Bjarmi - 01.02.1997, Side 19
Að greina gottfrá illu
Vinsældir X - Files þáttanna eru mjög
skiljanlegar. Þeir eru í takt við tíðarand-
ann í andlegum málum á Vesturlönd-
um. Marflöt vísindahyggjan sem áður
tröllreið öllu er að ganga sér til húðar.
Sífellt fleiri vilja gefa hinu yfirskilvitlega
og trúarlega meiri gaum og íhuga and-
leg mál af fullri alvöru. En á meðan fólk
reynir í mjög auknum mæli að fá and-
legum þorsta sínum svalað er lindin
hreina, lífsins eina ekki sú mest aug-
lýsta. Markaðurinn býður að vanda upp
á vatnslausa brunna og vindrekin ský í
ótal myndum.
Sem kristið fólk höfum við ekki leyfi
til að loka augunum íyrir því að Ráð
gátur hafa að mörgu leyti mjög vafa-
saman boðskap að flytja. Það er
langt því frá að um sé að ræða
aðeins saklaust bull og þvaður.
Þættimir þurfa ekki að vera hættu-
legir þeim sem em vel grundvallaðir
í kristinni trú, svo framarlega að horft
sé á þá með réttu hugarfari. Það er
mikilvægt að þekkja óvininn, en til þess
verðum við að leita Guðs og biðja hann
um vernd og greiningu góðs og ills.
Þeim er hinsvegar mest hætta búin sem
ekki þekkja Guð Biblíunnar, en eru
„andlega leitandi", ekki síst unglingar.
Fýrir því fólki eru þættimir vegur sem
virðist greiðfær en endar þó á
helslóðum (Ok. 14:12 og 16:25).
Hállzon, Stig. 1974. Den ockulta vágen.
Evangeliipress, Örebro.
Sjá grein Sigurbjörns Einarssonar,
Kristni og mystík í 4. tbl. Bjarma 1996.
Til dæmis sýn Esekíels í köllunarfrásögu
spámannsins í fyrsta kafla
spádómsbókar hans.
Ungt fóllc tjair sig
um X - FUgs
Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir (18)
Ég horfi á þættina þegar ég get og finnst það mjög gaman.
Eftir því sem ég best veit þá hafa þessir þættir engin slæm
áhrif á mig trúarlega. Sumt í þeim stangast vissulega á við trú
mína, t.d. þættir sem fjalla um endurholdgun og illa anda, þessvegna held ég að
þeir séu ekki hollir þeim sem ekki em kristnir.
Gunnsteinn Geirsson (16)
Ég sækist ekkert sérstaklega eftir því að horfa á
X - Files, en þegar ég er á annað borð að horfa á
sjónvarpið þá geri ég það. Mér finnst þættirnir
alveg ágætir og held að þeir hafi ekki slæm áhrif
á mig trúarlega.
Erla Arnmundardóttir (16)
Ég horfi stöku sinnum á X - Files og finnst þeir alveg
ágætir. Þetta er að visu oftast algjört kjaftæði, en sumt er
nokkuð gott. Sérstaklega einn þáttur þar sem verið var
að rannsaka komu geimvera til jarðarinnar, sem kom
svo í ljós að var sett á svið af mönnum. Mér fannst það
vera ílottur endir. Það em svo margir að pæla í geimver-
um og svoleiðis. Upp á síðkastið hafa þættimir verið sífellt
ógeðslegri og þess vegna er ég ekki eins spennt fyrir þeim og
áður. Þættimir em mjög vinsælir meðal krakka á mínum aldri og
það má segja að föstudagar séu X - Files dagar í skólanum.
Sigurgeir Gíslason (22)
Ég horfi á Ráðgátur af og til og finnst þætt-
irnir, í hreinskilni sagt, þrælskemmtilegir.
Þeir em þó mjög vafasamir á köflum, þar sem
efnið miðar að því að draga fram ótta innra
með manni og dulrænan er á mörkum þess
að teljast uppbyggileg og andlega holl. Mér
finnst að það megi vel fækka þessum hallæris
legu geimvemm í þáttunum. Þær em löngu komnar
úr tísku.
Þóra Þorsteinsdóttir (19)
Ég horfl oftar á X - Files en ég þori að viðurkenna. Mér fmnst gaman að
bera þær hugmyndir sem koma fram þáttunum saman við
kristna trú. Ég fæ visst kikk út úr því að horfa á þessa vitleysu
og vera ósammála. Mér fannst einn þátturinn athyglisverður
sem fjallaði um fólk sem fékk sármerki Krists. Þar snerist
lögmálið með Mulder og Scully við. Hún á að vera trúaður
kaþólikki og rannsókn málsins hafði mikil trúarleg áhrif á
hana, en hann, sem venjulega er sá trúaði og trúgjami, var
alger efasemdamaður í þessum eina þætti.