Bjarmi - 01.06.1995, Blaðsíða 16
F - SÍÐAN
Því miður verðum við oft áþreifanlega vör við að misbrestur verður á sambúð mannfólksins og náttúrunnar.
Sumarib er tími
vaxtar og uppskeru
„Og vorið kom ímaí, eins og vorin komuforðum,
með vœngjaþyt og sólskin og nœturkyrrð
og angan..."
Hending úr Frá lidim vori
eftir Tómas Guðmundsson
Eftir langan og erfiðan vetur er nú loks farið
að örla á hlýindum í lofti og angan frá
nýútsprungnum vorblómum og brumi. Það
léttir lund að bjart er nánast allan sólar-
hringinn. Vorið er mikill gleðigjafi og gefur
fyrirheit um bjarta og „hlýja“ daga. Þegar snjórinn
hefur hulið jörðina í marga mánuði sjáum við hana í
nýju ljósi þegar hún birtist á ný undan hvíta teppinu
sem breytti allri ásýnd hennar. Svo undrafljótt
byrjar gróðurinn að vaxa á ný, grasið grænkar og
fyrstu vorblómin brosa við okkur. Gleði barnanna
yfir fyrstu blómunum er ósvikin og hækkandi loft-
hitinn kallar þau út í leik. Það er gaman að sjá vorið
í bömunum. A sumri njótum við útiveru og sólskins,
gróðurs jarðar og hvíldar frá amstri hversdagsins ein
eða í samfélagi annarra.
Sumarið er tími vaxtar og uppskeru. Þá birtist
sköpunarverk Guðs í allri sinni dýrð, þess eigum við
að njóta. Mikilvægt er að kenna börnum að umgang-
ast og virða náttúruna - sköpunarverkið. Tímanum
er vel varið sem fjölskyldan er saman að njóta nátt-
úrunnar, að skoða og skilgreina hið smáa sem stóra,
blómin, steinana, vatnið, fjöllin, fuglana, skordýrin,
húsdýrin...
16