Bjarmi - 01.10.1995, Síða 12
AFMÆLI
Fjölmenni var á
afmælissamkomunni
30. ágúst sl.
ríkjanna. Kristinn komst til lifandi trúar sem ungl-
ingur og gerðist Gídeonmaður eftir að hann hafði
sest að Vestanhafs. Hann taldi Gídeonfélagið vera
besta félagsskap sem hann hafði kynnst og bar með
sér heita þrá um að einhver yrði til að stofna slíkt
félag heima á Islandi. Kristinn bað fyrir málefninu í
mörg ár, en komst þá að því að það var einmitt hann
sjálfur sem Guð ætlaði þetta verk. Þegar til landsins
Hvers vegna gekkst þú í
Gídeonfélagiö?
Helgi Elíasson,
einn af stofnfélögum Gídeonfélagsins
„Það er ósköp einfalt svar. 16 ára gamall eignaðist ég trú á
Drottin Jesúm, hinn krossfesta og upprisna og langaði mig
mikið tii að sem flestir aðrir mættu tá að þekkja hann. Mér
fannst Gídeonfélagið, ásamt öðru vera kjörinn vettvangur lil að
vinna að málefnum Guðs ríkis.“
12
kom kynntist Kristinn Ólafi Óafssyni kristniboða.
Ólafur greiddi honum veg til að kynna félagið.
Kynningarfundur var haldinn þann 28. ágúst í húsi
KFUK og KFUM að Amtmannsstíg 2b. Eins og
frægt er orðið, má segja að sagan um það þegar
Drottinn skipaði Gídeon að fækka í herliði sínu hafi
endurtekið sig (Dómarabókin 7:1-7). A kynningar-
fundinn komu 70 manns, en ákveðið var að fresta
því til næsta dags að stofna félagið. Voru þeir einir
hvatlir til að mæta sem gætu hugsað sér að stofna
slíkan félagsskap. Daginn eftir komu 30 manns, en
þá var því aftur frestað um einn dag að stofna
félagið. Þegar stundin rann upp, kl. 22:00 kvöldið
eftir, hafði fækkað verulega í „herliðinu", því
einungis 17 manns mættu, auk Kristins Guðnasonar.
Hér á landi sem um heim allan hefur félagið vaxið
mjög hratt og starfsemi þess orðið stöðugt útbreidd-
ari. ísland var fyrsta Gídeonlandið utan Norður-
Hér á landi sem m heim allan
hefurfélagið vaxið mjög hratt
og starfsemi þess stöðugt
útbreiddari.
Ameríku og það þriðja í öllum heiminum, en þegar
þetta er skrifað starfa Gídeonmenn í 172
þjóðlöndum. Meðal annars hafa þeir fengið að
starfa óáreittir víða þar sem kristniboðar hafa ekki
fengið að komast inn. Frá stofnun hefur hreyfingin
dreift á milli 600 og 700 milljónum eintaka af
ritningunni. Ekkert annað félag í heiminum starfar í
jafnmörgum löndum.
A Islandi eru nú 15 Gídeonfélög starfandi en þau
eru öll aðilar að Landssambandi Gídeonfélaga.
Biblíunni eða Nýja testamentinu hefur verið komið
fyrir á öllum hótelherbergjum, skipum og flugvélum
sem flytja farþega, við sjúkrarúm, á dvalarheimilum
aldraðra og í fangaklefum. Auk þess færir Gídeon-
félagið öllum 10 ára börnum og öllum hjúkrunar-
fræðingum og sjúkraliðum á íslandi Nýja testa-
mentið að gjöf. Nú hefur einnig komið til tals
meðal Gídeonmanna að dreifa Nýja testainentinu á
biðstofur lækna.