Bjarmi - 01.10.1995, Page 20
TÓNLIST
Draumurinn sem varb
ab veruleika
Oslo Gospel Choir í hnotskurn
Upphafiö
Norðmaðurinn Tore W. Aas, tónskáld og útsetjari,
gekk með þann draum í maganum að stofna
kristilegan kór þar sem mikil áhersla væri lögð á
gæði tónlistarinnar. Arið 1988 ákvað hann er gera
eitthvað í málinu og setti litla auglýsingu í dagblaðið
Várt Land. Hann bjóst við að 30-40 manns kæmu í
söngpróf. Það komu 400, ungt fólk, sem keppti um
pláss í kórnum. Rúmlega 30 voru valdir og Oslo
Gospel Choir var orðinn til. Enn er slegist um að
komast í kórinn. Nýlega var bætt við einum
söngvara. Hann var valinn úr 150 manna hópi sem
kom í söngpróf.
Fyrsta platan
Kórinn sló fljótt í gegn á tónleikum og áður en langt
var liðið kom hann fram í sjónvarpi og vakti mikla
athygli. Fyrsta platan kom þó ekki út fyrr en árið
20