-10. mars sl. var haldin kristniboðsráðstefna í Danmörku, undir yfirskriftinni „Jesus den eneste“ eöa „Aðeins Jesús“. Ráðstefnustaður var á Norður-Jótlandi, í ákaflega friðsælu og fallegu umhverfi. Hún var haldin á vegum kristilegu stúdentafé- *aganna á Norðurlöndum. Þátttak- endur voru um 90 talsins, flestir milli 20 og 25 ára. Frá KSF á íslandi vorum við tvær, Jóhanna Guðjónsdóttir og Undirrituð. Markmið ráðstefnunnar var fyrst og fremst að efla kristniboðs- ahuga innan stúdentahreyfingarinnar, hæði með fréttum af kristniboði í ýmsum löndum og með íhugun á orði Duðs. (Aðallega Jes. 44:6-28). Ýmsir kristniboðar, sem starfað höfðu víða um heim, sögðu frá kristniboði í viðkomandi löndum. Þeirra á meðal voru Odd Bondevik (N), sem sagði frá starfinu í Japan, Gunnleik Seier- stad (N), er talaði um kristniboð í Equador, Bodil og Jens A. Skjótt (D), kristniboðar meðal frumbyggja í Líberíu og Malcolm Lewthwaite (N- Sjál.L sem starfar meðal stúdenta í ’ arís. Öll sögöu þau frá misjafnri reynslu sinni úti á kristniboðsakrin- Ufn, bæði basli og handleiðslu Guðs, yonbrigðum og velgengni. Það var ukaflega dýrmætt að fá svo skýra innsýn í fjölbreytilegt líf kristniboð- a°s, einkum þar sem margir þátttak- endanna voru að glíma við sitt eigið kristniboðskall. Mikil áherslavar lögð a Þuð að menn ættu ekki að stara sig blinda á lokaðar dyr, heldur fara inn um þær opnu, og finna leiðir gegnum Þ®r lokuðu. Sums staðar eru lönd að °Pnast en annars staðar að lokast. Frá kristniboðsráðstefnu í Danmörku: Hvem á ég að senda? Hver vill vera erindreki vor? Eftirtalin lönd og álfur voru nefnd sérstaklega: Kína er að opnast. S-Kór- ea, þar er stöðug vakning. Eþíópía, þar vex kirkjan þrátt fyrir ofsóknir. S-Ameríka er að opnast. í Evrópu og N-Ameríku er hins vegar talið að afkristnun nemi um 7500 sálum á dag. Páls postula beið stórt verkefni, er hann hóf heiðingjatrúboð. Heimurinn var stór þá, — nú er hann enn stærri. Mannkyni fjölgar um 300 þúsundir á dag, en aðeins lítið brot þeirra fæðist inn í kristið samfélag. í þróunar- löndunum eru um 40% íbúanna undir 15 ára aldri. Þar eru menntamál í örri þróun, og háskólaborgurum fjölgar. Alþjóðlega stúdentahreyfingin (IFES), leggur þunga áherslu á kristniboð í háskólum þriðja heims- ins, að boða Krist innan um þá kenningarvinda marxisma, búddisma, hindúsima og annarra „isma“, sem þar blása. Og Guð gefur ávöxtinn, um það er ekki að villast, starfið hefur þegar borið mikinn ávöxt, svo mikinn, að stúdentar þaðan hafa sumir hverjir gerst kristniboðar í Evrópu. Það er uggvænlegt að þess þurfi í okkar „rótgrónu, kristnu þjóðfélögum“. Verkefnin eru svo sannarlega mörg, en fáum við kristnir menn einhverju áorkað innan um þennan fjölda meðbræðra? Jesús segir: „Farið og gerið allar þjóðir að mínum læri- sveinum“. Hann hefði aldrei falið okkur vonlaust verkefni: „Sjá ég er með yður alla daga, allt til enda veraldar". (Matt. 28:19-20). Jesús nefnir „allar þjóðir“. í raun er allt mannkyn aðeins tvær þjóðir frammi fyrir Guði: Þeir sem frelsast annars vegar og þeir sem hafna Kristi, hins vegar. Hvorrar þjóðar ert þú? Hvorr- ar þjóðar er nágranni þinn? Guð gefi okkur náð til að vera erindrekar Krists. Ragnheiður Harpa Arnardóttir form. Kristilegs stúdentafélags flugbót í klrhju Sum líftryggingarfélög í Svíþjóð bjóða nú 15% afslátt af iðgjöldum ef viðskiptavinurinn getur sannað að hann fari oft í kirkju. Háskólinn í Uppsölum hefúr leitt í yós með at- hugunum að sá sem fer reglulega í kirhju geti gert sér vonir um að lengja lífdaga sína. Astæðan geti verið sú að hann eigi meira mótstöðuafl en ella gegn streitu og alis konar áhyggjum og hneigist síður til slæmra lifnaðar- hátta eins og ofdrykkju og annars slíks. 23

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.