Bjarmi - 01.12.1993, Síða 24
MERKIR
MENN
Sá sem týnir lífi sínu mun finna það
Kristinn, hvað sem það
kostar
í byrjun þessarar aldar mátti sjá ungan Indverja
ganga um kring í heimalandi sínu og vitna um Jesúm
Krist fyrir öllum sem á vegi hans urðu. Hann var í
hvítum klæðum en það benti til þess að hann væri
sadú, maður sem hefði helgað sig andlegum mein-
lætalifnaði allt frá æsku.
Sundar var
enn barn að
aldri þegar
með honum
vaknaði ó-
slökkvandi
þrá eftir að
fínna sannleik-
ann.
Það vakti að vonum undrun meðal fólksins
að hann boðaði persónulegan Guð kristinna
manna í stað hins algyðislega „máttar“ sem
hindúar tala um. En það varð ekki af honum
skafið að hann var andlegur maður og að hann
neitaði sér um lífsgæðin. Fötin, sem hann gekk
í, voru aleiga hans og þannig líktist hann meist-
aranum sem átti hvergi höfði sínu að að halla.
Maðurinn hét Sundar Singh. Það er ómaks-
ins vert að kynna sér sögu hans, ekki síst fyrir
okkur, trúsystkini lians í nægtaþjóðfélögum
Vesturlanda.
Drengur leitar sannleikans
Sundar Singh fæddist 3. september 1889 í
Rampúr í ríkinu Patíala. Faðir hans var efnaður
landeigandi og fjölskyldan bjó við mikinn
munað meðan börnin voru að alast upp. Sundar
var yngsti sonurinn.
Reyndar fór móðir hans á svig við hinn við-
urkennda lífsstíl fólksins. Hún fann fyrir átak-
anlegum tómleikanum undir hinu yfirborðslega
áhyggjuleysi. Sundar var henni einkar kær og
því sagði hún oft við hann: „Þú mátt ekki vera
hirðulaus og veraldlegur eins og bræður þínir.
Leitaðu sálu þinni friðar, elskaðu trúarbrögðin
og þú verður einhvern tíma guðrækinn sadú.“
Með einhverjum hætti komst hún líka í
kynni við bandarískar konur sem voru kristni-
boðar og þær heimsóttu hana stöku sinnum.
Pilturinn var aðeins 14 ára þegar hann missti
móður sína en áhrif hennar á soninn vöruðu við
alla ævi hans.
Sundar var enn barn að aldri þegar með hon-
um vaknaði óslökkvandi þrá eftir að finna
sannleikann. Hann var ekki nema sjö ára þegar
hann hafði lesið hið fræga fræðsluljóð hindúa,
Bhagavad-gita, Ljóð drottins, en í því eru 700
erindi. A unglingsárunum hélt hann áfram að
kynna sér helgirit, meðal annars Kóraninn, og
sat oft yfir þeim langt fram á nótt. Vissulega
aflaði hann sér þekkingar en hjarta hans var
friðvana.
Hörð viðbrögð
Nú lá leið hans í skóla sem starfræktur var á
vegum öldungakirkjunnar. Þar hóf hann að
lesa Nýja testamentið. Hann gerði sér fljótt
grein fyrir því að viðhorf þeirrar bókar gengu
þvert á allar undirstöðukenningar hinna trúar-
bragðanna.
Sundar gerðist nú forsprakki nemenda sem
börðust gegn kristindómnum. Hann reif mörg
blöð úr Nýja testamentinu og henti þeim í eld-
inn. Eitt sinn bar skugga af kristniboða á Sund-
ar og var hann þá heila klukkustund að þvo
hann af sér!
Jafnframt fylltist hann beiskju vegna þess að
hin fornu, hefðbundnu trúarbrögð veittu honum
ekki sjanti, algjöra fullnægju sálarinnar sent