Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.09.1985, Síða 22

Bjarmi - 01.09.1985, Síða 22
FRÁ STARFinU Frá Hólavatni. Frá ungllngamótinu / Vatna- skógl. Koddaslagur á rá. Kristilegt unglingamót JESÚS LIFIR var yfirskrift unglingamóts sem haldið var í Vatnaskógi um verlsunar- mannahelgina. Mótið var haldið á vegum Landssam- bands KFUM og KFUK og var tilgangur þess að gefa unglingum kost á að eiga góðar stundir í Vatnaskógi þessa mestu ferðahelgi ársins og kynnast Jesú Kristi og boðskap hans. Um leið var mótið þáttur í aukinni áherslu KFUM og KFUK á kristilegt unglingastarf á ári æskunnar. Dagskrá var vel undirbúin og sérstaklega sniðin við hœfi ungs fólks. Biblíustundir voru á morgnana og þar bent á hverju það skipti nútíma ungling að Jesú lifir. A sunnudag annaðist sr. Ólafur Jóhannsson, skólaprestur, guðsþjónustu mótsins. Utanhúss var fjölmargt í boði og gátu þátttakendur valið um ýmsa þœtti svo sem koddaslag á rá, reiptog, fjall- göngur, fótbolta, þrauta- keppni, burtróður og hœfi- leikakeppni svo nokkuð sé nefnt. Aftanstundir voru í íþrótta- skála ogfór þarsaman gaman og alvara. Að þeim loknum voru svo ýmis síðkvöldatil- boð, svo sem eldvera o.fl. Pátttakendur voru ekki skráðir á mótið og gátu kom- ið og farið að vild, en flestir kusu að vera á staðnum alla dagana og tóku að jafnaði um og yfir tvö hundruð manns þátt í stundunum sem haldnar voru ííþróttahúsinu. Formaður undirbúnings- nefndar mótsins var Ársœll Aðalbergsson úr Keflavík. Kaffisala að flólavatni Sumarstarfinu á Hólavatni lauk með kaffisölu sunnudag- inn 18. ágúst sl. og komu um 200 manns til að fá sér kaffi- sopa. Eyjafjarðarhringurinn er orðinn vinsœll og margir komu við á Hólavatniþennan dag. í sumar voru fjórir 14 daga flokkar, tveirfyrir drengi og tveir fyrir stúlkur. Aðsókn í sumar var ekki nógu góð, flokkar voru ekki fullir. Aðalforingjar voru Björgvin Jörgensson, Þóra Harðar- dóttir og Þórey Sigurðardótt- ir. Guðsþjónustan á Löngumýr- armótinu var í Hiklabxjar- kirkju í Skagafirði. Kristniboðsmót Dagana 19. til 21. júlí var haldið kristniboðsmót að Löngumýri í Skugafirði. Þátt- takendur voru víða að frá Akureyri, Seyðisfirði, Skaga- firði, Akranesi, Reykjavík, Keflavík og fleiri stöðum og voru um 70 manns á mótinu. Dr. Sigurbjörn Einarsson, biskup var rœðumaður og hafði hann tvo biblíulestra. Auk hans töluðu sr. Kjartan Jónsson, kristniboði og Val- dís Magnúsdóttir, Jónas Þór- isson, krisniboði og fleiri. Góð og uppbyggileg vitnis- burðarstund var á laugar- dagskvöldið með mikilli þátt- töku. A sunnudagsmorgun var guðsþjónusta í Miklabœj- arkirkju með altarisgöngu. Sr. Helgi Hróbjartsson pre- dikaði og sr. Ólafur Hall- grímsson, Mælifelli, aðstoð- aði við altarisgöngu. Loka- samkoma mótsins var síðan kl. 2 e.h. á sunnudag. Stjórnandi mótsins var sr. Helgi Hróbjartsson. Mót þetta er það sjötta síðan þau byrjuðu aftur árið 1980 og hefur verið árvisstsíðan. Þátt- takendur á mótinu voru þakklátir fyrir góðar sam- verustundir. Færeyjaferð Öldungadeild KFUM og KFUK lagði upp í fyrstu utanlandsferð sína laugar- daginn 7. júlí sl. Ferðinni var heitið til vikudvalar í Fœreyj- um. Þátttakendur voru sextán, samstilltur og góður hópur. Gist var á færeyska sjómannaheimilinu, sem reyndist vera þægilegur og ódýr gististaður í hjarta Þórs- hafnar. Fœreyjar komu nokkuð á óvart. Þær eru víðast snarbrattar, grasivaxn- ar upp á topp, vegir mjög góðir og jarðgöng auðvelda samgöngur. Byggð er í byggðakjörnum svo einstök bændabýli sjást ekki. Gróður er fábreyttur nema í Þórshöfn en þar er aðfinna fjölbreyttan trjágróður og skrautleg blóm. Hópnum var boðið heim til Elsu Jacobsen í Götu og var tekið á móti honum mcð veislu að höfðingja sið. Síðan var skoðað byggðasafn. Hús Þrándar í Götu var aðeins skoðað utanfrá því ennþá er búið í því. í hverri byggð er kirkja og kristilegt samkomuhús. 1 Þórshöfn voru 4-5 samkomuhús á litlu svæði, sem tilheyrðu hinum ýmsu trúfélögum. Trúarlíf virðist því vera mikið. Síð- ustu dagana sem dvalið var í Höfn var haldið unglingamót í heimavistarmenntaskóla utan við borgina. Þangað fór hluti af hópnum eitt kvöldið til að kveðja Elsu, sem var nœstu daga áförum til Eþíóp- íu. Engin tengsl tókust við KFUM og K í Færeyjum. Varaformaður KFUM, sem er íslenskur, varþessa dagana á unglingamóti í Vatnaskógi- Ferðalangarnir þakka Guði góðaferð og varðveislu. 22

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.