Bjarmi - 01.10.1995, Qupperneq 18
VIÐTAL
Þú getur kallab okkur
söngtrúboba
segja systkini í Oslo Gospel Choir
Oslo Gospel Choir er líklega þekktasti
gospelkór Norðurlandanna og jafnvel
þótt víðar væri leitað. Kórinn hefur
starfað í sjö ár og hefur á undanförnum
árum náð miklum vinsældum enda frá-
bær kór. Hann hefur gefið út fimm hljómplötur sem
eru hver annarri betri og tónleika hefur kórinn hald-
ið víða um heim og þykja þeir sérlega góðir og eru
jafnan vel sóttir, ekki síst af ungu fólki. Sem dæmi
má nefna að fyrir tveim árum hélt hann tónleika í
Hollandi fyrir 10.000 manns. í kórnum eru systkini,
þau Kristin og Ole Edvard Reitan. Norska blaðið
For Fattig og Rik birti fyrir skömmu viðtal við þau
sem við grípum niður í.
- Þú getur kallað okkur söngtrúboða, segja þau,
og það eru orð að sönnu því þau hafa flutt orð Guðs
á besta tíma í útvarpi og sjónvarpi undanfarin ár
með Oslo Gospel Choir. Þar byggja þau á góðum
grunni því þau eru alin upp í Norska heimatrúboðinu
og móðir þeirra er predikari á vegum þess. Þá eru
þau í þeirri sérstöðu að vera í hópi fárra trúboða sem
eiga sér aðdáendaklúbb og hefur verið boðið að
syngja fyrir konungsfjölskylduna í höllinni. En þetta
á einmitt við um Oslo Gospel Choir. Sjálf líta þau
fyrst og fremst á sig sem erindreka Guðs ríkis.
Systkinin hafa verið með í kórnum frá upphafi, eins
og flestir 33 meðlima hans, og sungið inn á fimm
hljómplötur.
- Helmingur þeirra sem koma á tónleikana
okkar erfólk semfer sjaldan eða aldrei í kirkju
og á varla kristna vini. Pegar við tölum til jtess
kynnum við því kristindóminn.
- Það er skrýtið að hugsa til þess að það sem í
upphafi átti að vera til gamans og innblásturs fyrir
þá sem tóku þátt í því skuli smám saman hafa undið
upp á sig og loks slegið svo rækilega í gegn sem
raun ber vitni, segir Ole Edvard.
Fullt starf
Kristin hefur nú fengið leyfi frá störfum hjá Kirkens
Bymisjon til að geta helgað sig söngnum. Ole
Edvard er í fullu starfi fyrir kórinn og sá meðal
annars um skipulag alls þess sem laut að útgáfu
síðustu plötu kórsins, „Get up“. Það var mikið starf.
Platan var tekin upp bæði í Noergi og Bandaríkjunum.
Bandaríski gospelkóngurinn Andrae Crouch tók þátt
í því bæði með lagasmíðum og upptökustjórn ásamt
stjórnanda kórsins Tore Aas, en hann hefur m.a.
starfað við tónlistarbrautina á biblíuskólanum við
Staffeldtsgötu í Osló.
Bobun fagnaöarerindisins
Þetta hófst árið 1988, nokkrum árum eftir að Ole
Edvard hafði verið á tónlistarbraut biblíuskólans við
Staffeldtsgötu. Þegar Tore Aas leitaði eftir
áhugasömu ungu fólki höfðu um 400 manns
samband við hann, þar á meðal systkinin Kristin og
Ole Edvard. Tveim árum síðar kom fyrsta hljómpata
kórsins út og seldist hún í 60.000 eintökum.
- Sextíu þúsund eintök af gospeltónlist án þess að
nokkuð sé dregið af, hvorki í textum né tónlist.
Þetta er boðun fagnaðarerindisins, segja þau
systkinin.
- Helmingur þeirra sem koma á tónleikana okkar
er fólk sem fer sjaldan eða aldrei í kirkju og á varla
kristna vini. Þegar við tölum til þess kynnum við
því kristindóminn. Það hefur orðið mikilvægara
fyrir mig með árunum að ná til þeirra sem eru ekki
kristnir. Það skiptir rniklu niáli hvaða boðskapur er
fluttur, hvort það er boðskapur sem frelsar eða setur
18