Bjarmi - 01.09.1985, Síða 16
Bjarne E. Landro:
REYNIÐ m
ARDANAM
Að reyna andana er að meta það
andlega vald sem fylgir trúmálastefn-
um eða mönnum er fjalla um trúmál.
Ekki er allt andlegt vald frá Guði
enda flytur orð Guðs þessa áminn-
ingu:
„Þér elskaðir, trúið ekki sérhverj-
um anda heldur reynið andana hvort
þeir séu frá Guði; því að margir
falsspámenn eru farnir út í heiminn"
(1. Jóh. 4,1). Þó að eitthvað sé
andlegt er ekki víst að það sé kristi-
legt. Spurningin sem úrslitum ræður
hlýtur að vera þessi: Hvers konar andi
er það sem um er að ræða?
1. Andar eru margs konar
A. Andi mannsins
Maðurinn er andleg vera og getur
haft andleg áhrif. Hæfileikinn í þessa
átt er ekki gefinn öllum jafnt. Við
þekkjum menn sem metta andrúms-
loftið einungis með návist sinni, og
þegar þeir segja eitthvað fylgir sann-
færingarmáttur orðum þeirra. Til eru
menn sem hafa líka vald til að dáleiða
eða sefja fólk svo að þeir geta farið
með það eins og viljalaus verkfæri.
Þetta þarf hvorki að vera frá Guði
né Satan heldur aðeins andlegir og
sálrænir eiginleikar. Hins vegar segir
hættan til sín ef þessum hæfileikum er
beitt þegar verið er að ávinna menn
til trúar á Jesúm Krist. Einkum kann
freistingin að vera of sterk ef menn
eru gæddir þessum sálrænu eiginleik-
um í rækum mæli. Hættan er mest
þegar um er að ræða predikara og
andlega leiðtoga. Þeir þrá að leiða
menn inn í ríki Guðs. í áhuga sínum
nota þeir alla hæfileika sína, og fólk
lætur hrífast. Þarna kann svo að fara
að andi Guðs fái ekki að vinna verk
sitt og að einungis verði um mannleg
áhrif að ræða.
Það var samkoma í kirkju. Þyngsli
og deyfð hvíldu yfir. En predikarinn
ætlaði að koma af stað andlegri hrær-
ingu og bauð fólki að koma fram að
grátunum, öllum sem vildu láta frels-
ast og öðlast andlega endurnýjun.
Það er út af fyrir sig ekkert við það
að athuga að fólki sé boðið að koma
fram á þennan hátt. En hann gerði
það þannig að ég varð kvíðafullur. Ég
fékk staðfestingu á því að hann neytti
hæfileika sinna til að sefja menn. Á
þann hátt tókst honum að koma til
vegar magnaðri „andlegri stemmn-
ingu“. Ungmenni sem kom fram að
altarinu sagði umbúðalaust: „Ég var
altekinn einhverjum krafti sem togaði
mig ofan af lofti og hingað niður. En
ég veit ekki hvers vegna ég er kominn
hingað.“
„Andlegt starf" af þessu tagi getur
valdið „andlegum slysum“. Það fer
aldrei vel, ef það er ekki andi Guðs
sem verkar á syndarann með orði
Guðs og knýr hann á kné. Við
þekkjum fólk sem „komst til trúar“
vegna þess að einhverjir lögðu fast að
því á mannlega vísu. Og síðan „féll
það frá“ þó að það hefði í raun og
veru aldrei komist til trúar. Þessi
reynsla er hinu ógæfusama fólki eins
og martröð og stendur í vegi fyrir kalli
Guðs. Það gerir sér ranga mynd af
kristindómnum og reynsla þess af
kristindómnum er brengluð.
Guð hjálpi okkur sem eigum að
vera andlegir leiðtogar að við séum
áhugasamir þegar við reynum að
ávinna menn, en hann forði okkur fra
því að beita mannlegum og sálrænum
brögðum til að sannfæra fólk og láta
sem slíkt sé kristindómur!
B. Andi Satans
Satan er yfirnáttúrleg, andleg vera
og býr yfir yfirnáttúrlegum hæfileik-
um og mætti. Allt frá syndafallinu
hefur hann lagt kapp á að leiða fólk '
frá Guði. Biblían segir að þetta hafi
honum tekist óhugnanlega vel, og
þegar líður að heimsslitum mun villan
ná hámarki.
Vert er að gefa gaum að svari Jesú
þegar lærisveinarnir spyrja um tákn
síðustu tíma: „Gætið þess að enginn
leiði yður í villu“ (Matt. 24,4). Mest
mun bera á hinu öfluga valdi villunn-
ar.
í Eden þóttist djöfullinn vera vinur
Guðs. Eins hefur hann síðan reynt að
leiða menn afvega með því að láta þá
halda að andi hans sé andi Guðs.
Þegar nálgast endalokin hefur hann
náð svo langt að margt af því sem
kallast kristindómur á rætur að rekja
til hans. x,Margir falsspámenn munu
rísa upp og leiða marga í villu“ (Matt.
24,11).
Nútíminn einkennist af villulær-
dómum. Það er margt sem á að vera
kristindómur. Sumir kristnir, trúaðir
æskumenn, einkum í bæjum, eru
greinilega áttavilltir. Þeir þrá „anda
og Iíf“ og láta leiðast inn í trúarsamfé-
lög sem gjalda ber varhug við. Ef nafn
Jesú er nefnt þar og andrúmsloftið
hlaðið krafti telja þeir það öruggt
merki þess að þar sé sannur kristin-
dómur.
16