Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.09.1985, Síða 5

Bjarmi - 01.09.1985, Síða 5
KRISTNIBOÐ Kristniboð er í brennidepli þessa tölublaðs Bjarma. Tilefnið er viðtal sem blaðið átti við Jónas Þórisson, kristniboða, skömmu áður en hann og fjölskylda hans fór til starfa í Eþíópíu á ný. í viðtalinu dregur Jónas skýrt fram hvernig kristniboð og hj álparstarf hlýtur að fara saman. Þá kynnumst við gleymdum þjóðflokkum í grein eftir Egil Grandhagen og fáum að skyggnast inn í fræðslustarf kristniboðans í Cherarería. En fyrst er það viðtalið við Jónas. Hætt við Jónas Þórisson, kristniboða: Það er til tvenns konar neyð! E JL—/ ins og lesendum Bjarma mun kunnugt var Jónas Þórisson, kristniboði, hér heima ásamt fjölskyldu sinni í sumar. Komu þau hingað í leyfi áður en þau halda til starfa á nýjum vettvangi í Eþíópíu, en undanfarin ár hafa þau verið við störf í Konsó. Bjarmi átti tal við Jónas skömmu áður en þau héldu aftur suður á bóginn. Það fór ekki hjá því að hörmungarástandið í Eþíópíu hafi verið ofarlega í huga og við spyrjum Jónas fyrst að því hvernig ástandið hafi verið þar syðra áður en þau fóru þaðan: — Ástandið í Eþíópíu var vægast sagt mjög alvarlegt á mörgum stöðum, bæði í norður- og suðurhluta landsins. Þurrkar hafa verið miklir í tvö ár eða jafnvel lengur og talið er að það séu á bilinu níu til ellefu milljónir manna sem þurfa á hjálp að halda. Þar sem við störfum og þekkjum best til, x Konsó og í Sídamóhéraði, hetur ástandið farið hríðversnandi síðustu mánuðina. Konsófólkið hefur átt í miklum erfiðleikum og einnig hirðingjaþjóðflokkurinn í Suður- 5

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.