Bjarmi - 01.09.1985, Blaðsíða 11
Skirnarathöfn í Pókot. Englnn er skirður
nema hann hafí fyrst genglð á skímamám■
skelð.
trúar við skírumst og Fræði Lúthers
hin minni eru aðalkennslubókin. Auk
þess eru kenndar Biblíusögur og not-
ast við myndir sem teiknaðar hafa
verið með líf og aðstæður Afríkubú-
ans í huga. Hafa þær reynst mjög vel.
Ætlunin er að fólk sem er ólæst fái sitt
eintak af hverri mynd og eignist
þannig sína eigin Myndabiblíu.
Að sjálfsögðu eru nemendur skírn-
arnámskeiðanna misjafnir, enda sum-
lr skólagengnir en aðrir vita ekki
hvort bók snýr upp eða niður þegar
þeir opna hana. Fyrir stuttu byrjuðum
yið með skírnarnámskeið fyrir ungl-
'ngana í kórnum okkar, en þau koma
til okkar eftir skóla á föstudögum.
Auk hefðbundinnar fræðslu lesum
við saman Markúsarguðspjall.
Fræðsla fyrir alla
Ekki er nóg að hafa gengið einu
sinni á ævinni á skírnarnámskeið.
Ekki er heldur nóg fyrir fólk að hlusta
n prédikun einu sinni í viku, en
þannig er það hjá mörgum sem ekki
kunna að lesa. Hægt er að veita hjálp
nteð því að heimsækja fólk, lesa fyrir
það og segja nokkur orð. En til að
veita enn meiri hjálp höfum við efnt
trl námskeiða eða móta hér á stöðinni
sem hafa staðið yfir í einn til tvo daga.
Eitt slíkt námskeið er nú nýafstaðið
°g voru um 90 manns samankomnir
frá fjórum stöðum. Ætlum við að
reyna að halda fleiri námskeið úti í
héraði og svo stórmót hér á stöðinni
tvisvar á ári.
Riblíuskóli
Biblíuskólinn í Kapengira var vígð-
ur 25. maí sl. og þar með tekinn í
formlega notkun, þó svo námskeið
hafi verið þar í gangi síðan í apríl í
fyrra. Búið er að byggja tvær kennslu-
stofur, eldhús með matsal og tvö
heimavistarhús sem samtals rúma 32
manns. Ekki verður um hefðbundinn
skóla að ræða nú fyrstu árin, heldur
mörg stutt námskeið fyrir hina ýmsu
hópa, s.s. öldunga og prédikara safn-
aðanna, sunnudagaskólakennara,
unglinga, konur og svo námskeið fyrir
hvern sem koma vill og fá fræðslu. 10
námskeið viku- og hálfsmánaðarlöng
verða haldin á staðnum nú í ár.
Fólk hefur verið mjög ánægt með
þau námskeið sem þegar hafa verið
haldin og sjáum við þess einnig merki
að þau hafi orðið til hjálpar og
uppörvunar einstaklingum og starfinu
í heild. í framtíðinni er stefnt að því
að efna til lengri námskeiða.
Heimanám
Hér á stöðinni er í gangi eins
konar heimabiblíuskóli, þar sem nem-
endurnir lesa ákveðinn kafla heima
fimm daga vikunnar og koma svo
saman til umræðna um námsefni vik-
unnar ásamt kennaranum. Kallast
þetta “Theological Education by Ex-
tention" skammstafað TEE og er um
að ræða svipaða uppbyggingu og
námsefni hjá mörgum kirkjudeildum
mótmælenda víða um Afríku. Náms-
áætlunin gerir ráð fyrir 10 námskeið-
um sem eru 10 vikna löng hvert og
taka nemendurnir próf í lok hvers
námskeiðs. Mikill hluti námsefnisins
er e.k. inngangsfræði, kynning á ritum
Biblíunnar, sérkennum þeirra og
boðskap, og hvaða erindi þau eiga til
samtímans.
Hér áður fyrr hittumst við vikulega
hér á stöðinni, en þar sem ýmsir hinna
sjö sem nú sækja þetta námskeið, eiga
langt að fara, hittumst við nú á
hálfsmánaðarfresti og tökum fyrir
tveggja vikna námsefni. Allir prédik-
ararnir eru skyldaðir til að sækja þetta
námskeið. Þeirra hlutverk er að boða
og kenna öðrum og sjálfir þurfa þeir
að fræðast, fá „mat“ til að verða færir
um að veita öðrum „mat“ sem á þurfa
að halda.
Prédikararnir þarfnast mikillar
fyrirbænar og minnum við kristni-
boðsvini á þá, svo og unglingana, sem
koma nú á námskeið, en margt er að
berjast í ungum sálum, sem lifa á
tímamótum hins gamla og hins nýja
sem flæðir yfir landið.
KAMERÚri:
ílr fjötrum
Múhameðskar konur í Kamer-
ún segja stundum að þær öfundi
kristnar kynsystur sínar vegna
þess frelsis sem þaer qjóti.
Stúlkum, sem aldar eru upp í
anda íslams, er kennt að hlúða
og þegja og þær eiga að beygja
sig ■ algerri undirgefni fyrir úr-
skurði annarra.
Æðstu ráðamenn samfélagsins
eru karlar. Kariar taka allar
mikilvægar ákvarðanir. Þeir einir
fara i moskumar til bæna. Og
þeir sækja hátiðlr múslíma —
meðan konumar dveljast innan
múra kvcnnabúranna og undir-
búa hátíðarmatinn sem að sjálf-
sögðu er eingöngu ætlaður
kórlum.
Norskur kristniboði, Kon-
stanse Raen, sem starfað hefur í
Kamcrún og kynnst aðstæðum
kvenna, segir að það sé óskiijan-
leg staðhæilng að kristindómur-
inn sé Qandsamlegur konum.
„Hafi nokkrum tekist að uppörva
konur til þátttöku og ábyrgðar,
þá er það kirkjan," segir Kon-
stanse. „Hér læra konur að
sfjóma, bera ábyrgð, prédika og
annast fjármálin.
i þjóðfélagi músiíma hljómar
það eins og þverstæða að kona
skuli fara á samkomu án þess að
karlinn gæti hennar. Já, ekki
nóg með það: Póiki flnnst enn
furðulegra að nokkur karl skuli
taka í mál að gæta bamanna
meðan konan er fjarverandi.
Fangaðarerindið hefur fært
konunni í Kamerún manngildi,
jafnrétti, framtíð og von," segir
kristniboðinn.
11