Bjarmi - 01.12.1993, Síða 10
AÐ UTAN
AFRÍKA - BRÁÐUM KRISTIN HEIMSÁLFA
ORÐ GUÐS ER
ÞEIM LIFANDI
„Það er líkast því að sprengju hafí verið varpað,“
segja sumir kirkjuleiðtogar í Afríku þegar talað er
um útbreiðslu kristindómsins í álfunni. Hvergi í ver-
öldinni breiðist kristindómurinn eins ört út. Aætlað
er að á hverjum degi gerist 20 þúsund Afríkumenn
kristnir. Af 500 milljónum íbúa Afríku er nálægt
helmingurinn kristinn.
Biblían
hjálpar
Afríkumann-
inum að skilja
að hann er
jafnmikils
virði í augum
Guðs og hvíti
maðurinn.
H lutföll kynstofnanna innan kristninnar
hafa breyst gífurlega síðan um aldamót. Þá
voru 81% af öllum kristnum mönnum hvítir
menn. í dag er meiri hluti allra kristinna
manna litaður og miðdepill kristninnar hefur
flust frá Vesturlöndum til þriðja heimsins,
einkum til Afríku.
Það eru til margar skýringar á örum vexti
kristninnar í Afríku í dag. Meira en aldargam-
alt kristniboð Evrópumanna hefur borið
árangur og nú eru Afríkubúar að taka við
sjálfir. Kristnir söfnuðir og kirkjur í Afríku
eru að verða sjálfstæðar og guðfræði þeirra er
ekki lengur háð guðfræði hvíta mannsins.
Á meðan evrópskir guðfræðingar bögglast
við að skýra út vandamál um trú og þekkingu
eiga margir Afríkumenn auðvelt með að skilja
sambandið milli Guðs og sköpunarinnar.
Þótt Afríkumenn séu eins ólíkir innbyrðis
og Evrópumenn, Asíumenn og Suður-Amer-
íkumenn er hægt að tala um sértæka aðferð í
biblíulestri sem er einkennandi fyrir Afríku-
menn. Sú aðferð er sameiginleg í mörgum
löndum Afríku.
TT
A Aeimur Biblíunnar er þeim ekki eins og
saga frá löngu liðnum tímum, full af mótsögn-
um eða, eins og sumir segja, slagbrandur fyrir
alla heilbrigða hugsun. Borgari í fátæku landi
Afríku á auðvelt með að setja sjálfan sig í spor
persóna Biblíunnar og umhverfi þeirra.
Hvort heldur er hann eða hún þekkja þau
vel þurrka, drepsóttir, uppskerubrest og engi-
sprettuplágur. Og fólkið í þorpinu er ýmist
fiskimenn, fjárhirðar eða trésmiðir eins og í
Biblíunni.
Bókin endurspeglar þess vegna þeirra eigin
líf, ekki síst sögurnar í Gamla testamentinu
um ánauð Gyðinga í Egyptalandi, frelsun
þeirra og hrakningar í eyðimörkinni. Þetta á
allt hljómgrunn í hugum margra Afríkubúa.
Enn þann í dag eru heilir þjóðflokkar á flakki
eins og hirðingjar eða þá flóttamenn. Von-
brigði þessa fólks og vonir eru þær sömu og
Gyðinga forðum
Kristinn Afríkubúi gjörir Guð að innsta
kjarna lífs síns og hlustar eftir orði hans. Guð
er æðsta úrskurðarvaldið sem maður á að
móta líf sitt eftir. Biblían er bókin sem gefur
honum vísbendingu um hvernig menn eiga að
lifa saman. Krafan um tryggð og hlýðni, sem
Guð í Gamla testamentinu leggur fyrir hina
9