Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.10.1995, Page 9

Bjarmi - 01.10.1995, Page 9
ALDARMINNING Ólaíur Ólafur meö kínverskum lærdómsmanni. pui'a'T'a' ^ iQo7 áöur sarnstarfP^'^Harferfi - ****«£%fi* stórviðrinu einu. Hann heyrist ekki síður og birtist ekki síður í blíðum blænum, - mildi hans og miskunn. Og Ólafur var eins og harpa Guðs. Það, sem hann sagði frá og talaði um, fór skemmstu leið í hugskotin og hjörtun. Raunar var hann eins og heil hljómsveit og hljómkviða, allt fas hans, röddin, gleðin, brosið, en einnig hryggðin og sársaukinn vegna þeirra, sem lifðu í vonarsnauðri veröld, myrkri og þjáning. II. Drottinn gerði þann mann, sem þannig kom drengsnáða fyrir sjónir fyrir tæpum sextíu árum, að tákni fyrir íslenzka þjóð, - áminning um skuld hennar og skyldur. Nú eru liðnir tæpir þrír aldarfjórðungar, frá því að Ólafur hélt austur til Kína og gerðist þar kristniboði. Hann fór þangað á vegum erlends kristniboðsfélags, en þó fór svo, að fyrstur íslenzkra manna var hann studdur af fslendingum til kristniboðs í fjarlægu landi. Þáttur hans í íslenzkri kirkjusögu er því næsta merkur. Árið 1873 ritaði helsjúkur, norðlenzkur prestur bréf til þjóðar sinnar. Þjóðhátíð var í vændum. Hann lagði til, að stofnað yrði kristniboðsfélag á Þing- völlum á þeirri þjóðhátíð. Hann var ungur og djarfmæltur: „Ég hræðist hvorki fátækt þjóðarinnar né auvirðileika uppástungumannsins," segir þar. „Ég hef tekið eftir því, að Drottinn framleiðir einatt mik- ið af litlu. Þannig getur hann með þessari fámennu og fátæku þjóð, gert gagn annarri stærri og ríkari þjóð, það gagn, sem ekki verður metið eftir mæli- kvarða veraldarvitringanna." Bréfritaranum entist ekki aldur fram á þjóðhjátíðar- árið. Félagið fæddist nær andvana. Þeir voru fáir, sem töldu íslendinga aflögufæra um kristinn dóm. Drottinn gerði pann mann að táknifyrir íslenúa þjóð, - áminning um skuld hennar og skyldur. 9

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.