Bjarmi - 01.12.1993, Qupperneq 2
Kristilegt tímarit.
Útgefendur:
Kristilega skólahreyfingin,
Landssamband KFUM og KFUK,
Samband ísl. kristniboðsfélaga.
Ritstjóri: Gunnar J. Gunnarsson.
Ritnefnd: Anna Magnúsdóttir, Benedikt Arn-
kelsson og Gunnar H. Ingimundarson.
Afgreiðsla: Aðalskrifstofan v/Holtaveg,
pósthólf 4060,124 Reykjavík, s. 678899.
Argjald: kr. 2.100.-, innanlands, kr. 2.600.-
til útlanda.
Gjalddagi: 1. mars
Verð í lausasölu: kr. 300.-
Prentun: Borgarprent
EFNI:
Staldrað við: Ljós í myrkrinu........... 2
Helgi Elíasson: Jólin - gjöf Guðs........ 3
Gunnar J. Gunnarsson:
Vitringarnir í jólaboðskapnum........... 5
Frásögn: Kærleikur sem kennir til........ 9
Orð Guðs er þeim lifandi.................10
Útvarp í útlegð..........................12
Viðtal: Ný íslensk Biblía árið 2000......14
Áður vígamenn, nú lærisveinar............18
Alhliða hjálp - en krossinn er kjarninn.21
Kristinn hvað sem það kostar.............24
Frá starfinu.............................26
Forsíðumynd:
Gunnar J. Gunnarsson
LJOS I MYRKRINU
Enn á ný nálgast jólin. Við horfum fram til hátíðarinnar
með gleði og tilhlökkun. Jólin færa okkur birtu og yl í skamm-
deginu er stundum sagt. Það er vissulega rétt og jólunum
fylgja jólaljósin. En ef það væri eini tilgangur jólanna væru
þau ekki mikils virði.
Jóhannes guðspjallamaður talar um komu Jesú í heiminn í
fyrsta kafla guðspjalls síns á þennan hátt: „Hið sanna Ijós, sem
upplýsir hvern mann, kom nú í heiminn“ (v. 8). Matteus niinn-
ir á það sama er hann segir: „Sú þjóð, sem í myrkri sat, sá mik-
ið Ijós. Þeim er sátu í skuggalandi dauðans, er Ijós upp runnið“
(4,16). Sjálfur sagði Jesús: „Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir
mér mun ekki ganga í myrkri, heldur hafa Ijós lífsins“ (Jóh.
8,12).
Það er því full ástæða til að kveikja jólaljósin, ekki til þess
fyrst og fremst að færa okkur birtu í skammdeginu hér á norð-
urslóðum, heldur til að minna okkur á það sem gerðist á jólun-
um. Hann sem er Ijós heimsins, hið sanna ljós, fæddist í heim-
inn. Hann kom inn í heim myrkursins og syndarinnar til að
leysa þá sem sátu í skuggalandi dauðans úr fjötrum myrkurs-
ins. Sá sem trúir á hann gengur ekki í myrkri heldur hefur Ijós
lífsins.
Það er þetta sem gerir jólin svo mikils virði. Þau benda á
frelsarann Jesú Krist. Þau minna á hjálpræði Guðs í honum.
Gildi þeirra felst ekki í ytri umbúnaði, Ijósadýrð, gjöfum og
veislumat. Það byggist á því að þau eru haldin til að fagna
komu hins sanna Ijóss í heiminn, fagna því að Guð gerðist
sjálfur maður til að vitja syndugra manna og leysa þá úr fjötr-
um myrkurs og dauða.
Jólagleðin getur því ekki byggst á því að jólin færi okkur
birtu og yl í skammdeginu. Hún getur heldur ekki byggst á því
hverjar ytri aðstæður okkar eru, hvað jólaljósin eru mörg,
gjafirnar fallegar og maturinn góður. Sönn jólagleði byggist á
því að eiga hið sanna Ijós sem kom í heiminn, að eiga trúna á
hann sem er Ijós heimsins. Sá sem á þá trú gengur ekki í
myrkri, heldur hefur ljós lífsins. Sá sem ekki á þá trú er enn í
myrkrinu þótt jólaljósin séu allt í kringum hann.
Enn á ný heldurðu jól. Hvað er það sem gefur jólunum þín-
uni gildi? Eru þau fyrst og fremst örlítil birta í skammdeginu,
ylur í vetrarkuldanum? Eða eru þau raunveruleg jól þar sem
þú fagnar yfir því að eiga hið sanna ljós sem kom í heiminn?
Lúkas segir: „Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors.
Hún lætur upp renna sól af hæðum að vitja vor og lýsa þeim,
sem sitja í myrkri og skugga dauðans, og beina fótum vorum á
friðar veg“ (l,78n).
Hefur miskunn Guðs fengið að koma þessu til leiðar í þínu
lífi? Guð gefi okkur gleðileg jól í Jesú nafni.
g GJG
T
A
L
D
R V
A I
—-—■
Ð Ð