Bjarmi - 01.04.1995, Blaðsíða 31
Tvö áhugaverð
námskeið framundan!
Jobsbók og vandi
þjáningarinnar
Kennt verður mánudaginn 24. apríl og miðvikudaginn 26. apríl
kl. 18:00 -22:00.
Fjallað verður um Jobsbók og hvað einkennir hana sem rit.
Hver er boðskapur hennar til okkar? Hvað kennir hún okkur
um þjáninguna? Ákveðnir textar verða skoðaðir.
Leiðbeinandi: Sr. Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur.
Námskeiðsgjald kr. 1.500. Léttur kvöldverður innifalinn bœði
kvöldin.
Innritun lýkur föstudaginn 21. apríl.
Guð faðir, skapari minn
Kennt verður þriðjudagana 2., 9. og 16. maí og fimmtudagana
4. og 11. maí kl. 20:00 - 21:30.
Fjallað verður um fyrstu grein trúarjátningarinnar. Hver er Guð,
almáttugur skapari himins og jarðar? Er Guð persónulegur
Guð? Hver eru tengsl skaparans við sköpunina?
Hvaða ábyrgð berum við á sköpunarverkinu?
Leiðbeinandi: Skúli Svavarsson kristniboði.
Námskeiðsgjald kr. 1.000.
Innritun lýkurföstudaginn 28. apríl.
Biblíuskólinn
við Holtaveg
Holtavegi 28 Reykjavík Sími: 588 8899
BIBLÍULYKILL
Orðalyklar
að Biblíunni 1981
í aðallykli er að finna öll nafnorð og lýsingarorð sem fyrir
koma í biblíutextanum, flest sagnorð og hluta atviksorða.
Auk þess er talnalykill og nafnalykill.
BIBLÍULYKILL er 1700 bls. og kostar aðeins:
kr. 5.750,00
Hið íslenska Biblíufélag
Guöbrandsstofu - Hallgrímskirkju
Pósthólf 243,121 Reykjavík '
Sími 91-17805
31