Bjarmi - 01.12.1985, Blaðsíða 21
*
*
k
*
*
SVEINNINN
í BETLEHEM
Einu sinni í ættborg Davíðs
ofur hrörlegt fjárhús var,
fátæk móðir litverp lagði
lítið barn í jötu þar,
móðir sú var meyja hrein,
mjúkhent reifum vafði svein.
Kom frá hæðum hingað niður
hann, sem Guð og Drottinn er,
jatan varð hans vaggan fyrsta,
vesælt skýli kaus hann sér;
snauðra gekk hann meðal manna,
myrkrið þekkti' ei Ijósið sanna.
Móður hlíðri barnið helga
bernsku sinnar dögum á
hlýðni sýndi‘ og virðing veitti,
vann það starf, er fyrir lá.
Kristin börn í bernskurann
breyta vilja eins og hann.
Æska hans var æsku vorrar
æðst og sönnust fyrirmynd;
hann var lítill, óx með aldri,
átti bros og táralind.
Hann því skilur hryggð í geði,
hann er með í leik og gleði.
Loks vér sjá hann fáum frelsuð
fyr‘ hans blóð og sáttargjörð,
því það barn svo blítt og hlýðið
ber nú allt á himni' og jörð,
börn sín leiðir áfram öll
upp til sín í dýrðarhöll.
Ei á jörð i jötu lágri
jólabarnið sjáum þá.
Við Guðs hægri hönd hann situr,
hann þar fáum vér að sjá,
er við stól Guðs standa glöð
stjörnum lík hans börn í röð.
Fríðrik Fríðríksson.
[
21