Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.09.1985, Page 18

Bjarmi - 01.09.1985, Page 18
við hugsum til slíkrar samverustunda um orðið, er andi Guðs verkaði með krafti. Syndarar lentu í sálarstríði, menn gerðu upp syndir af einlægni, náðin var þegin með þökkum og frelsarinn miklaðist. Nýfrelsað fólk tók undir með hinum eldri í bæn og lofsöng. Enginn nema andi Guðs getur komið slíku andlegu valdi til vegar. Við þurfum líka að varast þær öfgar að fordæma alla söfnuði og predikara sem iðka tungutal og lækningar fyrir bæn. Eins og áður segir eru þessi óvenjulegu fyrirbæri engin örugg sönnun þess að Guðs sé að verki, en við megum ekki heldur taka það sem sönnum þess að Satan sé að verki. Okkur ber að minnast þess að Jesús sjálfur læknaði hvers konar sjúk- dóma, á undursamlegan hátt, já, vakti jafnvel menn upp frá dauðum. Og orð Guðs segir í 1. Kor. 12, að Guð hafi fyrir anda sinn gefið trúuð- um mönnum ýmis konar náðargáfur, guðdómlega eiginleika og kraft. Þar á meðal eru nefndar „lækningagáfur... framkvæmdir kraftaverka... tungu- talsgáfa... útlegging tungna“ (v. 9- 10). Við sjáum að þetta tíðkaðist í fyrsta kristna söfnuðinum. Auk allra hinna náðargjafanna var þessari gjöf einnig ætlað að vera fyrir hendi í öllum kristnum söfnuðum á öllum tímum. En hér er okkur mikill vandi á höndum. Hann er sá að djöfullinn er snjall að gera eftirlíkingar. Við sjáum dæmi um þetta í 2. Mós. 7. Drottinn vinnur kraftaverk þegar hann Iætur staf Arons breytast í stóran höggorm. En töframenn hins óguðlega faraós herma eftir og gera sams konar furðu- verk. Stafir þeirra urðu að stórum slöngum. Víst voru þetta kraftaverk, en Guð stóð ekki að baki þeim. Vissulega væri illa komið ef við létum blekkjast og teldum það vera guðdómlegt sem komið er frá Satan. En engu betra er að segja að það sé frá Satan, sem þó er frá Guði. „Reynið andana hvort þeir séu frá Guði“. Þetta er hvatningsjálfs andans í 1. Jóh. 4,1. Hvernig eigum við að fara að því? (Framhald í næsta blaði) JAPAN: I þágu lífsins Á árinu 1984 var stofnað í Tokíó kristilegt féiag sem viil vinna á móti fóstureyðlngum. Samtökin áforma að veita fræðslu um þungun og fóstureyðingar. Fleiri og fieiri Japanir gera sér yóst að eitthvað verður að gera tii að koma í veg fyrir að ófædd- um bórnum verði eytt, segir i eriendri frétt um þetta mái. Japanskar konur mega fá fóst- ureyðingu jafnvel á sjöunda mán- uði meðgöngutimans. Sam- kvæmt opinberum tölum eru fóstureyðingar jafnmargar og fæðingar, en talið er fullvist að fóstureyðingar séu helmingi fleiri en getið ér í skýrslum. „Pillan" svonefnda er ekki Ieyfð í Japan af ótta við auka- verkanir. Talið er að fóstureyð- ingar séu algengasta „getnaðar- vömin". f fréttinni segir að yflr helmingur bama sem getin séu í Japan lendi í sorptunnunum. Pá má nefna að Japanir leyfðu fyrst- ir allra þjóða notkun fóstureyð- ingar-töflunnar. Virðingu fyrir líflnu hrakar. Mörg nýfædd böm flnnast á ári hveiju. Þau hafa verið skilin eftir á opinbemm salemum, í papp- írskörfum eða geymsluhólfum. Sálfræðingar segja að lítill mun- ur sé á því að láta eyða sjö mánaða gömlu fóstri og henda nýfæddu bami. Ofsóknir aukast Ofsóknir gegn kristnum mönn- um færast I aukana um víða veröld. Um þriðjungur allra krist- inna manna — 610 milUónir — eiga nú heima á svæðumþar sem þjarmað er að kristnum mönnum, segir þýska kristilega fréttastofan Idea. Svo virðist sem Mið-Ameríka, einkum níkaragúa, sé nýtt svæði þar sem frelsi kristinna manna er ógnað. Fyrir skömmu vom 17 kirkjur í Norður-níkaragúa brenndar, þetm lokað eða breytt í skotfærageymslur. Fulltrúar ffá alþjóðlegu mannréttinda- nefndinni tefja sig sjá fyrstu merkin um skipulagðar ofsóknir á hendur kaþólsku kirkjunni og bræðakirkjum meðal mótmæl- lenda. Æ meira er þrengt að kristnum mönnum á Kúbu. Margir hafa verið dæmdir i 15-20 ára fangelsi vegna þess að þeir neituðu að gegna herþjónustu af trúar- ástæðum. Frá Súdan í Afríku berast þær fréttir að litið sé á kristna menn sem annars flokks borgara eftir að lögum i anda íslams hefur verið komið á að nýju. Einkum hafa margir kirkjuleiðtogar i Suður-Súdan verið teknir hönd- um og sérstakar hersveltir stjómarínnar hafa verið sendar inn í skógana til að leita uppi kristna menn. Framkoma yflrvalda í Egypta- landl við kristna menn er með ýmsu móti en þau hafa hert eftir- litið með heimilissamkomum. Piý- lega voru 200 bibliuleshópar leystir upp. Baptistar í óskráðum söfnuð- um í Sovétríkjunum hafa verið dæmir í samanlagt flmm þúsund ára fangelsi á síðustu 25 árum og tefja menn ekki horfur á bjart- ari dögum í nánustu framtíð. Á síðustu mánuðum hafa verið sett lög sem kveða svo á að halda megi mönnum föngnum þijú ár fram yfir refsitímann ef þeir fari ekki eftir reglunum í vinnubúð- unum. Þetta gerist án þess að réttað sé að nýju i inálum þeirra, enda eiga stjórnendur vinnubúð- anna að úrskurða hvort fangam- ir hafl brotið reglurnar. 18

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.