Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.10.1995, Page 22

Bjarmi - 01.10.1995, Page 22
AFVETTVANGI Linda Sjöfn SigurÖardóttir „Snakker du dansk...?" 70 íslensk ungmenni á kristilegu móti á Jótlandi Stundin var runnin upp og eftirvæntingin í há- marki. Eftir margra mánaða strit við dósa- söfnun, söiu á W.C.-rúllum, kökum o.l'l. var loksins hægt að leggja af stað til DANMERKUR !!!! Sú var tíðin að Islendingar sendu annað hvort námsmenn eða afbrotamenn til Danmerkur. Að þessu sinni var tilgangur fararinnar annars eðlis. Sjötíu unglingar og leiðtogar úr unglingadeildum KFUK & M í Keílavík, Maríubakka í Reykjavík og Vestmannaeyjum auk æskulýðsfélagsins SELA í Seljakirkju lögðu land undir fót og héldu á unglingamót. Danmörk tók á inóti okkur með sól og 28-30 stiga hita. Þegar komið var til Kaupmannahafnar að kvöldi þess 20. júlí var farið og gist í KFUK og M húsinu á Amager. Snemma morgunin eftir var haldið á mótsstað með stuttri viðkomu í vatnagarði, þar sem ferðalöngunum gafst kostur á að kæla sig og skvetta ærlega úr klaufunum. Mótið var haldið í Hörby á Jótlandi 22. - 28. júlí. Þar voru samankomin ungmenni frá hinum Norður- löndunum, Litháen og Rússlandi. Dagskráin var fjölbreytt og höfðaði til andlegra og líkamlegra þarfa þátttakenda. Biblíulestrar, kvöldvökur og val- hópar þar sem þátttakendur m.a. steiktu mat yfir opnum eldi, lærðu ýmis brögð sem beita má við áhættuleik („stunt"), bjuggu til konfekt og mótsblað. í hópunum gafst þátttakendum tækifæri til þess að kynnast nýjunt krökkum og æfa sig í dönsku. Eftirminnilegasti dagskrárliður mótsins var að mati flestra unglinganna ratleikur (haik). Þátt- takendum var skipt í hópa sem áttu að komast á til- tekinn stað nteð aðstoð korts. Á leiðinni áttu þeir að leysa þrautir, m.a. kveikja eld með tveimur steinum og steikja egg á niðursuðudós, búa til hatta og fleira. Þegar á áfangastað var komið biðu þeirra svefn- pokar og sváfu unglingarnir ýmist í hlöðum, skúrum eða jafnvel úti undir berum hirnni. Leiðtoga-ratleikur (haik), sem var fyrir þá sem sóttu leiðtoganámskeiðið, var á köflunt ntjög krefj- andi. Þar fengu þátttakendur að upplifa það að fara fram að ystu mörkum getu sinnar. Eftir á var unnið reynslu hvers og eins. Þau sem tóku þátt í þessu að þetta hefði verið erfitt meðan á því stóð en eftir á hefðu þau ekki viljað sleppa þessu. „Leiðtoganámskeiðið tókst ntjög vel. Þar gafst okkur tækifæri til þess að finna fyrir hve göntul við vorum en um leið að finna barnið í sjálfum okkur,“ varð einum þátttakanda að orði. Eftir mótið var stefnan tekin á Nakskov með viðdvöl í Legolandi. Þar dvaldi hópurinn í góðu yfirlæti í boði KFUK og M. Gestrisni Dana var alveg einstök. Þeir höfðu fengið félagasamtök og ýmsa aðila til þess að bjóða hópnum í mat og var

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.