Bjarmi - 01.12.1993, Síða 5
GUNNAR J. GUNNARSSON:
VITRINGARNIR í
JÓLABOÐSKAPNUM
Jólaguðspjöllin eru okkur hugleiðingarefni um hver jól. Athyglin beinist
jafnan öðru fremur að frásögn Lúkasar en Matteus dregur einnig upp
mynd af fæðingu Jesú og atburðum sem urðu kringum hana. Frásögn
Matteusar af vitringunum frá Austurlöndum er okkur kunn og hugleikin
en hvaða menn voru þetta og hvaða stjörnu sáu þeir? Hvað getum við lært
af þeim?
Mikill munur er á því hvernig Lúkas og
Matteus greina frá fæðingu Jesú. Pað sem þeir
eiga sameiginlegt er fyrst og fremst fæðingar-
staðurinn, Betlehem, og áherslan á hver það
var sem þarna fæddist. Þeir lýsa báðir fæðingu
Messíasar, sonar Guðs, frelsarans sem Guð
hafði lofað að senda. Lúkas greinir frá boðun
Maríu þar sem henni er tjáð að hún eigi að
fæða frelsara heimsins, skrásetningu Agústusar
keisara, fæðingunni í fjárhúsinu í Betlehem og
hirðunum á Betlehemsvöllum. Matteus greinir
frá glímu Jósefs þegar María reynist þunguð,
draumi hans um að barnið sem hún gekk með
væri af heilögum anda, komu vitringanna frá
Austurlöndum, Heródesi og bamamorðunum
og flótta Maríu og Jósefs til Egyptalands.
Hér er ekki ætlunin að fjalla nánar um sam-
anburð á þessum tveim frásögum en saman
mynda þær eina heild þótt ólíkar séu. Athyglin
beinist að vitringunum í frásögn Matteusar og
þætti þeirra í jólaboðskapnum.
Hverjir voru þeir?
Matteus byrjar frásögn sína af vitringunum á
þennan hátt (2,1-2):
„Þegar Jesús var fæddur í Betlehem í Júdeu
á döguni Heródesar konungs, komu vitringar
frá Austurlöndum til Jerúsalem og sögðu:
„Hvar er hinn nýfæddi konungur gyðinga? Vér
sáum stjörnu hans renna upp og erum komnir
að veita honum lotningu.““
Gríska orðið sem þýtt er með „vitringar" er
magoi. Upphaflega var það orð notað um
prestastétt meðal Persa en síðar fékk það víð-
tækari merkingu og var notað um alls kyns
töframenn, spámenn og stjörnuspekinga. í
Mattesuarguðspjalli er orðið notað um stjörnu-
spekinga. Stjörnufræði fornaldarinnar voru
viðurkennd vísindi á sínum tíma og vitringar á
því sviði voru virtir og oft áhrifamiklir menn
líkt og heimspekingar og stjarnfræðingar. Þeir
gerðu athuganir sínar á himinhvolfinu og út-
reikninga út frá þeim. Á nútímamælikvarða og
frá sjónarhóli nútíma stjörnufræði eru þetta
gervivísindi sem líkjast helst stjörnuspeki nú-
tímans. Gengið var út frá því að jörðin væri llöt
og yfir henni festingin. Himintunglin voru
jafnvel álitin andleg eða guðleg máttarvöld
sem höfðu áhrif á líf manna. Þessar hugmyndir
voru því tengdar trúarbrögðum heiðinna þjóða.
I Israel höfðu menn sömu heimsmynd en þar
GunnarJ.
Gunnarsson er lektor
við Kennaraháskóla
Islands og ritstjóri
Bjarma.
Þeir hafa verið
stjörnuspek-
ingar og því
lagt stund á
athuganir á
himinhvolfinu
og gert út-
reikninga sína
á grundvelli
þeirra og
þekkingar
sinnar á fræð-
unum.