Bjarmi - 01.10.1995, Page 23
AFVETTVANGI
veislumatur á borðurn allan tímann. Þetta kunnu
við vel að meta.
í Nakskov gafst tækifæri til þess að endurnýja
kynni sín við unglingana sem við kynntumst á mót-
inu. Kvöldvökur voru haldnar, farið í skoðunar-
ferðir um nágrennið og á ströndina. Það var
óneitanlega erfitt fyrir marga þegar kveðjustundin
rann upp.
Eftir tveggja daga stopp var tími til kominn að
halda aftur til Kaupmannahafnar. Það voru að
vonum miklir fagnaðarfundir þegar farið var að
heilsa upp á vini og ættingja í dýragarðinum. Að
því loknu var haldið á íslendingasóðir, farið á
söfn, í Tívolí og að sjálfsögðu á Strikið.
Það var hress og kátur hópur senr hélt heinr á
leið eftir sautján daga ferðalag. Þegar leitað var
álits þátttakenda í ferðinni um hversu vel hefði
til tekist kom berlega í Ijós að andinn í hópnum var
sérstaklega góður. Þetta var skemmtilegur og
samheldinn hópur sem var saman komin til
þess að kynnast og að skenrmta sér. Flestum
fannst að ferðin hefði mátt vera lengri og þau
voru tilbúin til þess að endurtaka hana („jafnvel
með sömu leiðtogunr, þótt þeir væru grimmir á
köflum...“). Skemmtilegasta við ferðina var m.a.
að þar mynduðust mörg ný
vinasambönd sem eiga eftir að vara
lengi.
KFUK og KFUM geta verið stolt
af þessum fríða flokki sem með
framkomu sinni var sjálfum sér,
félögunum og landi til sónra.
Hópurinn er þakklátur öllum
þeim einstaklingum og félaga-
samtökum sem styrktu ferðina.
An þess stuðnings hefði þetta
ekki verið mögulegt.
23