Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.09.1985, Blaðsíða 4

Bjarmi - 01.09.1985, Blaðsíða 4
Hugleiðing eftir Bjarna Qíslason „Slappaðu Bjami Gíslason sölumaður „Bíð róleg eftir Guði sála mín, því að frá honum kemur von mín“ (Sálm. 62,6). Skrítin orð! Á ekki einmitt kraftur og athafnasemi að einkenna hinn kristna mann? Eru það ekki fullmikil rólegheit að bara bíða? Samt segir sálmaskáldið „Bíð róleg“. Við nánari athugun kemur í Ijós að þetta eru mikil vísdómsorð. Allt of oft eru ákvarðanir teknar í skyndi og óþolinmœðin látin ráða ríkjum í lífi okkar. Við mennirnir sjáum svo skammt og byggjum svo oft á eigin visku og dómgreind. „Bíð róleg" — eftir hverju? — Jú, eftir Guði, eftir vísdómi, leiðbeiningu og krafti frá honum. Án hans eigum við enga von. Án hans verðum við að treysta á eigin kraft og vísdóm og hversu oft hefur ekki komið í Ijós hvað mannlegur kraftur dugar skammt þegar um Guð og eilífðina er að rœða. Páll postuli lœrði þetta sannarlega. Hann cetlaði aldeilis aðfrelsast af eigin rammleik með því að fara eftir lögmálinu og uppfylla ströngustu boð og bönn. Hann hafði mikinn viljastyrk og lagði sig allan fram við þetta og gekk lengra en flestir. Samt sem áður varð endanleg niðurstaða hans þessi: „En vér vitum, að maðurinn réttlœtist ekki af lögmálsverkum, heldurfyrir trú á Jesúm Krist" (Gal. 2,16) og: „Pví af náð eruð þér hólpnir orðnir fyrir trú. Þetta er ekki yður að þakka. Það er Guðs gjöf. Ekki byggt á verkum, enginn skal geta miklast afþví“ (Ef. 2,8-9). Vonin sem Guð vill veita okkur erfólgin í Jesú Kristi. Hann uppfyllti lögmálið, hann tók á sig afleiðingar syndarinnar, hann dó og reis upp og sigraði dauðann í eitt skipti fyrir öll. Við þurfum ekki að bíða eftir friðþœgingarverki Krists, það er fullkomnað. Það gerðist á ákveðnum stað og stund fyrir nœr 2000 árum. Við þurfum að koma fram fyrir Guð, róleg og afslöppuð og leyfa honum að fylla líf okkar .vvo við skiljum að vonin er aðeins fólgin í Kristi og verki hans. Gleymum sjálfum okkur, slöppum afog treystum því að verkið sé fullkomnað í Kristi og honum einum. Þegar Guð fær að opinbera þennan sannleika svo að hann verður raunveruleiki í lífi okkar fœr lífið nýtt innihald, friður kemur í stað tómleika, Kristur kemur í stað okkar verka. Auðvitað eiga kristnir menn misjafna daga eins og aðrir en þá er gott að geta slappað af og vitað að vonin er grundvölluð á Kristi og honum einum. Lokaorð mín verða því: Slappaðu af, Kristur hefur fullkomnað verkið, treystu honum. 4

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.