Bjarmi - 01.02.1997, Page 10
Valdís Magnúsdóttir
Ekki gleyma okkur. Biðjið
fólkið í landinu ykkar að
biðja fyrir okkur!" Þannig
grátbað Júlíus, ungur Pókotmaður,
okkur þegar við vorum að kveðja
söfnuðinn í Cheparería. Kúdyo, einn
safnaðarleiðtoginn, bætti við: „Þið verðið
nálæg okkur þegar við biðjum hvert
fyrir öðru.“ Ábyrgðin á ungu kirkjunum
lá þungt á leiðtogunum.
Vaidís Magnúsdóttir, kristniboði
og kennari í Reykjavík.
Neyð þeirra og hróp um fyrirbæn
minnti okkur á okkar eigin bæn um hið
sama þegar við fórum í fyrsta sinn til
Afríku 1981 og öll árin úti í Kenýu. Við
héldum út í óvissuna, örugg í hendi
Drottins. Hann fékk mikið að gera
vegna trúfesti sinnar við eigið orð um að
bænheyra og englar hans voru önnum
kafnir því að baráttan, sem við áttum í
var ekki bara við hold og blóð heldur
einnig „við andaverur vonskunnar í
himingeimnum".
Við erum sköpuð
Guði til dýrðar
Takmark Guðs með lífi okkar er að við
lifum með honum hér og um eilífð og að
við séum til vitnisburðar í heiminum svo
að fleiri frelsist. Óvinurinn Satan, freist-
arinn, gerir allt sem hann getur til að
þessu takmarki Guðs verði ekki náð.
Þess vegna hefur Guð gefið börnum
sínum ýmis hjálpartæki og náðarmeðul
í baráttunni sem við eigum í. Þar á meðal
er bænin og fyrirbænin. Við skiljum lítið
af hveiju, en Guð hefur bundið starf sitt
á jörðinni að miklu leyti við bænina.
Bænarhendur okkar hreyfa hendur Guðs
til að starfa og blessa. Ekkert annað
mikilvægt starf getur því komið í stað
bænarstarfsins.
Jesús er fyrirmynd okkar
Jesús fór oft einn síns liðs og bað. Við
vitum lítið um hvemig hann bað. En við
höfum bænir hans í Faðir vor, Æðsta-
prestsbæninni, bæninni í Getsemane og
er hann vakti Lasarus upp frá dauðum.
í þeim öllum sýnir Jesús okkur mikil-
vægi þess að biðja um að Guðs vilji verðí
Það ætti því líka að vera bæn okkar fyrir
okkur sjálfum og öðmm í ömggu trausti
til þess að vilji hans sé alltaf okkur fyrir
bestu.
Fyrirbæn Jesú í Jóh. 17 var fyrir læri-
sveinum hans og öllum öðmm trúuðum
eftir þá og þar með okkur líka. Hann bað
m.a. um að Guð varðveitti þá í trúnni og
frá hinu illa, um að þeir væm fullkom-
lega eitt til vltnlsburðar fyrir heiminum
og að þeir væru hjá Jesú svo að þeir
gætu séð dýrð hans. Þvílík fyrirbæn!
Eitt af því sem hefur hjálpað mér í
daglegu líf undanfarin ár og skapað
þakklæti og lof er að hugsa um hvar
Jesús er núna og hvað hann er að gera,
hátt upp hafinn yflr allt: „Hann er upp-
risinn, hann er við hægri hönd Guðs og
hann biður fyrir oss,“ er ritað i Róm.
8,34. Ennfremur stendur í v. 27, að
„hann biður fyrir heilögum eftir vilja
Guðs“. Það er svo yndislegt að vita að
Jesús biður fyrir mér þegar ég er þreytt
og veit ekki hvers ég á að biðja. Þá get
ég þakkað honum fyrir það og beðið
hann að kenna mér að biðja með honum
eftir Guðs vilja. Er það ekki stórkostlegt
að vera í samstarfi við Jesú í fyrirbæn
Fyrirbæn Jesú í Jóh. 17 varfyrir lærisveinum hans og öllum öðrum
trúuðum eftir pá og par með okkur líka. Hann bað m.a. um að Guð
varðveitti pá í trúnni ogfrá hinu illa, um að peir væru fullkomlega
eitt til vitnisburðar fyrir heiminum og að peir væru hjá fesú
svo að peirgætu séð dýrð hans. Þvílík fyrirbæn!